Hæstiréttur íslands
Mál nr. 51/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
|
|
Fimmtudaginn 21. janúar 2016. |
|
Nr. 51/2016.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl.) |
Kærumál. Farbann.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma Helgi I. Jónsson hæstaréttardómari og Guðrún Erlendsdóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. janúar 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. janúar 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta farbanni allt til þriðjudagsins 16. febrúar 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. janúar 2016.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess fyrir dómnum í dag að X, kt. [...], verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta farbanni allt til þriðjudagsins 16. febrúar 2016, kl. 16:00.
Kærði mótmælir kröfu lögreglustjóra.
I
Í greinargerð með kröfu lögreglustjóra segir að lögregla hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnalagabrot er varði innflutning á sterkum fíkniefnum hingað til lands.
Hinn 28. september 2015 hafi lögregla lagt hald á rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem fundist hafi í bifreið sem staðsett var við gistiheimili að [...] í [...]. Tveir erlendir aðilar hafi verið handteknir inni í húsinu, grunaðir um aðild að innflutningi fíkniefnanna hingað til lands. Annar þeirra hafi komið með bifreiðina hingað til lands með ferjunni Norrænu 22. september 2015. Lögregla hafi verið með eftirlit með bifreiðinni með fíkniefnunum í nokkra daga. Við það eftirlit hafi lögregla ítrekað orðið vör við aðra bifreið sem virst hafi fylgja hinni eftir. Við frekari skoðun lögreglu hafi komið í ljós að um var að ræða bílaleigubifreiðar sem meðkærði Y hafi verið skráður leigutaki að. Þá hafi lögregla einnig borið kennsl á kærða X í bifreiðinni. Kærði hafi verið handtekinn 28. september 2015 ásamt fleirum og hafi sætt gæsluvarðhaldi um hríð í þágu rannsóknar málsins.
Lögreglustjóri segir kærða hafa neitað sök við skýrslutöku hjá lögreglu. Framburði kærða beri ekki saman við þau gögn sem lögregla hafi undir höndum, framburð meðkærðu og vitna. Í framburði meðkærðu hjá lögreglu hafi komið fram að erlendir aðilar hafi tekið þátt í skipulagningu innflutningsins og hafi þeir verið í samskiptum eða í samstarfi við aðila hér á landi sem fylgst hafi með ferðum bifreiðarinnar. Það sé hald lögreglu að kærði og meðkærði Y hafi verið samstarfsmenn þessara aðila hér á landi.
Við skoðun á haldlögðum gögnum hafi margt komið fram sem styrki grun lögreglu um aðild kærða að innflutningnum. Við leit á heimili kærða hafi fundist myndavél og við skoðun á henni hafi fundist minniskort sem notað hafi verið í farsíma hans. Á því korti hafi fundist myndir frá því fyrr í sumar af ferjunni Norrænu áður en henni var lagt að bryggju á Seyðisfirði. Einnig myndir sem sýni akstur bifreiða frá Norrænu, sem og umhverfið í kringum skipið. Við leit á heimili og í bifreið kærða hafi jafnframt fundist kassar utan af Blackberry símum. Einn kassinn hafi verið utan af síma sem meðkærði Y hafi verið með við handtöku. Telji lögregla að sá sími hafi verið notaður í samskiptum við erlenda samverkamenn. Við rannsókn lögreglu á símanum hafi komið í ljós að símtækið hafi eingöngu verið hægt að nota í þeim tilgangi að eiga dulkóðuð textasamskipti. Kærði hafi ekkert viljað kannast við að hafa átt eða keypt símtæki sem þetta. Í bifreið kærða hafi enn fremur fundist blað þar sem fram komi upplýsingar sem lögregla telji tengjast ofangreindum innflutningi fíkniefnanna hingað til lands. Þar hafi meðal annars verið að finna kortanúmer Ikorta sem lögregla telji að hafi verið notuð til að fjármagna innflutninginn. Þá hafi þar verið að finna upplýsingar um flutning á bifreið frá Hollandi til Íslands.
Með heimild Héraðsdóms Reykjaness hafi lögregla skoðað síma og fjármálagögn kærða. Við þá skoðun hafi margt komið fram sem styrki grun lögreglu. Ljóst sé að kærði hafi nokkuð fjármagn á milli handanna og svo virðist vera sem mikið fjármagn sé að fara á milli hans og meðkærða Y, bæði hér á landi og erlendis. Kærði segi þrátt fyrir það mjög lítil fjárhagsleg tengsl vera á milli sín og meðkærða Y. Við skoðun á fjármálagögnum tvímenninganna hafi komið í ljós að á tímabilinu frá 21. ágúst til 25. ágúst 2015 hafi kærði lagt rúmlega 4,3 milljónir króna inn á Ikort. Alls hafi verið lagðar rúmlega 9 milljónir inn á 30 Ikort á tímabilinu frá 22. júlí til 10. september 2015. Þá hafi rúmlega 7 milljónir verið teknar út af kortunum í hraðbönkum erlendis. Lögregla hafi í höndum gögn sem sýni úttektir af Ikortum í hraðbönkum í Hollandi dagana 12.-17. september sl., en fíkniefnin hafi komið hingað til lands 22. sama mánaðar. Kærði hafi neitað að tjá sig um það hver eða hverjir hafi tekið út þessa peninga sem hann lagði inn á Ikortin. Við leit í bifreið kærða hafi fundist símanúmer en það símanúmer hafi verið notað til að virkja hluta þeirra Ikorta sem lögregla hafi lagt hald á. Lögregla telji að þessir peningar hafi verið notaðir til að greiða fyrir fíkniefnasendinguna. Þá hafi komið í ljós að kærði hafi ítrekað keypt flugferðir fyrir meðkærða Y en aðspurðir hafi þeir báðir neitað að tjá sig um það hjá lögreglu.
II
Lögreglustjóri vísar til þess að rannsókn lögreglu sé vel á veg komin. Hún sé að hluta til unnin í samstarfi við erlend yfirvöld og beinist meðal annars að því að hafa uppi á samverkamönnum kærðu í Hollandi, en einnig hafi verið óskað eftir aðstoð annarra erlendra lögregluyfirvalda. Óskað hafi verið eftir húsleitum og skýrslutökum og vinni lögregla nú að þeim aðgerðum í samstarfi við erlend yfirvöld.
Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september 2015 í fullar 12 vikur og hafi Hæstiréttur Íslands slegið því föstu með dómi sínum í máli nr. 791/2015, uppkveðnum 27. nóvember sl., að fullnægt væri skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 hvað kærða varðaði. Frá 22. desember sl. hafi kærði sætt farbanni á grundvelli úrskurðar héraðsdóms. Farið sé fram á að kærði verði úrskurðaður í áframhaldandi farbann á grundvelli 100. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga. Kærði sé undir sterkum grun um aðild að broti sem varðað geti allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Lögregla telji kærða eiga mikla aðild að málinu og tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Því verði að telja ætlað brot kærða mjög alvarlegt og þess eðlis að uppfyllt séu í ljósi dómaframkvæmdar skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, svo fallist verði á kröfu lögreglustjóra.
Lögreglustjóri telji að einnig megi líta til b-liðar 1. mgr. 95. gr. laganna til stuðnings kröfunni, en verði kærði sakfelldur fyrir þau brot sem hann sé grunaður um eigi hann yfir höfði sér þungan dóm. Því megi ætla að kærði kunni að reyna að komast úr landi eigi hann þess kost. Brýnt sé að tryggja nærveru kærða á meðan mál hans sé til meðferðar fyrir yfirvöldum hér á landi og því nauðsynlegt að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans er til lykta leitt.
III
Með dómi Hæstaréttar 27. nóvember 2015 í máli nr. 791/2015 var því slegið föstu að fullnægt væri skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um gæsluvarðhald yfir kærða. Að þessu gættu þykja vera fyrir hendi skilyrði til að honum verði gert að sæta farbanni, sbr. 1. mgr. 100. gr. laganna. Verður því fallist á kröfu lögreglustjóra svo sem hún er fram sett.
Úrskurð þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, kt. [...], skal sæta farbanni allt til þriðjudagsins 16. febrúar 2016, kl. 16:00.