Hæstiréttur íslands
Mál nr. 630/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Karl Axelsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 30. september 2017 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. október sama ár. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 27. september 2017 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 25. október 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Fallist er á það að fram sé kominn rökstuddur grunur um að varnaraðili hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við og að fullnægt sé skilyrðum c. liðar 1. mgr. 95. ger. laga nr. 88/2008. Samkvæmt því verður hinn kærði úrskurður staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur miðvikudaginn 27. september 2017
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X kt. […] verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 25. október 2017 kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að kærði hafi verið handtekin um kl. 17.00 í gær eftir að óskað hafi verið eftir aðstoð lögreglu á heimili móður hans að [...] í [...]. Þegar að lögregla hafi komið á vettvang hafi X verið farinn af vettvangi, en komið aftur á meðan að rannsóknarlögreglumaður hafi verið á staðnum. Móðir X, A og systir hans B, hafi lýst því að X hefði verið í slæmu ástandi eftir að hafa tekið of mikið af lyfjum daginn áður sem orðið hafi til þess að hann missti meðvitund. Hann hafi svo verið nokkuð „akrisífur“ þegar að hann hafi verið sóttur á Landspítalann vegna þessa. Þegar að hann hafi vaknað í morgun hafi hann viljað tala við B systur sína og hún komið á heimilið til þess að ræða við hann. Þegar að B hafi komið í íbúðina hafi X komið öskrandi á móti henni en farið svo í eldhússkúffu þar sem að hann hafi sótt sér hníf til að ógna með. Móðir X A hafi gengið á milli, en lögregla komið á vettvang skömmu síðar.
Á lögreglustöð hafi verið framkvæmd þvagsýnaprufa á X sem hafi sýnt jákvæða svörun á OPI og THC.
"Mál nr. [...]
Þann [...] september 2017 afskipti höfð af X við [...] í Reykjavík. X í annarlegu ástandi, við leit lögreglu fannst hnífur á honum sem lagt var hald á.
Á lögreglustöð var framkvæmd þvagsýnaprufa á X sem sýndi jákvæða svörun á AMP,COC og BZO.
Mál nr. [...]
Þann [...] ágúst 2017 hafði lögregla afskipti af X þar sem að hann svaf vímusvefni í aftursæti bifreiðar sem stöðvuð var í akstri af lögreglu. Þá hafði hann í vörslum sínum 6,55 g af amfetamín.
Mál nr. [...]
Þann [...] júlí var lögregla kölluð til vegna skothvella í Heiðmörk. Á vettvangi var X handtekin ásamt öðrum aðila. Lýstu vitni því að því er fram kemur í frumskýrslu lögreglu að X hefði skotið af byssu umrætt sinn auk þess sem hann er grunaður um að hafa beint byssuni að fólki.
Framkvæmd var þvagsýnataka á X sem sýndi jákvæða svörun á AMP, MET og COC.
Tekið var blóðsýni úr X og mældist 475 ng/ml af amfetamín og 135 ng/ml af MDMA.
Mál nr. [...] og [...]
Málin varða meintar hótanir, eignaspjöll og fjárkúgun. X sætir nú nálgunarbanni vegna þessara mála samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-[...]/2017."
Kærða hafi með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli S-[...]/2015 verið gert að sæta fangelsi í fimm ár en refsingu hans hafi verið frestað og skyldi hún falla niður að liðnum fimm árum héldi hann hvort tveggja almennt og sérstakt skilorð. Með hinu sérstaka skilorði hafi verið ákveðið að dómfelldi sætti á skilorðstímanum umsjá barnaverndar til fullnaðs 18 ára aldurs en eftir það umsjón Fangelsismálastofnunar. Skyldi dómfelldi á skilorðstímanum hlíta fyrirmælum umsjónaraðila um dvalarstaði, sálfræði,- og geðlæknismeðferð, menntun, vinnu, umgengni við aðra menn og notkun tómstunda. Jafnframt skyldi hann hvorki neyta áfengis, deyfilyfja né fíkniefna af neinu tagi á skilorðstímanum.
Með hliðsjón af þeim málum sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar og að teknu tilliti til skilorðsrofa X sé að mati lögreglu vafalaust að kærði muni hljóta óskilorðsbundna refsingu fái hann dóm fyrir þau brot sem nú séu til rannsóknar enda hafi hann rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum hafi verið sett í skilorðsbundnum dómi í skilningi c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála. Þá sé það mat lögreglu að líkur séu til þess að hann muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna, enda í mikilli neyslu fíkniefna.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna c. og d liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Niðurstaða:
Til rannsóknar eru brot kærða sem varðað geta fangelsisrefsingu, m.a. í ljósi þess að hann hafi rofið skilorð samkvæmt öðrum dómi. Kærði er undir rökstuddum grun eins og lögregla hefur útskýrt og gögn málsins bera með sér. Móðir kærða hefur greint frá því að hún telji fullvíst að kærði hefði lagt til systur sinnar með hnífi í gær á heimili hennar ef hún hefði ekki gengið á milli. Fallast verður á með sóknaraðila að líklegt sé að kærði haldi áfram brotastarfsemi sinni fari hann frjáls ferða sinna, og jafnframt að systur hans og jafnvel öðrum geti stafað ógn af kærða. Einnig verður að telja miðað við framlögð gögn að fyrir liggi rökstuddur grunur um að kærði hafi rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum voru sett í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu nr. S-[...]2015 frá [...] 2015, en með þeim dómi var kærði sakfelldur fyrir m.a. tilraun til manndráps með því að hafa stungið annan mann fimm sinnum með hnífi með 21,3 cm blaði og sérstaklega hættulega líkamsárás þegar hann var talinn af ráðnum hug hafa stundið annan mann í kviðinn. Kærði var dæmdur til fimm ára fangelsisvistar en vegna einkum ungs aldurs var sú refsing skilorðsbundin til fimm ára.
Fallist er því á með sóknaraðila að skilyrði 1. mgr., sbr. og c og d-liða 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála, séu uppfyllt. Krafa sóknaraðila um gæsluvarðahald er því tekin til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Lárentsínus Kristjánsson héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærða, X, kt. […] er gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 25. október 2017 kl. 16:00.