Hæstiréttur íslands

Mál nr. 263/2005


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 21

 

Þriðjudaginn 21. júní 2005.

Nr. 263/2005.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Ingimundur Einarsson varalögreglustjóri)

gegn

X

(Sigmundur Hannesson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Hrafn Bragason og Ingibjörg Benediktsdóttir.

Varnaraðili, sem kveðst vera X, skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. júní 2005. Kærumálsgögn bárust réttinum 20. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 16. júní 2005, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 23. júní 2005 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að hún sæti farbanni í stað gæsluvarðhalds.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdóms verði staðfestur.

Samkvæmt gögnum málsins er varnaraðili undir rökstuddum grun um að hafa framið brot, sem geta varðað hana fangelsisrefsingu samkvæmt 155. gr. og 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að þessu gættu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður fallist á að skilyrðum a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 sé fullnægt. Verður úrskurðurinn því staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 16. júní 2005.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að dómurinn úrskurði að kona, sem kveðst vera X, kt. [...], breskur ríkisborgari, sæti gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 23. júní nk. kl. 16.00 á grundvelli a og b-liða 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að þann 9. þ.m. hafi lögreglu borist vitneskja um það frá starfsmönnum Landsbanka Íslands að seldir hefðu verið í útibúum bankans frá 19. – 31. maí sl. fjórir tékkar frá tveimur bönkum í Bandaríkjunum. Hafi endurgreiðslu tékkanna í Bandaríkjunum verið hafnað á þeim forsendum að þeir væru falsaðir (counterfeit). Lögreglan kveðst hafa undir höndum tvo tékkanna samtals að and­virði 18.000 USD sem hafi verið endursendir bankanum. Lögreglu hafi nú borist upplýsingar frá bankanum um að hafnað hafi verið innlausn þriggja annarra tékka, samtals að fjárhæð 18.500 USD. Séu þrír tékkanna framseldir með áritun á nafni Y og tveir með nafni X en eyðublöðin séu prentuð til kærðu sem reiknings­hafa.

Andvirði tékkanna hafi verið lagt inn á bankareikning nr. 101-26-260172, sem Y hafi stofnað 19. maí sl. í bankanum. Sýni myndir úr eftirlitskerfi bankans að maður og kona hafi hvort um sig framvísað tveimur tékkum

Í ljós hafi komið að grunuðu hafi haldið af landi brott  með ferjunni Norrænu 9. júní sl. áleiðis til Hanstholm í Danmörku með viðkomu í Þórshöfn í Færeyjum og Larvik á Hjaltlandi með bifreiðina [...], af gerðinni Toyota Land Cruiser 90,  skráðan 2005, en bifreiðina hafi Y tekið á leigu hjá bílaleigunni Átaki, Kópavogi þann 8. þ.m. til 22. þ.m.  Jafnframt hafi komið í ljós að Y hafi einnig ferðast með ferjunni sömu leið 2. þ.m. og þá með aðra bifreið,  [...], ársgamla af gerðinni MMC Montero, sem hann hafði tekið á leigu hjá bílaleigunni Geysi í Keflavík til 15. þ.m. Ekki sé nú vitað hvar sú bifreið sé niður komin. Af hálfu nefndra bílaleiga hafi verið lögð fram ósk um að lögreglan hlutist til um að finna bifreiðarnar og koma þeim til skila.

Þann 10. þ.m. hafi af hálfu Héraðsdóms Reykjavíkur verið gefin út skipun um handtöku kærðu að beiðni lögreglustjórans í Reykjavík. Þau hafi verið handtekin af lögreglunni í Hanstholm í Danmörku við komu þangað kl. 16 þann 11. þ.m. sl. og hald verið lagt á bifreiðina VU-233. Jafnframt hafi verið lagt hald á 10.000 evrur og 610.000 krónur, sem kærðu hafi haft í fórum sínum við handtöku. Hafi þau á grundvelli hand­tökuskipunarinnar verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 20. þ.m. í héraðsdómi Nyköbing Mors. Sá úrskurður hafi verið staðfestur af Vestre Landsret.

 Þann 14. þ.m. hafi lögreglunni borist ósk Íslandsbanka hf. um opinbera rannsókn vegna ætlaðra fjársvika kærðu. Í kærunni komi fram að 30. maí til 7. júní sl. hafi  kærði selt í útibúum bankans fjóra tékka, samtals að andvirði 4.400 USD og lagt andvirði þeirra inn á bankareikning sinn. Hafi bankanum borist tilkynning (Advice of Dishonour) frá banka í Bandaríkjunum þess efnis  að þrír tékkanna verði ekki greiddir Íslandsbanka. Ekki hafi borist tilkynning vegna tékka sem seldur hafi verið 7. þ.m. Þá hafi bankanum einnig borist tilkynning um að tékki að andvirði 1.000 USD, sem X hafi selt í bankanum, verði ekki greiddur.

Í gær hafi lögreglu borist bréf frá sendiráði Bretlands í Reykjavík um að vegabréfi bresks ríkisborgara að nafni X hafi verið stolið árið 2001. Hafi jafnframt fylgt mynd af réttum handhafa vegabréfsins. Í dag hafi lögreglu borist upplýsingar þess efnis að reikningsnúmer sem tilgreint sé á einum tékkanna, sem kærði Y hafi selt í Landsbankanum, sé ekki gilt.

Lögreglumenn hafi komið með kærðu til landsins um kl. 21 í kvöld. Að tilhlutan dönsku lögreglunnar hafi verið lýst eftir bifreiðinni [...].

Telja verði að sterkur og rökstuddur grunur liggi fyrir um að kærðu hafi staðið saman að því að svíkja út verulegar fjárhæðir í bönkum í Reykjavík og að svíkja út á bílaleigum bifreiðar og haft þær með sér brott af landinu.

Þyki ætluð brot kærðu varða við 1. mgr. 155. og 248. gr. almennra hegningar­laga nr. 19/1940.  Refsing fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. laganna geti varðað allt að 8 ára fangelsi og brot gegn 248. gr. allt að 6 ára fangelsi en verulegir fjárhagslegir hagsmunir séu í húfi.

Bifreiðin [...] sé ekki fundin. Fyrir liggi að yfirheyra kærðu. Ekki liggi enn fyrir fullnægjandi upplýsingar um ætluð fjársvik kærðu í bönkum hér á landi hvað varði umfang og eðli brotanna með tilliti til heimfærslu til refsiákvæða. Að sögn forsvarsmanna Landsbankans og Íslandsbanka sé frekari gagna að vænta frá Bandaríkjunum á næstu dögum. Ætla megi að kærðu nái að spilla sakargögnum og jafnframt að þau muni reyna að komast hjá málsókn með því að hverfa úr landi gangi þau laus.

Fram er komin rökstuddur grunur um að kærða hafi framið verknað sem getur varðað fangelsisrefsingu verði sök sönnuð. Þar sem rannsókn málsins er á byrjunarstigi er hætta á að kærða geti torveldað hana fari hún frjáls ferða sinna með því að hafa samband við aðra sem kunna að tengjast meintu broti og hún hefur tengsl við. Kærða er erlendur ríkisborgari og má ætla að hún myndi reyna að komast úr landi og koma sér þannig undan frekari rannsókn, málsókn og refsingu fari hún frjáls ferða sinna. Þykja því skilyrði a og b liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála vera uppfyllt. Ber með vísan til þessa að taka til greina kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um að kærða sæti gæsluvarðhaldi eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Kærða, kona sem kveðst vera X, kt. [...], breskur ríkisborgari, sæti gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 23. júní nk. kl. 16.00.