Hæstiréttur íslands
Mál nr. 713/2017
Lykilorð
- Niðurfelling máls
- Málskostnaður
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Benedikt Bogason og Valtýr Sigurðsson fyrrverandi ríkissaksóknari.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 13. nóvember 2017. Með bréfi til réttarins 1. júní 2018 tilkynnti áfrýjandi að hann félli frá áfrýjun málsins fyrir Hæstarétti. Af hálfu stefnda er gerð krafa um málskostnað fyrir Hæstarétti.
Með vísan til c. liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 190. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála verður málið fellt niður fyrir Hæstarétti.
Samkvæmt 2. mgr. 130. gr., sbr. 190. gr. laga nr. 91/1991 verður áfrýjandi dæmdur til að greiða málskostnað fyrir Hæstarétti eins og greinir í dómsorði.
Dómsorð:
Mál þetta er fellt niður.
Áfrýjandi, ACE Handling ehf., greiði stefnda, Má Jóhanni Löve, 500.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti.