Hæstiréttur íslands
Mál nr. 371/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
- Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Föstudaginn 6. október 2000. |
|
Nr. 371/2000. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík (Hjalti Pálmason fulltrúi) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. og B. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. október 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 3. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. september 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 13. október nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar úrskurðar héraðsdóms.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 29. september 2000.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, [...], verði á grundvelli a- og b-liða 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 13. október nk., kl. 16.00 vegna gruns um brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
[...]
Af því sem nú hefur verið rakið er fram kominn rökstuddur grunur um að kærði hafi framið verknað sem fangelsisrefsing er við og þykir fullnægt skilyrðum a- og b-liða 1. mgr. 103. gr. laga 19/1991 að verða við kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um að kærði sæti gæsluvarðhaldi enda ljóst af gögnum málsins að yfirheyra þarf kærða frekar og hugsanlega meðseka og/eða vitni og getur kærði því torveldað rannsókn málsins gangi hann laus. Er því krafa lögreglunnar tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Greta Baldursdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
ÚRSKURÐARORÐ :
Kærði, X sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 13. október nk. kl. 16:00.