Hæstiréttur íslands

Mál nr. 147/1999


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi
  • Farbann


Fimmtudaginn 8

Fimmtudaginn 8. apríl 1999.

Nr. 147/1999.

Ákæruvaldið

(Helgi Magnús Gunnarsson fulltrúi)

gegn

Sixtusi Mbah Nto

(Hilmar Magnússon hdl.)

             

Kærumál. Gæsluvarðhaldsúrskurður felldur úr gildi. Farbann.

S, erlendur ríkisborgari búsettur á Íslandi, hafði verið ákærður fyrir skjalafals og fjársvik. Eins og málinu var komið, þótti ekki nægilega hafa verið sýnt fram á að þörf væri frekara gæsluvarðhalds S til þess eins að tryggja návist hans í þágu meðferðar málsins, en krafa um framlengingu gæsluvarðhalds var eingöngu studd við b. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Var úrskurður héraðsdóms um að S sætti gæsluvarðhaldi því felldur úr gildi, en hann þess í stað látinn sæta farbanni.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir og Hjörtur Torfason.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 31. mars 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 6. apríl. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 31. mars 1999, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins  21. apríl nk. kl. 16:00. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega, að úrskurður héraðsdóms verði felldur úr gildi, til vara að í stað gæsluvarðhalds verði honum gert að halda sig á ákveðnu svæði eða bönnuð brottför af landinu og til þrautavara að gæsluvarðhald verði stytt. Hann krefst einnig kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Varnaraðili er erlendur ríkisborgari, en hefur verið búsettur hér á landi um nokkurt skeið. Hinn 30. mars sl. var gefin út á hendur honum og Osaito Phamzet Iyorah ákæra fyrir skjalafals og fjársvik. Varnaraðili var handtekinn í Leifsstöð 22. febrúar sl., þar sem hann hugðist halda af landi brott. Hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 23. sama mánaðar.

Af hálfu sóknaraðila er krafa um gæsluvarðhald nú eingöngu studd við b. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Eins og málinu er nú komið hefur ekki nægilega verið sýnt fram á að þörf sé gæsluvarðhalds varnaraðila til þess eins að tryggja návist hans í þágu meðferðar þess. Verður hinn kærði úrskurður felldur úr gildi en varnaraðila bönnuð brottför af landinu samkvæmt 110. gr. laga nr. 19/1991, eins og greinir í dómsorði.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er felldur úr gildi.

Varnaraðila, Sixtusi Mbah Nto, er bönnuð brottför frá Íslandi allt til miðvikudagsins 21. apríl 1999 kl. 16:00.