Hæstiréttur íslands

Mál nr. 513/2005


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald


Miðvikudaginn 7

 

Miðvikudaginn 7. desember 2005.

Nr. 513/2005.

Ríkislögreglustjóri

(Þórir Oddsson vararíkislögreglustjóri)

gegn

X

(Sveinn Andri Sveinsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 15. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum og  b. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og  Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. desember 2005, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 6. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. desember 2005, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 19. desember 2005 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Skilja verður kröfugerð varnaraðila svo að hann krefjist þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Utanríkisráðherra barst 2. desember 2005 beiðni grískra yfirvalda um framsal varnaraðila eftir diplomatískum leiðum, sbr. 12. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum. Er beiðnin reist á því, að varnaraðili sé grunaður um að hafa gerst sekur um manndráp í Grikklandi 25. desember 2004. Beiðni þessi er nú til meðferðar hér á landi í samræmi við ákvæði II. kafla laganna.

Varnaraðili var handtekinn 14. nóvember 2005. Þann dag sem gæsluvarðhaldstími samkvæmt hinum kærða úrskurði rennur út, verður ekki liðinn sá 40 daga frestur sem vikið er að í 4. mgr. 16. gr. Evrópusamnings um framsal sakamanna frá 13. desember 1957, en Ísland er aðili að samningi þessum. Ekki verður fallist á með varnaraðila að ekki megi taka til greina kröfu um gæsluvarðhald í tengslum við framsalsbeiðni nema íslenskir dómstólar leggi sjálfstætt mat á grunsemdir sem erlent ríki vísar til er það óskar framsals. Með vísan til 15. gr. laga nr. 13/1984, sbr. b. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, og með hliðsjón af hinum alvarlegu sakargiftum sem beinast að varnaraðila í Grikklandi, verður hinn kærði úrskurður staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

         

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 5. desember 2005.

Ríkislögreglustjóri hefur krafist þess að X, fd. 22. júní 1972, verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til mánudagsins 19. desember 2005 kl. 16.00. Vísað er til 15. gr. laga um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum nr. 13/1984 og til b.-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

Í greinargerð ríkislögreglustjóra kemur fram að hinn 9. nóvember 2005 hafi ríkislögreglustjóranum borist beiðni grískra dómsmálayfirvalda um framsal X, albansks ríkisborgara. Ríkislögreglustjórinn hafi tilkynnt dómsmála­ráðu­neytinu um framsalbeiðnina og ríkissaksóknari hafi einnig verið upplýstur um málið.

Samkvæmt framsalsbeiðninni sé kærða gefið að sök að hafa þann 25. desember 2004, af ásetningi, banað manni með skotvopni svo sem nánar sé lýst í meðfylgjandi skjölum. Grísk yfirvöld hafi farið fram á við íslensk stjórnvöld að kærði verði þegar handtekinn, úrskurðaður í gæsluvarðhald og framseldur til Grikklands. Jafnframt lýsi þau því yfir að framsalsbeiðnin verði send eftir diplómatískum leiðum til dómsmál­ráðu­neytisins og innan þess tímaramma sem settur sé fram í Evrópusamningi um fram­sal sakamanna frá 1957.

Kærði hafi komið hingað til lands þann 20. september sl., með flugi FI-319  frá Oslo og hafi framvísað fölsuðum skilríkjum við komuna til landsins, nánar tiltekið fölsuðu albönsku vegabréfi og fölsuðu grísku nafnskírteini (special Identity Card for Alien).  Við rannsókn málsins hjá lögreglu hafi kærði sagst heita X, vera albanskur ríkisborgari og fæddur þann 22. júní 1972. Í málinu liggi fyrir staðfesting frá Albaníu um að kærði sé X og staðfesting frá Grikklandi um að kærði sé grunaður um framangreindan verknað og framsals verði krafist. Kærði hafi sótt um hæli og hafi hann þá verið færður til Reykjanesbæjar á gistiheimilið FIT, Fitjabraut 6b, þar sem hælisleitendur séu vistaðir meðan mál þeirra séu til meðferðar hjá Útlendinga­stofnun. Með ákvörðun Útlendingastofnunar þann 27. september sl. hafi kærða verið synjað um hæli og frávísað frá landinu.

Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli hafi gefið út ákæru á hendur kærða þann 30. september sl. og hafi hann í Héraðsdómi Reykjaness þann sama dag verið dæmdur í 45 daga fangelsi og þegar hafið afplánun. Kærði hafi lokið afplánun dómsins þann 14. nóvember sl. en verið þann sama dag, að kröfu ríkislögreglustjórans, úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. desember. Úrskurðurinn hafi sætt kæru til Hæstaréttar sem staðfesti úrskurðinn sbr. mál nr. 479/2005.

Þann 2. desember sl. hafi framsalsbeiðnin komið fram til dómsmála­ráðu­neytisins eftir diplómatískum leiðum og hafi ráðuneytið sent ríkissaksóknara framsals­beiðnina til rannsóknar. Afstaða kærða til framsals liggi ekki fyrir en leitað verði eftir afstöðu hans fyrir dómi.

Til að tryggja nærveru kærða meðan framsalsmálið sé til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum og með hliðsjón af alvarleika sakargiftanna sé þess krafist að kærði verði úrskurðaður í gæsluvarðhald  með vísan til 15. gr. laga nr. 13/1984 og b.-liðar 1. mgr. og 2. mgr.  103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Að öðru leyti með vísan til gagna málsins sem fylgi í ljósriti sé kröfu þessari beint til Héraðsdóms Reykjavíkur

Íslenskum yfirvöldum hefur borist krafa frá yfirvöldum í Grikklandi um það að kærði verði framseldur þangað. Kröfu þessari fylgja gögn sem dómaranum þykja vekja rökstuddan grun um það að kærði hafi gerst sekur um manndráp í Grikklandi 25. desember sl. Er framsalsmálinu ólokið.  Með hliðsjón af því hve brot það er alvarlegt sem kærði er grunaður um ber að fallast á að nauðsynlegt sé að tryggja nærveru hans meðan framsalsmálið er til meðferðar hér.  Eins og mál þetta er vaxið kemur ekki til álita að beita vægari úrræðum en gæsluvarðhaldi til að tryggja nærveru hans.

Með vísan til 19. gr. laga nr. 13/1984 svo og til b-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 teljast lagaskilyrði uppfyllt og ber því að taka kröfu ríkislögreglustjóra til greina.

Úrskurðarorð:

Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarð­haldi allt til mánudagsins 19. desember 2005 kl. 16.00.