Hæstiréttur íslands

Mál nr. 570/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


         

Þriðjudaginn 6. nóvember 2007.

Nr. 570/2007.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Bjarni Hauksson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

 

X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 8. nóvember 2007 á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson, Hjördís Hákonardóttir og Páll Hreinsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. nóvember 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 2. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 1. nóvember 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 8. nóvember 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst aðallega staðfestingar hins kærða úrskurðar. Til vara krefst hann þess að fallist verði á varakröfu hans sem lögð hafi verið fram í málinu um að varnaraðila yrði gert „að sæta áfram gæsluvarðhaldi og þá á grundvelli almannahagsmuna“, sbr. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Í héraði krafðist sóknaraðili þess aðallega, að varnaraðili sætti gæsluvarðhaldi til 8. nóvember 2007. Til vara gerði hann kröfu um gæsluvarðhald til 14. desember 2007 og þar með um lengri tíma en í aðalkröfu greindi. Virðist skýringa á þessum hætti við kröfugerðina vera að leita í því að inn í hana var skeytt tilvísunum til lagaákvæða sem kröfurnar voru sagðar byggjast á. Slík tilvísun tilheyrir lagarökum fyrir kröfu og verður ekki tekin í hana sjálfa hvorki við gerð kröfunnar né í dómsorði þar sem tekin er afstaða til hennar. Eðli málsins samkvæmt hlýtur varakrafa jafnan að ganga skemur en aðalkrafa og kemur hún ekki til álita í máli nema svo standi á. Hér verður að líta svo á að sóknaraðili hafi í héraði krafist gæsluvarðhalds yfir varnaraðila til 8. nóvember 2007. Þá kröfu hafi hann aðallega stutt við a. lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 en til vara við 2. mgr. sömu lagagreinar. Krafan var tekin til greina í hinum kærða úrskurði á grundvelli fyrrnefnda ákvæðisins. Kröfugerð og málatilbúnaður sóknaraðila fyrir Hæstarétti verður með hliðsjón af þessu skýrður svo að hann krefjist aðeins staðfestingar hins kærða úrskurðar og byggi þá kröfu á sömu lagatilvísunum aðallega og til vara sem í héraði.

Varnaraðili hefur lýst samþykki sínu við að verða gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Hann mótmælir því hins vegar að gæsluvarðhald verði byggt á rannsóknarhagsmunum samkvæmt a. lið 1. mgr. 103. gr. laganna.

Í skýrslu hjá lögreglu 18. október 2007 játaði varnaraðili aðild að fíkniefnabroti því sem lögregla rannsakar. Þann dag var kveðinn upp úrskurður um framlengingu gæsluvarðhalds yfir honum til 1. nóvember 2007 vegna rannsóknarhagsmuna en sóknaraðili hafði krafist framlengingar til 8. nóvember 2007. Rökstuðningur sóknaraðila þá fyrir því að skilyrði a. liðar 103. gr. laga nr. 19/1991 væru uppfyllt laut að sömu atriðum og hann byggir kröfu sína á nú og varða fjármögnun viðskipta með þau fíkniefni sem málið varðar. Féllst héraðsdómur á þessi rök í úrskurði sínum en stytti gæsluvarðhaldstímann frá kröfu sóknaraðila. Var úrskurðurinn staðfestur með vísan til forsendna í Hæstarétti 22. október 2007 í máli nr. 551/2007. Sóknaraðili hefur ekki sýnt fram á í þessu máli hvers vegna þessi tími hafi ekki dugað til að rannsaka þau atriði sem hér um ræðir og verður fallist á með varnaraðila að ekki séu efni til að framlengja gæsluvarðhald yfir honum frekar á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Svo sem að framan greinir hefur varnaraðili játað aðild að broti því sem hann er grunaður um og eru því uppfyllt skilyrði 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, eins og ákvæðið hefur verið skýrt í hliðstæðum málum, fyrir gæsluvarðhaldi varnaraðila. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.    

                                      

                                    Úrskurður Héraðsdóms Reykja­víkur 1. nóvember 2007.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], [heimilisfang], Kópavogi, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 8. nóvember 2007, kl. 16:00 (vegna aðalkröfu) eða allt til fimmtudagsins 14. desember 2007 og/eða uns dómur gengur í hans málum (vegna varakröfu):

a) á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. a-lið 1. mgr. 103. gr. laga um       meðferð opinberra mála nr. 19/1991 til fimmtudagsins 8. nóvember 2007, kl.         16:00 (aðalkrafa)      

eða

b) á grundvelli almannahagsmuna, sbr. 2. mgr. 103. gr. sömu laga til              fimmtudagsins 14. desember 2007 og/eða uns dómur gengur í hans máli              (varakrafa).

Í kröfu lögreglustjóra kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsaki ætlaðan innflutning á stórfelldu magni fíkniefna til Íslands. Um kl. 6:00 þann 20. september sl. hafi A og B lagt skútu við bryggju á Fáskrúðsfirði og hafi þeir verið handteknir af lögreglu í kjölfarið vegna gruns um fíkniefnamisferli, en þeir hafi reynt að koma sér undan með því að sigla skútunni frá bryggju þegar þeir urðu lögreglu varir. Um borð í skútunni hafi fundist mikið magn af fíkniefnum. Litlu seinna hafi C ekið bifreiðinni Y að bryggjunni, en lögreglumenn þekkt hann sem grunaðan í þessu máli og hafi hann því verið handtekinn vegna rannsóknar málsins. Séu vísbendingar um að þeir A og Bi hafi strax eftir afhendingu fíkniefnanna til C ætlað að sigla til baka til Noregs. Kærði og D hafi síðar átt að fá fíkniefnin afhent fyrir milligöngu aðila sem hlutverk hafi í skipulagi þessarar brotastarfsemi.

Lögregla hafi í langan tíma búið yfir upplýsingum um skipulagningu inn­flutnings og dreifingar fíkniefna í miklu magni þar sem m.a. kærði sé talinn eiga hlut að máli. Formleg lögreglurannsókn málsins hafi staðið yfir síðan í nóvember á síðasta ári og á þeim tíma hafi verið fylgst grannt með kærða og Di og það eftirlit leitt til þess að lögregla handtók B, A og C á Fáskrúðsfirði þann 20. september sl. eftir að skútan lagði að bryggju. Bæði kærði og D séu taldir tengjast umræddum innflutningi og sé það ætlun lögreglu að þeir hafi tekið þátt í að fjármagna og skipuleggja hann. Við rannsókn málsins hafi meðal annars komið í ljós að kærði hafi tekið þátt í að senda peninga til Færeyja þegar B og A voru í Færeyjum vegna viðgerðar á skútunni. Hafi C verið ásamt kærða þegar peningarnir voru sendir. Kærði og D séu m.a. taldir láta af hendi peninga sem notaðir hafi verið til greiðslu þess kostnaðar sem fallið hafi til við brotastarfsemi þessa. 

Gögn og upplýsingar sem fundist hafi og aflað hafi verið gefi mynd af málinu og hlutverkum þeirra sem því tengist. Meðal þess sem hafi fundist hjá C við handtöku á Fáskrúðsfirði hafi verið gögn með upplýsingum sem svari til upplýsinga og áætlana sem séu í dagbók sem fannst hjá kærða, en í gögnum séu upplýsingar um símanúmer hjá kærða [...]. Talið sé að fíkniefnunum hafi verið pakkað í Kaupmannahöfn m.a. af D  í Danmörku og hafi all margir aðilar verið handteknir þar og yfirheyrðir vegna málsins. Þá hafi E verið handtekinn vegna málsins og sæti nú gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknar­hagsmuna en þáttur hans sé talinn hafa átt að vera að taka við fíkniefnasendingunni frá C þegar hún kæmi til landsins og geyma hana í sumarhúsi rétt austan Hellu á Rangárvöllum.

Grunsemdir, byggðar á nýjum upplýsingum, séu um að með sömu verknaðaraðferð hafi umtalsverðu magni fíkniefna verið komið til landsins með skútu til Fáskrúðsfjarðar árið 2005. Lögreglu hafi borist ábendingar um að skútan Z hafi verið notuð í þeirri ferð til þess að flytja fíkniefni til landsins, en skútan sé í eigu kærða og bróður hans F. Þá liggi fyrir grunur lögreglu um að kærði ásamt samverkamönnum sínum hafi notað ágóðann af sölu og dreifingu þeirra fíkniefna til þess að fjármagna þann fíkniefnainnflutning sem átti sér stað 20. september sl. Kærði hafi verið yfirheyrður vegna málsins.

Rannsókn þessa máls sem sé mjög umfangsmikil hafi miðað ágætlega en fram til þessa hafi rannsókn miðað að því að upplýsa um innflutning fíkniefnanna til Fáskrúðsfjarðar í september s.l. Rannsóknarmenn hafi yfirheyrt fjölda manns hér á landi og aflað upplýsinga í samræmi við það. Þá hafi lögregla í Danmörku, Noregi og víðar í Evrópu einnig unnið að rannsókninni bæði með rannsóknaraðgerðum samkvæmt ósk frá íslenskum yfirvöldum og með því að rannsóknarmenn lögreglu­stjórans á höfuðborgarsvæðinu hafa unnið í nefndum löndum við hlið hinna erlendu rannsóknarmanna að margskonar lögregluvinnu í þágu málsins. Þessi rannsókn hafi nú á síðustu vikum rennt enn frekari stoðum undir grunsemdir um aðild kærðu að umfangsmiklu og skipulögðu smygli og dreifingu á fíkniefnum til landsins allt frá árinu 2005 sem sé, eins og rakið hafi verið, einnig til rannsóknar.

Rökstuðningur aðalkröfu:

Kærði þyki vera undir rökstuddum grun um aðild að fíkniefnabroti. Meint aðild kærða sé talin varða skipulagningu, fjármögnun, útvegun og pökkun fíkniefnanna erlendis og flutningur þeirra til Íslands til dreifingar hér. Nauðsynlegt sé að upplýsa nánar um hvernig fjármögnun brotsins hafi farið fram, en sterkur grunur lögreglu sé fyrir því að kærði hafi fjármagnað umræddan innflutning með smygli fíkniefna til landsins í byrjun árs 2005 og sölu og dreifingu hér á landi. Rannsókn snúi nú að fjármálum kærða og fjármálatengslum við aðra með tilliti til eignamyndunar og notkun kærða á fjármunum á tímabilinu frá árinu 2004 til 2007, en talið sé að kærði flytji inn og selji fíkniefni í hagnaðarskyni og sér og öðrum til framfærslu. Nú hafi farið fram gagnaöflun með tilliti til fjármálaumsvifa kærða og gagnaúrvinnsla sem talin sé að geti skýrt fjárhagslegan ávinning og afrakstur af meintum brotum kærða og tengsl kærða við ætlaða vitorðsmenn, en kærði sé grunaður um þátttöku í skipulögðum innflutning fíkniefna og peningaþvætti. Rannsókn málsins  miði áfram, en málið sé talið umfangsmikið. Nú þegar hafi farið fram yfirheyrslur yfir kærða og grunuðum vegna peningafærslna tengdum bankareikningum kærða en nauðsynlegt sé að yfirheyra nokkra aðila í viðbót sem grunaðir séu um að hafa aðstoðað kærða við meinta fjármögnun á kaupum fíkniefnanna. Þá séu þessir sömu aðilar grunaðir um meint peningaþvætti. Sé nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi, en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í samband við þessa meintu vitorðsmenn sem enn gangi lausir og eftir eigi að yfirheyra eða þeir geti sett sig í samband við hann eða kærði komið undan gögnum sem hafi sönnunargildi sem ekki hafi verið lagt hald á. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus. Einnig sé nauðsynlegt að rannsaka nánar fjármál kærða.

Rökstuðningur varakröfu:

Unnið sé að úrvinnslu gagna en rannsókn málsins sé umfangsmikil og verði flýtt eftir föngum. Flest gögn hafi borist lögreglu erlendis frá en ekki öll, þó muni þau berast á næstunni. Þá séu framundan frekari yfirheyrslur af meintum samverka­mönnum kærða sem taldir séu tengjast fjármögnun fíkniefnakaupanna. Kærði þyki vera undir sterkum rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnabroti. Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 20. september sl. en með úrskurði héraðsdóms frá 20. september 2007 hafi kærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grv. a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sem seinna hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 483/2007. Með úrskurði héraðsdóms þann 18. október sl. hafi kærði verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til dagsins í dag einnig á grv. a-liðar sama ákvæðis. Sá úrskurður hafi einnig verið staðfestur með dómi Hæstaréttar nr. 551/2007.

Meint aðild kærða þyki mikil en hann sé talin tengjast skipulagningu, fjármögnun, útvegun og pökkun fíkniefnanna erlendis eins og áður hafi verið nefnt. Einnig sé lagt til grundvallar að um sé að ræða mjög mikið magn sterkra og hættulegra fíkniefna. Nær öruggt þyki að fíkniefnin hafi átt að fara í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Hið meinta brot kærða, sem hann hafi þegar játað aðild að, þyki mjög alvarlegt. Með tilliti til hagsmuna almennings þyki þannig nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sé til meðferðar en telja verði að ef sakborningur, sem orðið hafi uppvís að jafn alvarlegu broti og kærði, gangi laus áður en máli lýkur með dómi þá valdi það hneykslun í samfélaginu og særi réttarvitund almennings. Staða kærða í málinu þykir sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. mál Hæstaréttar nr.: 376/2006, 377/2006, 378/2006, 154/2006, 368/2005, 93/2005, 488/2004, 269/2004, 417/2000 og 471/1999, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi fram að dómi þegar legið hefur fyrir rökstuddur grunur um beina aðild að innflutningi af miklu magni fíkniefna í hagnaðarskyni. Sé ekki talin ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst frá því téðir dómar voru uppkveðnir, og sé talið að skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sé fullnægt í því máli sem hér um ræði.

Lögreglan kveðst vera að rannsaka ætluð brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og megi ætla að ef þau sönnuðust, þá myndu þau geta varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk þess sé verið að rannsaka brot gegn 264. gr. sömu laga.  Um heimild til gæsluvarðhalds hvað varðar aðalkröfu vísar lögreglan til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála, en hvað varðar varakröfu er vísað til 2. mgr. 103. gr. sömu laga.

Fyrir liggur samkvæmt gögnum málsins að rannsókn fer fram á fjármálum kærða og fjármálatengslum hans við aðra með tilliti til eignamyndunar og notkunar kærða á fjármunum á tímabilinu frá árinu 2004 til 2007 en eins og rakið er hér að framan er talið að kærði hafi flutt inn og selt fíkniefni í hagnaðarskyni. Yfirheyrslur hafa farið fram yfir kærða og grunuðum vegna peningafærslna tengdum banka­reikningum kærða en að mati lögreglunnar er nauðsynlegt að yfirheyra fleiri í þessu sambandi. Er fallist á að skilyrðum a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 sé fullnægt en telja verður að kærði geti sett sig í samband við meinta vitorðsmenn, sem enn á eftir að yfirheyra, og komið undan gögnum og þannig spillt rannsókn málsins sem ekki er enn lokið. Fallast ber því á aðalkröfu lögreglustjórans á höfuðborgar­svæðinu eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Kristjana Jónsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

                                               Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 8. nóvember 2007, kl. 16:00.