Hæstiréttur íslands
Mál nr. 412/2000
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Þriðjudaginn 14. nóvember 2000. |
|
Nr. 412/2000. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík (Sigurður Gísli Gíslason fulltrúi) gegn X (Brynjar Níelsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. Laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen og Markús Sigurbjörnsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. nóvember 2000, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 13. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. nóvember 2000, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 29. nóvember nk. kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Ú R S K U R Ð U R
Ár 2000, miðvikudaginn 8. nóvember, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Kristjönu Jónsdóttur héraðsdómara, kveðinn upp úrskurður þessi.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 29. nóvember 2000, kl. 16.00.
[ . . . ]
Verið er að rannsaka ætluð brot kærða gegn fíkniefnalöggjöfinni sem gætu varðað hann fangelsisrefsingu samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ef þau sönnuðust. Rannsóknargögn gefa ástæðu til að ætla að kærði tengist fíkniefnainnflutningi þannig að refsivert sé. Ljóst er af rannsóknargögnum að brýnir rannsóknarhagsmunir eru í því fólgnir að kærði sæti gæsluvarðhaldi áfram eins og rannsókn málsins er nú komið. Skilyrði a-liðar 1. mgr. 103 gr. laga nr. 19/1991 teljast því uppfyllt og ber að verða við kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um áframhaldandi gæsluvarðhald kærða, eins og hún er fram sett.
Ú r s k u r ð a r o r ð
Kærði X sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 29. nóvember 2000, kl. 16.00.
Kristjana Jónsdóttir.