Hæstiréttur íslands

Mál nr. 140/2006


Lykilorð

  • Kærumál
  • Matsbeiðni


Fimmtudaginn 23

 

Fimmtudaginn 23. mars 2006.

Nr. 140/2006.

Íslensk fasteign ehf.

(Viðar Lúðvíksson hrl.)

gegn

þrotabúi Logns ehf.

(Heimir Örn Herbertsson hrl.)

 

Kærumál. Matsbeiðni.

Skilyrði voru talin fyrir hendi til að þrotabú L fengi dómkvaddan matsmann til að svara nánar tilgreindum spurningum.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Árni Kolbeinsson og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. mars 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 17. febrúar 2006, þar sem tekin var til greina krafa varnaraðila um dómkvaðningu matsmanns. Kæruheimild er í c. lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og hafnað beiðni varnaraðila um dómkvaðningu matsmanns. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Varnaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar og kærumálskostnaðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Sóknaraðili greiði varnaraðila kærumálskostnað eins og nánar greinir í dómsorði.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Sóknaraðili, Íslensk fasteign ehf., greiði varnaraðila, þrotabúi Logns ehf., 100.000 krónur í kærumálskostnað.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 17. febrúar 2006.

I

Málið barst dóminum 21. desember sl.  Það var þingfest 10. febrúar sl. og tekið til úr­skurðar 15. febrúar sl.

Matsbeiðandi er skiptastjóri þrotabús Logns ehf., Sundagörðum 2, Reykjavík.

Matsþoli er Íslensk fasteign ehf., Hátúni 6a, Reykjavík.

Matsbeiðandi kveður málavexti vera þá að Logn ehf. hafi keypt fasteignir að Berg­þórugötu 23 og Laugavegi 5 með kaupsamningi 16. janúar 2004.  Með í kaup­unum að Bergþórugötunni hafi fylgt ónýttur byggingarréttur.  Fljótlega eftir kaupin hafi fasteignirnar og rekstur þeirra verið færð yfir í sérstakt félag sem er matsþoli.  Í mats­beiðni segir svo um þau viðskipti:  “Matsþoli tók yfir veðskuldir fasteignanna með yfirlýsingu, dags. 29. janúar 2004, en greiddi hins vegar ekki mismun skulda og mark­aðsvirðis fasteignanna til Logns ehf., eins og eðlilegt er í fasteignaviðskiptum.  Eftir það sendi matsþoli inn fyrirspurn til byggingarfulltrúa þar sem spurt var hvort heimilað yrði að byggja 3ja hæða viðbyggingu ásamt þakhæð með samtals 4 íbúðum við norðurhlið Bergþórugötu 23.  Hlaut sú fyrirspurn jákvætt svar þann 17. febrúar 2004.”  Logn ehf. var úrskurðað gjaldþrota 29. júní 2005.

    Matsbeiðandi byggir á því að viðskiptin við matsþola hafi falið í sér óeðli­legan gjafagerning sem hafi orðið til þess að Logn ehf. hafi orðið gjaldþrota.  Vísar hann til ákvæða 131. gr., sbr. 1. mgr. 141. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. máli sínu til stuðnings. 

   Matsbeiðandi hyggst höfða mál gegn matsþola til greiðslu bóta og krefst þess að dómkvaddur verði matsmaður til að meta eftirfarandi:

“a) Hvert var markaðsverð heildareignarinnar að Bergþórugötu 23 (fastanúmer 200-8233, 200-8234, 200-8235, 200-8236, 200-8237, 200-8238, 200-8239, 200-8240, 200-8241 og 200-8242) í janúar 2004, með öllu sem því fylgir og fylgja bar, þ.m.t. bygg­ingarrétti fyrir 4 nýjum íbúðum.

b)                Hvert var markaðsverð heildareignarinnar að Bergþórugötu 23 (fastanúmer 200-8233, 200-8234, 200-8235, 200-8236, 200-8237, 200-8238, 200-8239, 200-8240, 200-8241 og 200-8242) í janúar 2004, með öllu sem því fylgir og fylgja bar, þ.m.t. bygg­ingarrétti fyrir 3 nýjum íbúðum.

c)                Hvert var markaðsverðmæti fasteignarinnar að Laugavegi 5 (fastanúmer 200-4402, 200-4403 og 200-4404) í janúar 2004.”

Matsbeiðandi krefst þess að matsþoli verði úrskurðaður til að greiða sér máls­kostnað í þessum þætti málsins.

Af hálfu matsþola er þess krafist að synjað verði um dómkvaðninguna og matsbeiðandi úrskurðaður til að greiða matsþola málskostnað. 

Matsþoli kveður Logn ehf. hafa átt umræddar eignir í einn dag og framselt þær mats­þola á nákvæmlega sömu kjörum og það hafði eignast þær á.  Ástæða þessa hafi verið sú að Logn ehf. hafi boðið í eignirnar án fyrirvara um fjármögnun.  Félaginu hafi ekki tekist að fjármagna kaupin og þar sem seljandinn hafi aðeins viljað skipta við félagið, sem var tilboðsgjafi í eignirnar, hafi það orðið úr að félagið var skráður kaup­andi eignanna, en framseldi þær síðan til matsþola sem gat fjármagnað kaupin. 

Matsþoli byggir á því að byggingarrétturinn, sem beðið sé um að verði metinn, sbr. a og b liði hér að framan, sé ekki fyrir hendi og þess vegna sé grundvöllur mats­beiðn­innar rangur og hún sé ekki í samræmi við ákvæði 1. mgr. 61. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð einkamála.  Þá sé matsbeiðnin þarflaus þar eð íbúðirnar hafi verið keyptar á markaðsverði sem sé hið eina rétta verð fyrir þær.  Við kaupin hafi legið fyrir allar upplýsingar um eignirnar, þ.m.t. upplýsingar um mögulegan bygg­ing­ar­rétt.  Loks er byggt á því að matsbeiðnin sé þarflaus þar eð sömu verðmæti hafi verið fólgin í eignunum sem Logn ehf. keypti og þeim sem það seldi síðar matsþola.  Mats­beiðandi hafi því ekki lögvarða hagsmuni af því að fá dómkvaddan matsmann og beri að hafna kröfu hans.

II

Það er ætlun matsbeiðanda að höfða mál á hendur matsþola til greiðslu bóta eins og rakið var.  Í því skyni hefur hann beiðst dómkvaðningar matsmanns til að afla sönn­unargagna og leggja þar með grundvöll að kröfugerð sinni í væntanlegu dóms­máli.  Það er ekki hlutverk dómsins á þessi stigi málsins að taka afstöðu til þeirra atriða, sem mótmæli matsþola byggja á og að framan voru rakin.  Þau atriði snúa annars vegar að því að ekki hafi verið byggingarréttur á Bergþórugötu 23 og hins vegar að eignirnar hafi verið seldar við sama verði og þær voru keyptar á.  Þessi atriði eru hins vegar þess eðlis að það eru hagsmunir matsbeiðanda að fá mat óháðs manns um þau, sbr. 1. mgr. 60. gr. laga nr. 91/1991.  Verður því orðið við kröfu hans, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga.

Matsþoli skal greiða matsbeiðanda 40.000 krónur í málskostnað.

Arngrímur Ísberg héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð.

Dómkvaddur skal matsmaður til að meta framangreind atriði sem tiltekin eru í mats­beiðni matsbeiðanda, þrotabús Logns ehf.

Matsþoli, Íslensk fasteign ehf., greiði matsbeiðanda 40.000 krónur í málskostnað.