Hæstiréttur íslands

Mál nr. 127/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald
  • Framsal


Fimmtudaginn 4. mars 2010.

Nr. 127/2010.

Ákæruvaldið

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)

gegn

X

(Hilmar Ingimundarson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. Framsal.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og 15. gr. laga nr. 13/1984, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Árni Kolbeinsson og Hjördís Hákonardóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. mars 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum daginn eftir. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. mars 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til fullnustuð hefur verið ákvörðun dómsmálaráðherra um að framselja hann til Brasilíu, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 16. mars 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í 24. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að honum verði gert að sæta farbanni.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Hinn 11. desember 2009 ákvað dómsmálaráðuneytið að verða við beiðni brasilískra yfirvalda um framsal varnaraðila. Var sú ákvörðun endanlega staðfest með dómi Hæstaréttar 26. febrúar 2010 í máli nr. 109/2010. Samkvæmt 2. mgr. 15. gr. laga nr. 13/1984, sbr. b. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, má gera varnaraðila að sæta gæsluvarðhaldi þar til framsal er framkvæmt. Verður hinn kærði úrskurður staðfestur.

Þóknun skipaðs verjanda varnaraðila vegna meðferðar málsins í héraði og fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði samkvæmt 2. mgr. 16. gr. laga nr. 13/1984 eins og í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Þóknun skipaðs verjanda varnaraðila, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, í héraði og fyrir Hæstarétti 200.000 krónur greiðist úr ríkissjóði.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. mars 2010.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að varnaraðila, X, fæddum [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar til fullnustuð hefur verið ákvörðun dómsmálaráðherra um að framselja hann til Brasilíu, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 16. mars nk. kl. 16:00.

Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að upphaf máls þessa megi rekja til þess að X (varnaraðili), sem sé brasilískur ríkisborgari, hafi verið handtekinn á Keflavíkurflugvelli þann 9. ágúst sl., er hann framvísaði vegabréfi bróður síns. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness frá 12. ágúst sl. í máli nr. 673/2009 hafi varnaraðila verið gert að sæta 30 daga fangelsi fyrir skjalamisnotkun. Með bréfi brasilíska sendiráðsins í Osló, dags. 7. september sl., hafi dómsmálaráðuneytinu borist beiðni brasilískra dómsmálayfirvalda um framsal varnaraðila, dags. 3. september sl., ásamt fylgigögnum. Framsalsbeiðnin hafi borist ríkissaksóknara með bréfi dómsmálaráðuneytisins, dags. 9. september sl.

Framsalsbeiðnin sé til fullnustu tveggja refsidóma, en í gögnum sem fylgt hafi henni, komi fram að varnaraðili hafi, með dómi héraðsdómstóls í Pouso Alegre, Minas Gerais, frá 24. september 1998, verið dæmdur í 30 ára fangelsi og þrettán mánaða varðhald fyrir rán, mannrán og mótþróa við handtöku. Áfrýjunardómstóll í Minas Gerais hafi endurskoðað refsiákvörðun dómsins og mildað refsinguna í 24 ára fangelsi og 13 mánaða varðhald þann 11. nóvember 2002. Með dómi héraðsdómstóls í Sao Paulo, frá 21. desember 1983, hafi varnaraðili verið dæmdur í fimm ára fangelsi, eins árs varðhald og til greiðslu sektar fyrir vopnað rán. Áfrýjunardómstóll í Sao Paulo hafi mildað refsinguna í tveggja ára fangelsi, auk sektargreiðslu, þann 5. september 1984. Samkvæmt gögnum málsins hafi varnaraðili hafið afplánun í Sao Paulo þann 22. júní 1996 og átt að ljúka henni þann 21. júlí 2021. Þann 23. desember 2008 hafi hann fengið heimferðarleyfi yfir jólin en ekki snúið aftur til afplánunar þann 3. janúar 2009. Hinn 14. s.m. hafi verið gefin út handtökuskipun á hendur honum auk þess sem Interpol hafi gefið út alþjóðlega eftirlýsingu og beiðni um handtöku og gæslu varnaraðila (Red Notice). 

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi kynnt varnaraðila framsalsbeiðnina þann 14. september sl. Hafi hann kannast við að beiðnin ætti við sig, en hafnað framsali. Ríkissaksóknari hafi sent dómsmálaráðuneytinu umsögn með bréfi, dags. 12. október sl., þess efnis, að skilyrði framsals skv. lögum nr. 13/1984 teldust uppfyllt. Ráðuneytinu hafi einnig borist ýmis gögn af hálfu varnaraðila, m.a. varðandi persónulegar aðstæður hans, síðast þann 9. nóvember sl.

Varnaraðili hafi sótt um hæli og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hérlendis en Útlendingastofnun synjað beiðni hans þann 23. október sl. Hafi hann kært ákvörðunina til dómsmálaráðuneytisins og komið jafnframt þeirri afstöðu á framfæri við ráðuneytið með bréfi, dags. 9. nóvember sl., að honum þætti ekki tímabært að ráðuneytið tæki ákvörðun í framsalsmáli hans fyrr en endanleg niðurstaða lægi fyrir í hælismáli hans. Hafi ráðuneytið því ákveðið að fresta töku ákvörðunar í framsalsmálinu, sbr. bréf ráðuneytisins til réttargæslumanns varnaraðila, dags. 12. nóvember sl. Þann 10. desember sl. hafi dómsmálaráðuneytið staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar og þann 11. s.m. hafi ráðuneytið ákveðið að verða við beiðni brasilískra yfirvalda um framsal varnaraðila. Samdægurs hafi hann krafist úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur um hvort skilyrði framsals teldust fyrir hendi, sbr. 14. gr. laga nr. 13/1984. Dómurinn hafi kveðið upp úrskurð þann 26. janúar sl. þar sem ákvörðun ráðuneytisins frá 11. desember sl. hafi verið staðfest, sbr. mál nr. R-615/2009. Varnaraðili  hafi kært úrskurðinn til Hæstaréttar Íslands, sem hafi, með dómi hinn 1. fyrra mánaðar í máli nr. 53/2010, fellt hann úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til löglegrar meðferðar og úrskurðar á ný, þar sem ekki hefði verið tekin afstaða til allra málsástæðna varnaraðila fyrir héraðsdómi. Héraðsdómur Reykjavíkur hafi kveðið  upp úrskurð í málinu að nýju 22. f.m. þar sem ákvörðun ráðuneytisins um framsal hafi verið staðfest. Varnaraðili hafi á ný kært til Hæstaréttar, sem með dómi 28. f.m. hafi staðfest hinn kærða úrskurð. Yfirvöldum í Brasilíu  hafi verið tilkynnt um lyktir málsins og sé þess nú beðið að varnaraðili verði sóttur af yfirvöldum í heimalandi sínu.

Varnaraðili hafi setið í gæsluvarðahaldi vegna framsalsmálsins frá því að afplánun refsidóms hans hér á landi lauk, þ.e. frá 11. september sl., á grundvelli 15. gr. laga nr. 13/1984, sbr. b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, sjá síðast úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-106/2010 frá 16. febrúar sl. Hæstiréttur hafi fjórum sinnum staðfest úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald varnaraðila, síðast með dómi í máli nr. 60/2010 frá 5. febrúar sl.

Varnaraðili hafi engin tengsl við landið og megi því ætla að hann muni reyna að komast úr landi á meðan framsalsmál hans sé til meðferðar hérlendis. Til að tryggja nærveru varnaraðila þar til fullnustuð hefur verið ákvörðun dómsmálaráðherra um að framselja hann til Brasilíu, þyki nauðsynlegt að hann sæti gæsluvarðhaldi þar til framsalsmálið sé til lykta leitt.

Um lagarök er vísað til 15. gr. laga um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum nr. 13/1984 og b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Með vísan til  framangreinds, framlagðra gagna og framangreindra lagaákvæða er þess beiðst að krafan nái fram að ganga.

Af gögnum málsins er ljóst að varnaraðili hefur engin tengsl við Ísland og má því ætla að hann reyni að komast úr landi á meðan framsalsmál hans hefur ekki verið leitt til lykta. Til að tryggja nærveru hans er því nauðsynlegt að hann sæti gæsluvarðhaldi á meðan framsalsmálið er til meðferðar hér á landi. Þar sem uppfyllt þykja skilyrði 15. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, sem og með vísan til b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 er krafa ríkissaksóknara tekin til greina, eins og hún er fram sett.

Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

ÚRSKURÐARORÐ

Varnaraðili, X, fæddur [...], skal sæta áfram­haldandi gæsluvarðhaldi þar til fullnustuð hefur verið ákvörðun dómsmálaráðherra um að framselja hann til Brasilíu, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 16. mars nk. kl. 16:00.