Hæstiréttur íslands

Mál nr. 691/2011


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Föstudaginn 23. desember 2011.

Nr. 691/2011.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Björgvin Jónsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi áfram, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma Ólafur Börkur Þorvaldsson hæstaréttardómari og Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson settir hæstaréttardómarar.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. desember 2011 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. desember 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 19. janúar 2012 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. desember 2011.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að [X], til að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 19. janúar 2012 kl. 16. 

Í greinargerð lögreglu kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi nú til rannsóknar skotárás á bifreið [Z], en skotið hafi verið tvívegis á bifreið hans föstudaginn 18. nóvember sl., þar sem hann hafi ekið bifreiðinni í Bryggjuhverfi Reykjavíkur. 

Brotaþoli, [Z], og vitni sem hafi verið farþegi í bifreiðinni, lýsi atvikum þannig að meðkærði [Y], sem nú sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins, hafi boðað [Z] á sinn fund að kvöldi föstudagsins 18. nóvember sl. vegna tiltekinnar fíkniefnaskuldar.

Er [Z] og umrætt vitni hafi komið akandi á bifreið [Z] á bifreiðaplani við bílasöluna [...] í Reykjavík, hafi meðkærði [Y] ekið bifreið sinni í veg fyrir bifreið [Z]. Út úr bifreið [Y] hafi stigið þrír menn, þ.e.  [Y] sjálfur og tveir menn sem hafi hulið andlit sín og hafi annar mannanna verið með haglabyssu í hendi. Hafi [Z] þá reynt að aka bifreið sinni aftur á bak frá mönnunum, en annar mannanna þá skotið úr byssunni og hafi höglin lent á framenda bifreiðarinnar. Eftir þetta hafi [Y] og mennirnir tveir farið inn í bifreið [Y] og ekið mjög greitt á eftir [Z]. Er [Z] hafi komið að hringtorgi við bifreiðaumboð [...] við Sævarhöfða hafi [Y] ekið bifreið sinni upp að bifreið hans og hafi þá verið skotið öðru sinni á bifreiðina, með þeim afleiðingum að afturrúðan mölbrotnaði og hafi m.a. högl hafnað í farþegasæti bifreiðarinnar.

Sunnudaginn 20. nóvember sl. hafi meðkærði [Y] verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald, sem hefur verið framlengt nú síðast með úrskurði héraðsdóms reykjavíkur 16. desember sl. til 13. janúar 2012, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála.

Þann 8. desember sl. hafi kærði [X] verið úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi vegna málsins til dagsins í dag kl. 16, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands nr. 662/2011.  Hafi [X] neitað aðild sinni að málinu.  Hafi hann sagst hafa verið heima hjá sér umrætt kvöld.

Í máli þessu liggi fyrir framburður meðkærða [Y] um að hann, kærði [X], ásamt [T], hafi staðið að umræddri skotárás.  Þá liggi fyrir að símar þeirra allra hafi tengst sendi við Sævarhöfða á þeirri stundu sem verknaðurinn hafi átt sér stað.  Samkvæmt framburði [...].

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi hér til rannsóknar afar alvarlegt afbrot, þ.e. lífshættulega skotárás, sem hafi augljóslega verið liður í uppgjöri tveggja manna vegna fíkniefna.  Að mati lögreglu sé hér um að ræða afbrot sem framið hafi verið með skipulögðum og verkskiptum hætti af hópi manna sem kenni sig við tiltekin glæpasamtök.

Telja verði að lagaskilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála sé fullnægt í máli þessu, enda sé kærði [X] nú undir sterkum grun um aðild að tilraun til manndráps, þannig að varði við 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en slík brot varði allt að ævilöngu fangelsi.  Þá sé brot hans svo svívirðilegt að almannahagsmunir krefjist þess að honum verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála er þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Kærði er undir sterkum grun um aðild að tilraun til manndráps samkvæmt 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga og getur meint brot varðað allt að 16 ára fangelsi. Um alvarlegt brot er að ræða. Er fallist á það með lögreglustjóra að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt.  Kærði sæti því gæsluvarðhaldi eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Kærði, [X], skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 19. janúar 2012 kl. 16.