Hæstiréttur íslands
Mál nr. 221/2003
Lykilorð
- Kærumál
- Barnavernd
- Vistun barns
- Gjafsókn
|
Fimmtudaginn 19. júní 2003. |
|
|
Nr. 221/2003. |
X (Hilmar Ingimundarson hrl.) gegn Barnaverndarnefnd Reykjavíkur (Hjörleifur B. Kvaran hrl.) |
Kærumál. Barnavernd. Vistun barns. Gjafsókn.
Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms þar sem barnaverndarnefnd var heimilað að vista dóttur X utan heimilis hennar í tólf mánuði.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg Benediktsdóttir.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. júní 2003, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 10. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 26. maí 2003, þar sem fallist var á kröfu varnaraðila um að honum yrði heimilað að vista dóttur sóknaraðila utan heimilis hennar í tólf mánuði. Kæruheimild er í 64. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Sóknaraðili krefst þess aðallega að hafnað verði kröfu varnaraðila, en til vara að vistuninni verði markaður skemmri tími. Þá krefst hún málskostnaðar í héraði og kærumálskostnaðar án tillits til gjafsóknar, sem henni hefur verið veitt á báðum dómstigum.
Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður staðfest sú niðurstaða hans að varnaraðila sé heimilt að vista dóttur sóknaraðila utan heimilis hennar í tólf mánuði.
Fyrir héraðsdómi gerði sóknaraðili meðal annars kröfu um að varnaraðila yrði gert að greiða sér málskostnað. Til þeirrar kröfu var ekki tekin afstaða með hinum kærða úrskurði. Þrátt fyrir það eru ekki næg efni til að ómerkja úrskurðinn, heldur verður ákvörðun tekin með dómi þessum um málskostnað í héraði. Rétt er að hann falli niður ásamt kærumálskostnaði.
Samkvæmt 61. gr., sbr. 1. mgr. 60. gr. barnaverndarlaga átti sóknaraðili rétt á gjafsókn vegna málsins í héraði og fyrir Hæstarétti. Sóknaraðili gætti þess ekki fyrir héraðsdómi að leita á grundvelli þessarar heimildar eftir því að dómsmálaráðherra veitti henni gjafsókn eftir almennum reglum XX. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, svo sem nauðsyn bar til, sbr. meðal annars dóm Hæstaréttar 27. september 2001 í máli nr. 102/2001. Úr því hefur á hinn bóginn verið bætt undir rekstri málsins fyrir Hæstarétti með því að dómsmálaráðherra hefur nú veitt sóknaraðila gjafsókn á báðum dómstigum. Fer um gjafsóknarkostnað hennar í héraði og fyrir Hæstarétti samkvæmt því, sem í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur um annað en gjafsóknarkostnað.
Málskostnaður í héraði og kærumálskostnaður fellur niður.
Allur gjafsóknarkostnaður sóknaraðila, X, í héraði og fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun Þuríðar Halldórsdóttur héraðsdómslögmanns, 25.000 krónur, og Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, samtals 250.000 krónur.