Hæstiréttur íslands

Mál nr. 257/2016

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari)
gegn
X (Ómar Örn Bjarnþórsson hdl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Farbann

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr., sbr. b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma Benedikt Bogason hæstaréttardómari og Hjördís Hákonardóttir og Ingveldur Einarsdóttir settir hæstaréttardómarar.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 5. apríl 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 5. apríl 2016 þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram farbanni allt til þriðjudagsins 3. maí 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að farbanninu verði markaður skemmri tími. Að því frágengnu krefst hann þess að farbanninu verði ekki markaður lengri tími en þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 3. maí 2016 kl. 16.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með skírskotun til forsenda hins kærða úrskurðar verður fallist á að fullnægt sé skilyrðum 1. mgr. 100. gr., sbr. b. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til að varnaraðila verði gert að sæta farbanni. Samkvæmt kröfu sóknaraðila fyrir héraðsdómi og síðari varakröfu varnaraðila hér fyrir dómi verður hinn kærði úrskurður staðfestur á þann veg sem greinir í dómsorði.

Dómsorð:

Varnaraðili, X, sæti farbanni þar til dómur fellur í máli hans, en þó ekki lengur en til 3. maí 2016 kl. 16.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 5. apríl 2016

Héraðssaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, fæddur [...], verði gert að sæta áfram farbanni þar til dómur fellur í máli hans, en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 3. maí 2016, kl. 16.00.

Af hálfu varnaraðila er kröfunni mótmælt og þess krafist að henni verði hafnað en til vara að farbanni verði markaður skemmri tími.

Í greinargerð héraðssaksóknara segir að þann 22. september sl. hafi ákærði komið hingað til lands ásamt erlendri konu á bifreiðinni [...] með ferjunni Norrænu. Ákærði, X, hafi verið umráðamaður bifreiðarinnar [...]. Lögreglan hafi verið með eftirlit með bifreiðinni þar sem henni hafi verið ekið til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22. – 25. september. Föstudaginn 25. september hafi ákærði farið með flugi frá Íslandi, en skilið bifreiðina eftir á bifreiðastæði við Keflavíkurflugvöll. Ákærði hafi komið aftur til landsins þann 28. september og sótt bifreiðina. Hann hafi ekið sem leið lá inn í [...] að gistiheimili við [...] í [...]. Ákærði hafi þar hitt meðákærða A og hafi báðir verið handteknir af lögreglu stuttu eftir komu þeirra í húsnæðið. Bifreiðin hafi verið haldlögð af lögreglu og við leit í henni hafi fundist rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem búið hafi verið að fela í bifreiðinni. Alls hafi fjórir aðilar verið handteknir vegna málsins og hafi þeir allir sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar þess.

                Með ákæru héraðssaksóknara dagsettri 5. þ.m., sé ákærða X gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa á árinu 2015 staðið saman ásamt meðákærðu að innflutningi á 19.448,96 g af amfetamíni og 2.597,44 g af kókaíni frá Hollandi til Íslands ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni, eins og nánar greinir í ákæruskjali. Ákærði þykir vera undir sterkum grun um aðild að broti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Að mati ákæruvaldsins þykir meint aðild ákærða mikil en hún sé talin tengjast flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Þá sé um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna að ræða.

Ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september, nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. R-467/2015, en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Þar sem ákærði sætti gæsluvarðhaldi í 12 vikur án þess að mál hafi verið höfðað á hendur honum hafi lögregla talið, í samræmi við 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, að ekki væri unnt að úrskurða hann áfram í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Í samræmi við það hafi verið farið fram á og ákærði í kjölfarið verið úrskurðaður í farbann og hafi sá úrskurður verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Síðan hafi Hæstiréttur þrisvar staðfest úrskurði um áframhaldandi farbann yfir ákærða, sbr. dóma í málum nr. 57/2016, 127/2016 og 216/2016. Sé því farið fram á að ákærði verði úrskurðaður í áframhaldandi farbann á grundvelli 100. gr. laga nr. 88/2008. Jafnframt teljist fyrir hendi skilyrði til að úrskurða ákærða í farbann á grundvelli b- liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Ákærði sé erlendur ríkisborgari og hafi engin sérstök tengsl við landið. Sæti hann ekki farbanni megi ætla að hann reyni að komast úr landi til að komast undan málsókn eða fullnustu refsingar. Að mati héraðssaksóknara sé brýnt að tryggja nærveru ákærða á meðan mál hans er til meðferðar fyrir yfirvöldum hér á landi og því nauðsynlegt að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans er til lykta leitt.

Nánar segir í greinargerð að rannsókn lögreglu hafi að hluta til verið unnin í samstarfi við erlend yfirvöld þar sem óskað hafi verið eftir húsleitum og skýrslutökum. Rannsókn lögreglu sé nú lokið og hafi málið verið sent til héraðssaksóknara til ákærumeðferðar þann 7. mars sl. Ákæra vegna málsins hafi verið gefin út í dag, 5. apríl 2016.

                Ákæruvaldið telji að ákærði sé undir sterkum grun um að hafa framið brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt síðari breytingum, sem varði allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til að úrskurða ákærða í farbann er vísað til b- liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 100 gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Með vísan til alls framangreinds og framlagðra gagna málsins er þess beiðst að krafa héraðssaksóknara um farbann nái fram að ganga.

Með dómi Hæstaréttar þann 18. mars 2016 í máli nr. 216/2016, var varnaraðila gert að sæta farbanni til dagsins í dag á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga. Er ekkert fram komið í málinu sem leiðir til þess að ekki séu lengur fyrir hendi skilyrði til að varnaraðila verði gert að sæta farbanni, en rannsókn málsins, sem hefur verið mjög umfangsmikil, er lokið og hefur ákæra verið gefin út. Með vísan til framangreinds er fallist á kröfu héraðssaksóknara um áframhaldandi farbann, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

                Varnaraðili, X, skal sæta farbanni allt til þriðjudagsins 3. maí 2016, kl. 16:00.