Hæstiréttur íslands

Mál nr. 631/2016

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Gunnar Örn Jónsson fulltrúi)
gegn
X (Sigurður Jónsson hrl.)

Lykilorð

  • Kærumál
  • Farbann

Reifun

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. b. lið 1. mgr. 95. gr. sömu laga.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 8. september 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 7. september 2016 þar sem varnaraðila var gert að sæta farbanni allt til mánudagsins 3. október 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með hliðsjón af málsatvikum og eðli þess brots sem varnaraðila er gefið að sök er brýnt að meðferð máls þessa verði hraðað eins og kostur er. Að því gættu ber að staðfesta hinn kærða úrskurð með vísan til forsendna hans.

Kærumálskostnaður dæmist ekki, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 7. september 2016

Lögreglustjórinn á Suðurlandi  hefur gert þá kröfu að kærða, X, fæddur [...], [...] ríkisborgara, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi til mánudagsins 3. október nk. kl. 16:00. Í þinghaldi 6. september sl., krafðist fulltrúi lögreglustjóra þess til vara að kærða verði gert að sæta farbanni allt til mánudagsins 3. október nk., kl. 16:00.

                Kærði krefst þess að kröfu um gæsluvarðhald verði hafnað. Til vara að kærða verði gert að sæta farbanni og til þrautavara, ef krafa um gæsluvarðhald verði samþykkt, að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími. 

                Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurlandi kemur fram að lögregla rannsaki  meint kynferðisbrot kærða gegn 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en hin meintu brot beinast gegn A, kt. [...] og B, kt. [...]. Lögreglu hafi að kvöldi 5. september borist tilkynning um afbrigðilega hegðun manns á bifreiðinni [...] á bílastæði utan við íþróttahús [...]. Segir í greinargerð lögreglustjóra að á myndskeiði, sem vitni hafi sýnt lögreglu, megi sjá nakinn mann sitja í bifreið á bílastæði að fitla við kynfæri sín. Umrædd bifreið hafi reynst vera í eigu bílaleigu og hafi kærði verið handtekinn í Reykjanesbæ að morgni 6. september sl., og í framhaldinu færður á lögreglustöðina á Selfossi.

                Í greinargerð lögreglustjóra er vísað til framburða vitnisins A í skýrslu sem lögregla tók af henni í gegnum síma á þann veg, að vitnið hafi verið á gangi eftir göngustíg við [...] og séð mann í bifreið sem lagt hafi verið í bifreiðastæði þar hjá og hafi maðurinn virst vera sofandi. Þegar betur hafi verið að gáð hafi hún séð að maðurinn var nakinn og að fitla við kynfæri sín. Þá segir í greinargerð lögreglustjóra að vitnið B hafi lýst atburðinum á sambærilegan hátt. Kærði hafi í skýrslutöku hjá lögreglu gengist við því að hafa verið nakinn í umræddri bifreið þegar stillur úr áðurnefndu myndskeiði hafi verið kynntar honum. Kærði hafi hins vegar ekki kannast við að hafa snert kynfæri sín heldur hafi hann verið með hendur á læri sínu. Aðspurður um skýringar á framangreindu athæfi sínu hafi kærði greint frá því að honum hafi verið mjög heitt og verið með magaverk. Þá hafi kærði greint lögreglu frá því að hann hafi misst af flugi frá landinu nú í morgun þar sem hann hafi verið handtekinn af lögreglu. Af framangreindum ástæðum telur lögreglustjóri hættu á að kærði muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér undan málsókn eða fullnustu refsingar.

Með hliðsjón af eðli brots kærða, grófleika þess og nálægð við grunnskóla, íþróttasvæði og framhaldsskóla telur lögreglustjóri auk þess hættu á áframhaldandi brotum af hálfu kærða. Á myndbandsupptöku, sem ungmenni sem leið áttu hjá tóku upp, megi sjá kærða liggja allsnakinn í sæti bifreiðar með hendur á kynfærum sínum. Telur lögreglustjóri að skýringar kærða á háttsemi sinni og óvissu um nærveru við grunnskóla ótrúverðugar og hafi kærða mátt vera fulljóst að hann væri á stað þar sem vænta hafi mátt umferðar skólabarna, sérstaklega í ljósi þess að samkvæmt upplýsingum lögreglu mun atburðinn hafa átt sér stað um hádegisbil í gær.

Lögreglustjóri telur að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði hafi gerst sekur um háttsemi sem varðar við 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en brot við ákvæðinu varði allt að fjögurra ára fangelsi og því uppfyllt skilyrði 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Með vísan til þess og b- og c- liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, er þess farið á leit að framangreind krafa um gæsluvarðhald nái fram að ganga.

Á myndskeiði sem fylgdi rannsóknargögnum málsins, svokölluðu „snapchat“ og vitni mun hafa tekið, má sjá bifreið sem lagt hafði verið meðfram gangstétt sem liggur norðan við íþróttahúsið [...] gengt [...]. Bak ökumannssætisins hafði verið lagt niður og sýnir myndskeiðið að þar liggur allsnakinn maður. Kærði hefur í skýrslutöku hjá lögreglu viðurkennt að hafa klætt sig úr að ofan og dregið stuttbuxur og nærbuxur niður um sig og legið þannig í bifreiðinni og hvílt sig í nokkrar mínútur. Þá bar hann kennsl bæði á bifreiðina og sjálfan sig á áðurnefndu myndskeiði. Samkvæmt rannsóknargöngum málsins er kærði undir rökstuddum grun um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við ef sök er sönnuð. Kærði er erlendur ríkisborgari sem kom hingað til lands til nokkra daga dvalar í tengslum við vinnu. Kærði mun hafa verið handtekinn þegar hann skilaði bílaleigubifreið þeirri sem hann hafði til umráða í Reykjanesbæ að morgni 6. september sl. Kærði stundar hvorki atvinnu né á fjölskyldu hér á landi. Samkvæmt framansögðu er fallist á að fullnægt sé skilyrði b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um að ætla megi að kærði muni reyna að komast úr landi áður en ákvörðun verður tekin um hvort af saksókn verði. Að virtum rannsóknargögnum og með vísan til 1. málsliðar 3. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, þykja hins vegar ekki skilyrði til að úrskurða kærða í gæsluvarðhald. Hins vegar eru í máli þessu uppfyllt skilyrði 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008, sbr. b-lið 2. mgr. 95. gr. sömu laga, til að fallast á varakröfu lögreglustjóra og banna kærða brottför af landinu, enda er ekki vísað til áðurnefndrar 3. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 í 1. mgr. 100. gr. þeirra laga. Varakrafa lögreglustjóra er því tekin til greina eins og nánar er rakið í úrskurðarorði, en ekki þykja efni til að marka kröfunni skemmri tíma.

Ragnheiður Thorlacius settur dómstjóri kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

Hafnað er kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um að kærði, X, fæddur [...], sæti gæsluvarðhaldi.

Kærða er bönnuð för frá Íslandi þó eigi lengur en til mánudagsins 3. október 2016, klukkan 16:00.