Hæstiréttur íslands

Mál nr. 297/2005


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. D. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Mánudaginn 4

 

Mánudaginn 4. júlí 2005.

Nr. 297/2005.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(enginn)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. D.liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli d. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. júlí 2005, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 1. júlí 2005, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 29. júlí 2005 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurður verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 1. júlí 2005.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, [kt. og heimilisfang], verði með vísan til d-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó ekki lengur en til föstudagsins 29. júlí 2005 kl. 16:00.   

          Atvikum málsins er lýst í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 20. maí sl., sem staðfestur var með dómi Hæstaréttar 25. sama mánaðar í máli nr. 215/2005, en kærði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 23. apríl sl. Auk þess sem fram kemur í fyrrnefndum úrskurði segir í beiðni rannsóknara að 28. júní sl. hafi ríkissaksóknari gefið út ákæru gegn kærða fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. og  1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga vegna árásar á nafngreindan mann og fyrir hótanir í hans garð. Þá hafi lögreglustjórinn í Reykjavík gefið út ákæru á hendur honum vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni og fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa haft í hótunum við nafngreindan mann og fjölskyldu hans. Í ákærum þessum sé þess aðallega krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar en til vara að honum verði gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun, sbr. 62. gr. almennra hegningarlaga.

          Rannsóknari telur rannsóknargögn bera með sér að nafngreindum manni og öðrum manni stafi mikil hætta af kærða og bera með sér að kærði hafi færst mjög í aukana síðustu dagana fyrir handtöku hans. Í niðurstöðu geðrannsóknar sem Tómas Zoëga, geðlæknir, framkvæmdi á ákærða komi fram að kærði sé veikur á geði og sé enn hættulegur öðrum. Telji geðlæknirinn að brýna nauðsyn beri til að hann fái viðeigandi meðferð og að mikilvægt sé að hann sæti öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Rannsóknari vísar til d-liðs 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 til stuðnings kröfunni.

          Af hálfu kærða er kröfu um gæsluvarðhald mótmælt. Hann telur nægilegt að hann sæti nálgunarbanni og er hann tilbúinn að fallast á slíkt bann. Þá telur hann þá geðrannsókn sem rannsóknari vísar til vera ólögmæta af ýmsum ástæðum. Verði ekki dregnar ályktanir af rannsókninni um að hann sé hættulegur öðrum.

Varnaraðili hefur setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli d-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 frá 23. apríl 2005. Með vísan til dóms Hæstaréttar 25. maí sl. í máli nr. 215/2005 og gagna málsins verður skilyrðum umrædds ákvæðis talið fullnægt fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Er þá einnig litið til þess að gefnar hafa verið út ákærur í málinu og verður ekki séð að  óhæfilegur dráttur hafi orðið á rannsókn né ákvörðun um ákæru. Samkvæmt þessu verður fallist á kröfu rannsóknara um gæsluvarðhald eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Skúli Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

             Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó ekki lengur en til föstudagsins 29. júlí 2005 kl. 16.00.

 

 

                                                                                                .