Hæstiréttur íslands
Mál nr. 122/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 25. febrúar 2013. |
|
Nr. 122/2013.
|
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. a. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Viðar Már Matthíasson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 21. febrúar 2013, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 21. febrúar 2013, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 7. mars 2013 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og að honum verði ekki gert að sæta einangrun.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 21. febrúar 2013.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess fyrir dóminum í dag að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að Ö, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 7. mars 2013 kl. 16:00. Þá er þess krafist að honum verði gert að sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Kærði hefur mótmælt gæsluvarðahaldskröfunni.
Í greinargerð lögreglustjóra segir að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi til rannsóknar stórfelldan innflutning á fíkniefnum frá Kaupmannahöfn. Um hafi verið að ræða tæp 20 kíló af amfetamíni og tæpa tvo lítra af amfetamínvökva, sem flutt hafi verið hingað til lands með pósti, en lögregla hafi lagt hald á sendingarnar 21. og 24. janúar sl.
Í þágu rannsóknar málsins hafi lögregla handtekið og yfirheyrt átta sakborninga, þ.m.t. kærða Ö, og sæti nú alls fimm einstaklingar gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna málsins.
Lögregla hafi undir höndum myndbandsupptökur þar sem sjá megi meðkærðu Y, Z og Þ póstleggja þann 19. janúar sl. þær sendingar er innihaldið hafi umrædd 20 kíló af amfetamíni. Lögregla bíði hins vegar enn eftir myndbandsupptökum úr pósthúsi þar sem amfetamínvökvinn hafi verið póstlagður þann 22. janúar sl.
Um klukkan 11:00 í gær hafi kærði Ö verið handtekinn vegna gruns um aðild að umræddum fíkniefnainnflutningi. Í skýrslutökum hjá lögreglu hafi kærði neitað allri aðild sinni að málinu.
Í máli þessu liggi fyrir mikil símasamskipti milli kærða Ö og meðkærða Y á meðan Y var í Kaupmannahöfn í umrætt sinn. Lögregla vinni nú að því að kortleggja og greina símasamskipti þeirra og annarra sakborninga, þ.m.t. sms-skilboð.
Þá liggi og fyrir að kærði Ö sótti meðkærða Y er hann kom til landsins 23. janúar sl. og hafi lögregla fylgst með því þegar kærði tók Y upp í bifreið sína við Keflavíkurflugvöll og ók honum að heimili hans við [...] í [...]. Þaðan hafi þeir ekið upp í [...] í [...], þar sem lögregla hafi fylgst með þeim ganga um móana.
Við rannsókn málsins hafi komið fram í framburði tveggja sakborninga, þ.e. X og Z, sem báðir sæta nú einangrun vegna málsins, að Y hafi greint þeim frá því að hann væri með mann á sínum vegum, starfsmann tollsins, sem ætti að tryggja að umræddar póstsendingar kæmust í gegnum tollafgreiðslu. Hafi þeir báðir borið um það að umræddur starfsmaður tollsins væri frændi Y, hann væri [...], væri [...] og æki um [...]bifreið.
Í greinargerðinni segir að kærði Ö, sem starfi sem tollvörður [...], sé móðurbróðir meðkærða Y. Þá sé hann [...] og aki um á [...] bifreið.
Í málinu liggi fyrir að eftir samskipti meðkærða Y og kærða Ö hinn 23. janúar hafi Y greint meðkærða Z frá því að lögregla væri búin að haldleggja póstsendingarnar og að lögregla fylgdist með ferðum Y. Segir í greinargerðinni að það sé grunur lögreglu að kærði Ö hafi upplýst Y um haldlagningu fíkniefnanna og að lögregla fylgdist með ferðum hans.
Í greinargerðinni segir að kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að afbroti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um sé að ræða stórfelldan innflutning á fíkniefnum, sem þyki víst að hafi átt að fara í sölu og dreifingu hér á landi.
Rannsókn málsins sé vel á veg komin, en þó hvergi nærri lokið. Nauðsynlegt sé að taka frekari skýrslur af kærða og öðrum sakborningum, auk vitna. Þá bíði lögregla enn gagna frá Danmörku, auk frekari bankagagna að því er varðar kærða og aðra sakborninga. Þá sé og enn unnið við rannsókn á símagögnum kærða og annarra sakborninga. Allt séu þetta atriði sem kunni að varpa frekara ljósi á málið. Afar brýnt sé að vernda rannsóknarhagmuni málsins, sem teljist engan veginn upplýst. Ljóst megi vera að gangi kærði frjáls ferða sinna þá kunni hann að torvelda og spilla rannsókninni, s.s. með því að koma undan munum sem hafa sönnunargildi í málinu eða hafa áhrif á aðra samverkamenn.
Með vísan til framangreinds sé það mat lögreglustjóra að lagaskilyrðum rannsóknargæslu sé fullnægt. Með skírskotun til þess, framlagðra gagna, a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Kærði er undir rökstuddum grun um brot, sem varðað getur allt að 12 ára fangelsi. Ljóst þykir að rannsókn málsins er umfangsmikil og teygir m.a. anga sína út fyrir landsteinana. Alls hafa sjö sakborningar verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins, þar af sæta fimm þeirra enn gæsluvarðhaldi. Rannsókn málsins er ekki lokið, en talsverðs ósamræmis gætir í framburði kærða og annarra sakborninga í málinu og á eftir að taka frekari skýrslur af þeim og vitnum í málinu. Þá eiga eftir að berast frekari gögn frá Kaupmannahöfn, sem og gögn frá bönkum og öðrum fjármálastofnunum um bankaviðskipti kærða og annarra sakborninga. Jafnframt er unnið að rannsókn á gögnum frá síma- og fjarskiptafyrirtækjum að því varðar símasamskipti hinna grunuðu. Með hliðsjón af framangreindu þykir því mega ætla að kærði geti torveldað rannsókn málsins með því að skjóta undan munum eða hafa áhrif á vitni eða samseka fari hann frjáls ferða sinna. Með vísan til alls framangreinds þykir fullnægt skilyrðum a. liðar 1. mgr. 95. gr. og b. liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, til að verða við kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að kærði sæti gæsluvarðhaldi og einangrun eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærði, Ö, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 7. mars nk. kl. 16:00.
Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.