Hæstiréttur íslands
Mál nr. 393/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Þriðjudaginn 22. júní 2010. |
|
Nr. 393/2010. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Sigmundur Hannesson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 18. júní 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 18. júní 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 2. júlí 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 17. júní 2010.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess með vísan til framlagðra gagna og a-liðar 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi þar allt til föstudagsins 2. júlí 2010, kl. 16.00. Þá er þess einnig krafist að kærðu verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfellt fíkniefnabrot. Við tolleftirlit í gærdag hafi tollverðir og lögregla fundið mikið magn fíkniefna, sjá nánar meðfylgjandi efnaskýrslu, í bifreiðinni [...], við komuna til Seyðisfjarðar með Norrænu.
Kærða, sem var farþegi bifreiðarinnar, hafi neitað allri aðild að málinu.
Rannsókn málsins sé á frumstigi, en hér sé um að ræða gífurlegt magn hættulegra fíkniefna, sem kærða sé undir rökstuddum grun um að hafa flutt til landsins.
Ljóst sé að taka þurfi frekari skýrslur af kærðu, meðkærðu X og hugsanlegum vitnum málsins. Þá liggi fyrir lögreglu að reyna að hafa uppi á öðrum sakborningum, bæði hér á landi og erlendis.
Í ljósi þess að rannsókn málsins sé á viðkvæmu stigi sé afar brýnt að krafa lögreglustjóra verði tekin til greina, þannig að kærða fái ekki tækifæri til að torvelda rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Mikið magn fíkniefna fannst í bifreið þeirri, sem kærða ók við komu hennar til landsins í gær. Kærða hefur neitað sök. Kærða er undir rökstuddum grun um brot gegn 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem varðað getur allt að 12 ára fangelsi. Um er að ræða umfangsmikið brot á fíkniefnalöggjöfinni og rannsókn þess enn á frumstigi. Er fallist á með lögreglu að brýnir hagsmunir séu fyrir því að kærðu verði gert að sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hennar er til rannsóknar, enda verður að telja hættu á að hún geti spillt fyrir rannsókn málsins gangi hún laus svo sem með því að hafa áhrif á vitni eða samseka. Með vísan til framangreinds, hjálagðra gagna og a- liðar 1. mgr. 95. gr. um meðferð sakamála nr. 88/2008, er krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til greina, eins og hún er fram sett, en eins og á stendur þykir ekki ástæða til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma. Þá verður fallist á kröfu um að kærða sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldsvistinni stendur.
Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð:
Kærða, X, skal sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 2. júlí 2010 kl. 16.00. Þá skal hún sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.