Hæstiréttur íslands

Mál nr. 754/2016

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Guðmundur Þórir Steinþórsson fulltrúi)
gegn
X (Snorri Snorrason hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun á meðan á því stæði.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. nóvember 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum samdægurs. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 7. nóvember 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 14. nóvember 2016 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að vægara úrræði verði beitt. Að því frágengnu krefst hann þess að sér verði ekki gert að sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

                                                         Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 7. nóvember 2016.

                Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að X, kt. [...] verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 16. nóvember 2016, kl. 16.00 og að honum verði gert að sæta einangrun á meðan gæsluvarðhaldi stendur.

                Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að lögreglan hafi undanfarið haft til rannsóknar lögreglumál nr. 008-2016-13836 er varði innflutning á ætluðum ávana- og fíkniefnum hingað til lands. Hinn 27. október hafi tilkynning borist frá tollvörðum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um að Y hefði verið stöðvaður í komusal, vegna gruns um að hann kynni að hafa fíkniefni falin í fórum sínum í kjölfar komu til landsins með flugi [...] frá [...]. Hafi hann greint frá því að innvortis hefði hann 41 pakkningu af kókaíni, sem tæknirannsókn hafi leitt í ljós að hafi verið 275,97 af kókaíni, að óþekktum styrkleika.

Undanfarið hafi lögregla unnið að því að upplýsa um og hafa hendur í hári vitorðsmanna Y hér á landi og liggi fyrir upplýsingar í rannsóknargögnum málsins um aðild kærða X að málinu. Hafi hann verið handtekinn um borð í flugi [...] við komuna frá [...] 6. nóvember sl. og þeir munir sem hann hafði meðferðis haldlagðir í þágu rannsóknar málsins. Hafi hann verið færður til yfirheyrslu í kjölfar handtöku. Kaus hann að tjá sig ekki um sakarefnið og vildi ekki svara spurningum lögreglu.

Rannsókn málsins er nokkuð á veg komin en hvergi nærri lokið. Er nú unnið að því að upplýsa um hvernig staðið var að innflutningi fíkniefnanna og beinist rannsóknin að því að upplýsa um hlutverk kærða í innflutningnum. Telji lögregla sig þurfa svigrúm til að vinna nánar úr þeim gögnum sem hún hafi undir höndum auk þess sem fyrirliggjandi séu frekari aðgerðir í þágu rannsóknar málsins. Í ljósi þess sem fram hafi komið við rannsóknina sé nauðsynlegt að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi og að sama skapi nauðsynlegt að honum verði gert að sæta einangrun.

Verið er að rannsaka innflutning á hættulegum ávana- og fíkniefnum sem að mati lögreglu hafi verið flutt hingað til lands í þeim tilgangi að selja þau til ótiltekins fjölda fólks. Að mati lögreglustjóra sé fyrir hendi rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst brotlegur við ákvæði laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Að mati lögreglustjóra eru lagaskilyrði uppfyllt fyrir því að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar. Ætla megi að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Séu þannig uppfyllt skilyrði a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni telji lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni standa til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 16. nóvember 2016, kl. 16.00.

Þess er einnig krafist að kærða verði gert að sæta einangrun, sbr. b. lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, á meðan gæsluvarðhaldi stendur með vísan til framangreindra rannsóknarhagsmuna.

                Samkvæmt framangreindu og rannsóknargögnum málsins er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir rökstuddum grun um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Rannsókn málsins er nokkuð á veg komin, en ljóst að kærði getur, haldi hann óskertu frelsi sínu, torveldað rannsókn málsins með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni. Er þannig fullnægt skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Að virtum rannsóknarhagsmunum ber að fallast á kröfu lögreglustjóra um að kærði sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Samkvæmt þessu verður fallist á kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum með þeim hætti sem í úrskurðarorði greinir.

                Úrskurð þennan kveður upp Jón Höskuldsson héraðsdómari. 

Úrskurðarorð:

Kærða, X kt. [...], er gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 14. nóvember 2016, kl. 16.00.

Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.