Hæstiréttur íslands

Mál nr. 112/2000


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Mánudaginn 20

 

Mánudaginn 20. mars 2000.

Nr. 112/2000.

 

Ákæruvaldið

(Kolbrún Sævarsdóttir settur saksóknari)

gegn

Ólafi Ágústi Ægissyni

(Páll Arnór Pálsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að Ó skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Haraldur Henrysson, Arnljótur Björnsson og Markús Sigurbjörnsson.

          Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. mars 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 17. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 14. mars 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 26. apríl 2000 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá er krafist kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykja­víkur 14. mars 2000.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 að Ólafi Ágústi Ægissyni, kt. 141072-3079, Írabakka 26, Reykjavík, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl nk., kl. 16.00. 

[...]

Samkvæmt því sem hér að framan hefur verið rakið er rannsókn málsins lokið og bárust málsgögn embætti ríkissaksóknara þann 2. mars sl.

Í málinu liggur fyrir játning kærða um aðild að stórfelldu fíkniefnamisferli sem staðið hefur yfir með skipulegum hætti um langan tíma.  Er því sterkur grunur um að kærði hafi framið brot sem varðað geti hann allt að 10 ára fangelsi samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.  Þá þykir brotið þess eðlis að gæsluvarðhald teljist nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna.  Mál þetta er verulega umfangsmikið og eðlilegt að nokkurn tíma taki að vinna að útgáfu ákæru og leggja á það dóm.  Ákæra mun þó verða gefin út alveg á næstu dögum samkvæmt gögnum málsins. 

Samkvæmt þessu er fallist á kröfu ríkissaksóknara og kærði úrskurðaður til að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl 2000 kl. 16.00.

Valtýr Sigurðsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærði, Ólafur Ágúst Ægisson, kt. 141072-3079, sæti gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 26. apríl 2000, kl. 16:00.