- Ráðningarsamningur
- Kjarasamningur
- Uppsögn
- Kröfugerð
- Frávísun frá héraðsdómi að hluta
|
Fimmtudaginn 25. mars 2010. |
Nr. 445/2009. |
Kristján Jóhann Steinsson (Hanna Lára Helgadóttir hrl.) gegn Icelandair ehf. (Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl.) |
Ráðningarsamningur. Kjarasamningur. Uppsögn. Kröfugerð. Frávísun frá héraðsdómi að hluta.
K, er starfaði sem flugþjónn hjá I ehf., var sagt upp störfum hjá félaginu ásamt fjölda annarra starfsmanna. Hann fékk greidd laun í kjarasamningsbundnum uppsagnarfresti en var leystur undan vinnuskyldu. K taldi uppsögn sína ólögmæta og krafðist skaða- og miskabóta úr hendi I ehf., auk þess að viðurkenndur yrði réttur hans til frímiða hjá félaginu í tilgreindan tíma. Með dómi héraðsdóms var talið að K hefði ekki fært fram fullnægjandi rök fyrir því að uppsögn hans eða önnur háttsemi I ehf. í tengslum við hana hefði verið ólögmæt. Bótaskyldu var því hafnað og I ehf. sýknað í málinu. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms að öðru leyti en því að vísa frá héraðsdómi kröfu K um rétt hans til frímiða hjá I ehf. þar sem talið var að sú krafa uppfyllti ekki skilyrði d. liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 10. ágúst 2009. Hann krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða sér bætur að fjárhæð 3.839.215 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 15. september 2008 til greiðsludags og að viðurkenndur verði „réttur áfrýjanda til frímiða“ hjá stefnda í 8,5 ár frá 1. nóvember 2008. Þá krefst hann málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.
Stefndi krefst aðallega staðfestingar hins áfrýjaða dóms en til vara að kröfur áfrýjanda verði lækkaðar. Þá krefst stefndi málskostnaðar fyrir Hæstarétti.
Krafa áfrýjanda um að viðurkenndur verði réttur hans til frímiða hjá stefnda í tilgreindan tíma, sem hann segir reista á ákvæði í kjarasamningi, hefur ekki verið skýrð að efni til af hans hálfu. Ekkert liggur því fyrir um inntak þeirra réttinda, sem um er krafið. Krafa áfrýjanda uppfyllir að þessu leyti ekki skilyrði d. liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og verður því vísað frá héraðsdómi.
Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann að öðru leyti staðfestur.
Áfrýjandi greiði stefnda málskostnað fyrir Hæstarétti eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Vísað er frá héraðsdómi kröfu um viðurkenningu á rétti áfrýjanda, Kristjáns Jóhanns Steinssonar, til frímiða hjá stefnda, Icelandair ehf., í 8,5 ár frá 1. nóvember 2008.
Hinn áfrýjaði dómur skal að öðru leyti vera óraskaður.
Áfrýjandi greiði stefnda málskostnað fyrir Hæstarétti, 350.000 krónur.
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 22. maí 2009.
Mál þetta, sem dómtekið var 28. apríl sl., var höfðað 4. desember 2008 af Kristjáni Jóhanni Steinssyni, Öldugranda 15, Reykjavík, gegn Icelandair ehf., Reykjavíkurflugvelli í Reykjavík.
Stefnandi krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða honum 3.839.215 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 15. september 2008 til greiðsludags. Jafnframt er krafist að dráttarvextir leggist við höfuðstól á 12 mánaða fresti í samræmi við 12. gr. sömu laga, í fyrsta sinn 15. september 2009. Krafist er að viðurkenndur verði réttur stefnanda til frímiða hjá stefnda í 8,5 ár frá 1. nóvember 2008, þ.e. hlutfall af unnum tíma, sbr. kjarasamning milli FFÍ og Icelandair, grein 08.02., en réttur þessi er ekki metinn til fjár í kröfugerð. Þess er einnig krafist að stefndi verði dæmdur til að greiða stefnanda málskostnað samkvæmt málskostnaðarreikningi auk virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.
Af hálfu stefnda er krafist sýknu af öllum kröfum stefnanda en til vara að þær verði lækkaðar. Krafist er að stefnandi verði dæmdur til að greiða stefnda málskostnað að mati réttarins.
Af hálfu stefnanda var lögð fram endanleg kröfugerð við upphaf aðalmeðferðar og er hún eins og að ofan greinir. Af hálfu stefnda var því mótmælt að sú kröfugerð kæmist að í málinu þar sem þar væri að hluta til um nýja kröfu að ræða. Viðurkenningarkrafa stefnanda kemur fram í stefnu þótt hún sé ekki talin í þeim kafla stefnunnar þar sem aðrar kröfur stefnanda eru tilgreindar. Engar athugasemdir komu fram í greinargerð stefnda varðandi þessa framsetningu á kröfugerð stefnanda. Með tilliti til þess verður að líta svo á að krafan hafi verið nægilega fram sett af hálfu stefnanda.
Yfirlit málsatvika og ágreiningsefna
Í ársbyrjun 1998 hóf stefnandi störf sem flugþjónn hjá stefnda en áður hafði hann unnið hjá stefnda við ýmis störf á Hótel Loftleiðum og sem flugafgreiðslumaður á Reykjavíkurflugvelli. Hann byrjaði sem „C-freyja“ en sumarið 2001 fór hann í stöðu „B-freyju“ sem hann gegndi í u.þ.b. þrjá mánuði. Stefnandi lýsir því að hann hafi síðar gegnt starfi „B-freyju“ eftir þörfum félagsins allt til júní 2007 en þá hafi hann verið hækkaður upp í „A-freyju“ fram til septembermánaðar s.á. Þegar þeim stöðum fækkaði var hann aftur færður niður í „C-freyju“ og síðan upp í „B-freyju“ frá 1. október til 1. desember 2007, þá niður í C og svo aftur upp í B frá 1. júní 2008.
Stefnanda var sagt upp störfum með bréfi starfsmannastjóra stefnda 27. júní 2008. Ástæðan var í bréfinu sögð sú að félagið þyrfti að bregðast við samdrætti í flugi vegna utanaðkomandi aðstæðna. Ákveðið hefði verið að fækka ferðum í áætlunarflugi og leiddi það óhjákvæmilega til fækkunar starfsmanna. Stefnandi fékk laun á uppsagnarfresti en var leystur undan starfsskyldum frá og með 1. júlí. s.á. Stefnanda var sagt upp störfum ásamt fjölda annarra starfsmanna en af hálfu stefnda er því haldið fram að farið hafi verið að lagareglum sem gildi um hópuppsagnir. Við val á því hverjum skyldi sagt upp störfum hafi stefndi haft til viðmiðunar frammistöðu starfsmanna og starfsaldur.
Stefnandi telur uppsögnina ólögmæta og krefst skaðabóta vegna tjóns og miska sem hann telur sig hafa orðið fyrir af þeim sökum. Af hálfu stefnda er bótaskyldu mótmælt og því haldið fram að uppsögnin hafi verið lögmæt í alla staði og löglega staðið að henni. Stefnda hafi verið heimilt að segja stefnanda upp störfum og greiða laun út uppsagnarfrest. Uppsagnarréttur stefnda fari eftir almennum reglum vinnuréttarins og kjarasamningi.
Málsástæður og lagarök stefnanda
Stefnandi vísar til þess að hann hafi hafið störf hjá Icelandair, Hótel Loftleiðum, árið 1987 sem sendill. Hann hafi einnig unnið sem aðstoðarmaður í gestamóttöku hótelsins og sinnt öðrum tengdum störfum á sumrin og um helgar með skóla til 1990. Sumarið 1991 hafi stefnandi verið flugafgreiðslumaður á innanlandsflugvelli Flugleiða í Reykjavík og starfað þar á sumrin og að hluta á veturna til ársins 1996. Í innanlandsfluginu hafi stefnandi einnig annast farmiðasölu í u.þ.b. 2 ár, bókhald og önnur hliðstæð störf. Stefnandi hafi fengið lofsamleg meðmæli með störfum sínum.
Stefnandi hafi starfað sem flugþjónn hjá stefnda frá ársbyrjun 1998. Hann hafi byrjað sem C-freyja en einnig gegnt starfi B- og A-freyju, eins og áður er komið fram. Honum hafi á starfstíma sínum sem flugþjónn verið treyst fyrir ýmsum verkum öðrum en að gegna hinu almenna starfi. Þar megi nefna leiðsögn á vélinni Fokker 50 fyrir stefnda með blaðamenn og ferðaskrifstofufólk á Vest Norder 96. Stefnanda hafi verið falið að annast móttöku við komu vélarinnar TF-FIX þegar hún kom til landsins og kynna hana fyrir 500 skólabörnum af Suðurnesjum. Árið 2001 hafi stefnandi verið sendur fyrir stefnda og Útflutningsráð til Washington DC þar sem hann hafi tekið þátt í mikilli landkynningu. Þá hafi stefnandi verið valinn í áhöfn sem kynnti nýja búninginn „uniformið“ árið 2000 og flaug á flesta viðkomustaði félagsins ásamt því að vera við opnunarathöfn í Keflavík og í myndatökum vegna búningsins. Stefnandi hafi verið í áhöfn vegna sérstaks heiðursflugs til Glasgow vegna 60 ára afmælis Glasgow-flugsins. Stefnandi hafi leikið í þjónustumyndbandi stefnda árið 2001 og farið í VIP heimsferð fyrir stefnda 2005. Stefnandi hafi ávallt fengið bestu meðmæli stefnda auk þess sem honum hafi ítrekað borist hrósbréf frá stefnda vegna þátttöku sinnar í flugi ánægðra farþega.
Stefnandi hafi verið kallaður í starfsmannaviðtal til yfirflugfreyju og staðgengils hennar 4. apríl 2008. Á fundinum hafi verið farið yfir ýmis mál en stefnandi hafi meðal annars greint frá því að hann væri ekki fyllilega sáttur við að hafa ekki fengið starf sem hópstjóri sem hann sótti um. Þá hafi yfirflugfreyja rætt um að ekki væri heppilegt að stefnandi hefði í frammi „umtal“ er varðaði ráðningar sem þessar og ætti ekki við rök að styðjast en ekki hefði komið fram hvaðan „umtalið“ kom né nákvæmlega hvað væri átt við. Í framhaldi fundarins hafi stefnandi fengið bréf 29. apríl s.á. þar sem segi: „Eftir ummæli þín um vinnubrögð fyrir ráðningarferli hópstjóra teljum við að viðhorf þitt og umtal í starfi þurfi að breytast. Við vorum sammála um mikilvægi þess að leita sér ávallt réttra upplýsinga áður en farið er af stað með umtal sem ekki á við rök að styðjast. Eins og fram kom á fundinum þá treystum við því að þú takir þessum fundi okkar sem leiðbeiningu og verði ekki uppvís af umtali sem þessu í framtíðinni.“ Stefnandi hafi hvorki verið hvattur til að taka trúnaðarmann stéttarfélags síns með á fundinn né hafi stefndi boðað trúnaðarmanninn sérstaklega.
Svokölluð „c/c línutékk“ (hæfnismöt) hafi komið vel út hjá stefnanda en í því síðara, sem gert hafi verið í flugi 20. apríl 2008, sé skrifað í umsögn um stefnanda: „Var mjög jákvæður og þægilegur í þessu flugi og fór alltaf skrefinu lengra í öllu er varðar þjónustuna. Tók ávarpið 100%.“
Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) hafi fengið í hendur tilkynningu fyrrverandi starfsmannastjóra stefnda 16. júní 2008 um fyrirhugaða hópuppsögn hjá stefnda. Þar komi fram að segja ætti upp 89 stöðugildum. Viðmiðanir við val á stafsmönnum, sem segja ætti upp, væri frammistaða og starfsaldur. Síðar hafi verið ritað á bréfið að jafnframt yrði gerð breyting á A-, B- og C-stöðum. Þegar komið hafi til ráðninga, uppfærslna í starfi, hópuppsagna eða breytinga hafi stefndi ávallt miðað við starfsaldur starfsmanna. Stefnandi vísi í því sambandi til kjarasamnings, einkum greina 01.05 og 03.02.
Vinnuskrá fyrir júlímánuð hafi komið út 25. júní s.á. og hafi stefnandi verið skráður á hana. Á sama tíma hafi hópstjórar tilkynnt starfsmönnum, er tilheyrðu starfsaldurstengdri hópuppsögn og voru í hópum þeirra, um fyrirhugaða uppsögn sem hafi ýmist átt að taka gildi 1. október eða 1. nóvember 2008.
Að morgni 30. júní s.á. hafi stefnandi og annar flugþjónn og ein flugfreyja verið kölluð hvert um sig fyrirvaralaust á fund yfirflugfreyju og staðgengils hennar. Á fundunum hafi þeim verið afhent uppsagnarbréf. Þeim hafi hvorki verið greint frá ástæðu fundarins né hafi þau verið hvött til að hafa trúnaðarmann stéttarfélags síns með sér á fundinn eða hann boðaður sérstaklega af stefnda á fundinn. Í uppsagnarbréfinu segi að bregðast þyrfti við samdrætti í flugi vegna utanaðkomandi aðstæðna. Ákveðið hefði verið að fækka ferðum í áætlunarflugi og leiddi það óhjákvæmilega til fækkunar starfsmanna. Vegna þeirra aðgerða neyddist félagið því miður til að segja upp starfi stefnanda frá og með næstu mánaðamótum, þ.e. 1. júlí 2008, með samningsbundnum uppsagnarfresti. Jafnframt hafi hann verið leystur undan starfsskyldum hjá félaginu frá og með 1. júlí. Í uppsagnarbréfinu og á fundinum hafi verið vísað til hópuppsagnar og hafi orð yfirflugfreyju verið að ekki hefði komið til uppsagnar hjá stefnanda ef ekki hefði komið til hópuppsagnarinnar. Umræddir þrír starfsmenn hafi ekki fallið undir þann starfsaldurstengda hóp annarra starfsmanna sem sagt var upp og hafi þau verið einu starfsmennirnir sem kallaðir voru á fund yfirflugfreyju og auk þess verið þau einu sem ekki þurftu að vinna í uppsagnarfresti. Á fundi stefnanda með yfirflugfreyju hafi honum jafnframt verið tjáð að hann hefði fengið uppsögn vegna skorts á samstarfsvilja hans og ummæla vegna ráðninga í hópstjórastarf. Vísað hafi verið til áminningar á fundi 8. apríl s.á. og bréfs 29. sama mánaðar. Stefnandi hafi farið í veikindaleyfi fljótlega eftir hið leiðbeinandi bréf og hafi hann verið nýkominn til starfa þegar hann fékk uppsagnarbréfið. Á fundinum 30. júní hafi yfirflugfreyjan harmað uppsögnina og hafi hún getið þess sérstaklega að hún væri tilbúin að gefa stefnanda meðmæli enda hefði hann verið frábær flugþjónn.
Stefnandi hafi óskað eftir því við starfsmannahald stefnda 3. júlí s.á. að fá afrit gagna um hann í starfmannaskrá. Fallist hafi verið á það og hafi mátt sækja gögnin síðar sama dag. Lögmaður stefnanda hafi síðan farið þess á leit við staðgengil yfirflugfreyju 4. s.m. að fá meðmælabréf og hafi verið lofað að það yrði með í umslagi í afgreiðslu ásamt umbeðnum gögnum. Það hafi ekki gengið eftir og hafi meðmælabréf ekki verið veitt þegar eftir því var frekar leitað. Lögmaður stefnda hafi haft samband við lögmann stefnanda og hafi þau átt fund um málið. Niðurstaða fundarins hafi verið að stefnandi setti fram formlegt kröfubréf sem stefndi tæki síðan afstöðu til. Lögmaður stefnanda hafi sent stefnda kröfubréf 15. september s.á. þar sem farið var fram á bætur er næmu jafnvirði fjögurra mánaða fullra launagreiðslna auk meðaltals dagpeninga og sölulauna sl. 12 mánuði er stefnandi starfaði í fullu starfi (til viðbótar við þriggja mánaða uppsagnarfrestinn og áunnið orlof) auk frímiðaréttinda í 10 ár. Kröfum stefnanda hafi verið hafnað með bréfi lögmanns stefnda 22. september s.á.
Í málinu krefjist stefnandi skaðabóta vegna hinnar fyrirvaralausu uppsagnar sem hann telji ólögmæta bæði að formi og efni.
Í kjarasamningi milli Flugfreyjufélagsins og stefnda, grein 01.11., segi að telji Icelandair að flugþjónn eða flugfreyja vanræki skyldur sínar eða hafi gerst sek um aðrar misfellur í starfi, skuli flugfélagið aðvara viðkomandi skriflega. Sé um ítrekað eða alvarlegt brot að ræða geti Icelandair leyst viðkomandi frá störfum þar til gerðardómur hafi skorið úr sannleiksgildi hins meinta brots, enda sé þess óskað af öðrum hvorum aðila.
Í uppsagnarbréfi til stefnanda sé vísað til hópuppsagnar. Í lögum um hópuppsagnir nr. 63/2000 sé átt við uppsagnir starfsmanna af ástæðum sem ekki tengdust hverjum einstökum þeirra. Stefnandi byggi á því að uppsögn hans geti ekki flokkast undir hópuppsagnir þar sem hún hafi verið með öðrum hætti en annarra flugliða (flugfreyja/þjóna) sem fengu uppsagnarbréf. Uppsögnin sé ólögmæt enda hafi stefndi ekki fylgt áðurgreindu verklagi kjarasamnings. Sú áminning sem stefndi hafi vísað til á fundinum 30. júní 2008 geti ekki á nokkurn hátt talist formleg áminning enda komi fram í bréfinu að það eigi að vera leiðbeinandi. Aldrei hafi verið rætt um að um áminningu væri að ræða að viðlögðum starfsmissi. Þá hafi enginn trúnaðarmaður verið kallaður til svo sem hefð sé fyrir þegar starfsmaður hafi brotið af sér í starfi. Stefnandi hafi ávallt sýnt frábæra frammistöðu í starfi og hlotið lof samstarfsmanna sinna og farþega. Stefnandi hafi gegnt starfi A-flugfreyju og auk þess komið vel út úr línutékkum. Stefnandi geri sérstakar athugasemdir varðandi það hversu yfirlitsblöð vegna línutékks séu ófullkomin og oft ekki dagsett eða þess getið hver hafi framkvæmt línutékkið eða í hvaða flugi það var gert. Þá hafi stefndi ekki upplýst um hverjar reglur gildi hjá félaginu um starfsmöt og hver sundurliðun sé á vægi í hæfnismötum. Stefndi hafi ekki með nokkrum hætti sýnt fram á að stefnandi hafi haft í frammi slæleg vinnubrögð í starfi sínu eða brotið af sér í starfi er réttlætt geti hina fyrirvaralausu brottvísun.
Við hópuppsagnir flugfreyja og -þjóna beri að taka mið af starfsaldri eins og við ráðningar, sbr. ákvæði kjarasamnings, grein 01.12. og 03-2 um forgangsrétt til vinnu. Slíkt hafi tíðkast um áratugaskeið þegar stefndi hafi sagt upp fjölda flugfreyja og -þjóna en þá hafi þeir sem skemmstan starfsaldur höfðu misst vinnu fyrst. Stefnandi og tveir aðrir starfsmenn, sem hafi verið sagt upp, hafi haft mun lengri starfsaldur og því ekki verið næstir í starfsaldursröð og hefðu því átt að hafa forgang um að halda vinnu sinni við fækkun starfsmanna. Stéttarfélag stefnanda eða Vinnumálastofnun hafi ekki verið upplýst með skýrum hætti um að ekki yrði fylgt hefðbundnum reglum um starfsaldur við hópuppsögnina.
Auk bóta fyrir hina ólögmætu uppsögn krefjist stefnandi miskabóta samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga. Stefnandi hafi ungur að árum hafið störf hjá stefnda og tengdum fyrirtækjum og þar hafi hann starfað alla starfsævi sína, nema þegar hann starfaði í nokkur ár hjá Air Atlanta. Stefnandi hafi verið settur á útgefna flugskrá fyrir júlí. Hann hafi síðan ekki mætt í flug vegna hinnar fyrirvaralausu brottvikningar en það hafi leitt til margvíslegra sögusagna innan félagsins sem ófært sé að leiðrétta. Hafi uppsögn þessi, eins og að henni var staðið af hálfu stefnda, torveldað stefnanda að fá sambærilegt starf. Þetta hafi ótvírætt haft í för með sér röskun á stöðu og högum stefnanda, skaðað æru og persónu hans þannig að áhrif geti haft á framtíðarmöguleika hans til starfa. Af þessari ástæðu beri stefnda að bæta tjón stefnanda sem hann telji hæfilega metið að fjárhæð 2.000.000 króna.
Með vísan til ofangreinds geri stefnandi kröfu um að stefndi bæti tjón hans vegna hinnar ólögmætu uppsagnar. Krafan hljóði upp á fjárhæð er nemi jafnvirði þriggja mánaða fullra launagreiðslna auk hlutfalls sölulauna og dagpeninga í sex mánuði er nemi meðaltali sl. tólf mánaða, enda megi líta á greiðslur þessar sem hluta launagreiðslna sem stefnandi hafi orðið af vegna brottrekstrarins.
Dagpeningakrafan sé miðuð við gengi USD 63,86 (meðalgengi ársins 2007 reiknuð af heildardagpeningagreiðslum til stefnanda árið 2007). Krafan sé reiknuð þannig; 738.414/63,86 = 11.560 USD/12 = 964 x USD 91,78 (gengi 15. september 2008) = 88.438 x 6 = 530.627 krónur.
Krafa um hlutfall í sölu miðist við meðaltal frá júlí 2007 til júlí 2008 = 174.877 /12 x 6 = 87.438 krónur).
Þá sé krafa um hlutfall orlofs (3/12 hluta af 37 dögum = 9,25 daga = 288.796/37 x 9,25 = 72.199 krónur).
Hlutfall desemberuppbótar (25% af föstum launum í A-þrepi í 21 starfsaldri = (384.123 x 25% = 96.030)/12 x 3 = 24.008 krónur),
afnotagjald síma og netáskriftar (áætlað 5.000 krónur á mánuði í 6 mánuði) og bílastyrkur, 53.457 krónur á mánuði í 3 mánuði.
Auk þessa sé krafist viðurkenningar á að stefnandi haldi frímiðaréttindum í 7 ár frá 1. nóvember 2008 að telja sem sé hlutfall af unnum tíma, sbr. kjarasamning grein 08.02. þar sem segi að frímiðaréttur haldist í 10 ár eftir 20 ára starf en stefnandi hafi starfað í u.þ.b. 14 ár hjá stefnda.
Dómkrafan sundurliðist þannig:
1. Miskabætur samkvæmt 26. gr. skbl. |
2.000.000 krónur |
2. Grunnlaun í 3 mánuði x 288.796 krónur |
866.388 „ |
3. Orlof |
72.199 „ |
4. Desemberuppbót 3/12 af 96.030 krónum |
24.008 „ |
5. Síma og netáskrift (6 x 5000 krónur.) |
30.000 „ |
6. Handbókargjald ( 3 x 20.420 krónur) |
61.260 „ |
7. Bílakostnaður (3 x 53.457 krónur) |
160.371 „ |
8. Hlutfall dagpeninga (6/12 af 738.414 kr.) |
530.627 „ |
9. Hlutfall í sölu (154,145 krónur/12x6) |
87.438 „ |
10. Lífeyrissjóður 8% x 3 mánuðir |
69.311 „ |
Samtals |
3.839.215 krónur |
Upphafsdagur dráttarvaxtakröfu miðist við kröfubréf til stefnda 15. september 2008.
Máli þessu sé ekki vísað til Félagsdóms enda sé um að ræða miskabótakröfu og launakröfu sem byggist á kjarasamningi og rétt að héraðsdómur meti þau atriði er þær kröfur varði og skýri að því leyti ákvæði kjarasamnings, sbr. Hrd. 20/1997.
Um lagarök vísist til laga nr. 63/2000 um hópuppsagnir, einkum 2. mgr. 5. gr. og 11. gr., laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur, laga nr. 28/1930 um greiðslu verkkaups, almennra reglna vinnuréttar og samningalaga nr. 7/1936 með síðari breytingum. Einnig vísist til orlofslaga, almennra reglna skaðabótaréttar og skaðabótalaga nr. 50/1993, einkum 26. gr. Þá vísist til almennra reglna kröfuréttarins. Kröfur um dráttarvexti styðjist við 5. gr. og 1. mgr. 6. gr. III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 og kröfur um vaxtavexti við 1. mgr. 12. gr. V. kafla sömu laga. Krafan um málskostnað styðjist við 129. gr., sbr. og 130. gr. laga 91/1991 um meðferð einkamála. Krafa um virðisaukaskatt af málflutningsþóknun sé reist á lögum nr. 50/1988. Stefnandi sé ekki virðisaukaskattskyldur og beri honum því nauðsyn til að fá dóm fyrir skatti þessum úr hendi stefnda.
Málsástæður og lagarök stefnda
Af hálfu stefnda er vísað til þess að stefnandi hafi starfað sem flugþjónn hjá stefnda frá 1998. Hann hafi jafnt og aðrir starfsmenn fengið tækifæri til að sinna stjórnunarstarfi um borð í flugvélum stefnda og gegnt stöðu B-flugþjóns (aðstoðarmanneskju yfirflugfreyju) eftir þörfum stefnda frá 2001 auk tímabundinna starfa sem A-flugþjónn. Upphækkanir í stöður A- og B-flugfreyja eða -þjóna ráðist af starfsaldri og frammistöðu starfsmanna. Stefnandi hafi verið valinn til ýmissa verkefna hjá stefnda enda þjónustulundaður og álitinn góður fulltrúi félagsins.
Í apríl 2008 hafi stefnda þótt ástæða til að ræða sérstaklega við stefnanda um viðhorf hans til stefnda og neikvætt umtal um vinnuaðferðir stjórnenda stefnda. Stefnandi hafi því verið boðaður til fundar við yfirflugfreyju og staðgengil hennar 8. apríl þar sem rætt hafi verið við hann um að viðhorf hans og umtal í starfi þyrfti að breytast og eins mikilvægi þess að leita sér réttra upplýsinga. Litið hafi verið á fundinn sem leiðbeinandi samtal milli stjórnanda og undirmanns. Í samræmi við vinnureglur stefnda hafi stefnandi fengið bréf til staðfestingar á að samtalið hafi átt sér stað og hver niðurstaða þess var.
Í byrjun sumars s.á. hafi verið ljóst að mikill samdráttur yrði í flugi og því óhjákvæmilegt að grípa til umfangsmikilla uppsagna flugliða. Flugfreyjum og flugþjónum í 89 stöðugildum hafi verið sagt upp í lok júnímánaðar, þar á meðal stefnanda. Við þá ákvörðun hafi verið tekið mið af starfsaldri og frammistöðu starfsmanna.
Um hafi verið að ræða hópuppsögn í skilningi laga nr. 63/2000 og hafi stefndi því haft lögbundið samráð við stéttarfélag stefnanda þar sem m.a. hafi komið fram hvaða viðmið áformað hefði verið að nota við val á milli þeirra sem sagt yrði upp og þeirra sem héldu starfi sínu. Á fundi yfirflugfreyju með formanni og varaformanni FFÍ 25. júní hafi einnig komið fram að í flestum tilfellum yrði farið eftir starfsaldri en í þremur tilvikum réðist valið af frammistöðu viðkomandi starfsmanna.
Eðlilegt hafi þótt að gefa stefnanda og öðrum starfsmönnum, sem svipað hafi verið ástatt um, skýringu á því hvers vegna þau voru í hópi þeirra sem sagt var upp. Stefnandi hafi því verið boðaður til fundar við yfirflugfreyju og staðgengil hennar 30. júní og tilkynnt um uppsögn. Honum hafi verið sagt að ástæða þess að hann væri í hópi þeirra sem sagt var upp væru viðhorf hans til fyrirtækisins sem virtust ekki hafa breyst. Ekki hafi verið óskað eftir því að stefnandi ynni uppsagnarfrest sinn.
Stefndi byggi sýknukröfu sína á því að löglega hafi verið staðið að uppsögn stefnanda. Stefndi hafi staðið frammi fyrir því að þurfa að fækka starfsmönnum verulega og átt val um það hvaða viðmið yrðu þar lögð til grundvallar. Við slíkar aðstæður hafi stefndi að öllu jöfnu miðað við starfsaldur. Svo hafi einnig verið gert í þessu tilviki. Óhjákvæmilega komi þó frammistaða starfsmanna einnig til skoðunar við slíkar ákvarðanir sem feli eðli máls samkvæmt í sér val á milli starfsmanna. Hvorki lög né kjarasamningur takmarki rétt stefnda til að meta frammistöðu starfsmanna við ákvörðun um uppsagnir.
Stefndi hafi aldrei haldið því fram að stefnandi hafi vanrækt skyldur sínar eða gerst sekur um aðrar misfellur í starfi í skilningi gr. 01-11 í kjarasamningi FFÍ og stefnda. Sú grein eigi ekki við um úrlausnarefni þessa máls né sé viðvörun forsenda uppsagnar. Stefnandi hefði þó áður fengið tiltal og bréf sem jafna megi til skriflegrar aðvörunar. Með umtali sínu í garð stefnda hafi hann unnið gegn hagsmunum stefnda.
Lög um hópuppsagnir setji því ekki skorður hvaða viðmið fyrirtæki noti við val á starfsmönnum sem sagt er upp við hópuppsögn, hvorki samkvæmt 2. mgr. 1. gr., 2. mgr. 6. gr. eða öðrum ákvæðum.
Stefnanda hafi verið í sjálfs vald sett hvort trúnaðarmaður stéttarfélags hans kæmi með honum á fundi sem hann var boðaður til hjá yfirflugfreyju. Stefnda hafi engin skylda borið til að boða trúnaðarmann til fundar um persónuleg málefni stefnanda og enn síður sé það venjubundin framkvæmd enda áhöld um hvort það sé heimilt.
Því sé mótmælt sem röngu að stefnandi hafi sætt fyrirvaralausri brottvísun. Honum hafi verið sagt upp með samningsbundnum þriggja mánaða uppsagnarfresti sem hann hafi fengið greiddan án þess að óskað væri vinnuframlags á uppsagnarfresti. Löglega hafi verið staðið að þessu öllu af hálfu stefnda.
Stefndi mótmæli því einnig sem röngu að forgangsréttarákvæði kjarasamnings FFÍ og stefnda og ákvæði samningsins um ráðningu feli í sér að við hópuppsagnir beri að taka mið af starfsaldri. Því sé einnig mótmælt sem röngu og ósönnuðu að bindandi venja hafi skapast um slíka framkvæmd.
Hvað miskabótakröfu stefnanda varði þá telji stefndi ekki lagaskilyrði fyrir henni auk þess sem hún sé allt of há. Uppsögn stefnda hafi verið lögmæt og eðlilega staðið að henni auk þess sem algengt sé að ekki sé óskað eftir vinnuframlagi á uppsagnarfresti.
Varakrafa stefnda sé byggð á því að þóknun vegna sölu um borð greiðist eingöngu þeim sem annist sölu á viðkomandi flugi, sbr. gr. 04-6 í kjarasamningi FFÍ og stefnda.
Dagpeningakröfu stefnanda sé mótmælt. Dagpeningar væru greiddir vegna kostnaður stefnanda við flug og miðist við fjarvistartíma frá heimili, sbr. 8. kafla kjarasamningsins.
Stefnandi eigi ekki rétt á frímiðahlunnindum þar sem hann uppfylli ekki 20 ára starfsskilyrði gr. 03-5 í kjarasamningnum.
Síma- og nettengingar væru ætlaðar til að auðvelda samskipti milli stefnda og starfsmanna, sbr. kjarasamning gr. 05-4, og því ekki grundvöllur bótagreiðslna.
Kröfu stefnanda um greiðslu lífeyrisiðgjalds sé mótmælt með vísan til þess að stefnandi eigi ekki forræði kröfunnar, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 204/2004.
Dráttarvaxtakröfu stefnanda sé mótmælt. Upphaf dráttarvaxta beri að miða við þingfestingu stefnu, sbr. 4. mgr. 5. gr. vaxtalaga. Stefnandi hafi verið á launum til loka september 2008.
Stefndi byggi fyrst og fremst á meginreglum íslensks vinnuréttar, lögum um hópuppsagnir nr. 63/2000, kjarasamningi FFÍ og stefnda og 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Um málskostnað vísist til XXI. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, 129. og 130. gr.
Niðurstaða
Stefnanda var sagt upp flugliðastarfinu með bréfi 27. júní 2008 og honum voru greidd laun á þriggja mánaða uppsagnarfresti. Ástæður fyrir uppsögninni voru þær að samdráttur varð á flugi en við uppsögn var einnig vísað til þess að viðhorf stefnanda í starfi í garð stefnda og stjórnenda þar þóttu óviðunandi af hálfu stefnda.
Af hálfu stefnanda er byggt á því að uppsögnin hafi verið ólögmæt. Sú málsástæða hans er aðallega studd þeim rökum að af kjarasamningi milli Flugfreyjufélags Íslands og stefnda leiði að við hópuppsagnir flugfreyja og flugþjóna beri að taka mið af starfsaldri, eins og við ráðningar, en þetta sé vinnuregla og hafi tíðkast um áratugaskeið þegar stefndi hafi sagt upp fjölda flugfreyja eða flugþjóna. Á þetta er ekki fallist með þeim rökum sem hér verða færð fyrir því.
Ákvæði kjarasamningsins hafa engin fyrirmæli um að taka beri mið af starfsaldri við hópuppsagnir en ákvæði hans, sem vísað er til af hálfu stefnanda um forgangsrétt til vinnu, eiga ekki við um uppsagnir starfsmanna. Kjarasamningsákvæðið, sem vísað er til af hálfu stefnanda um málsmeðferðarreglur þegar starfsmaður er leystur frá störfum án uppsagnarfrests vegna vanrækslu á starfsskyldum eða stefndi telur að hann hafi orðið sekur um aðrar misfellur í starfi, á heldur ekki við um uppsögn stefnanda enda var ekki um slíkar ásakanir að ræða á hendur honum og honum var ekki sagt upp án uppsagnarfrests. Með vísan til þess sem fram hefur komið í málinu og hér hefur verið rakið verður að telja ósannað af hálfu stefnanda gegn andmælum stefnda að venja hafi skapast eða starfsregla, sem réttur verði byggður á, um að stefnda hafi borið að taka mið af starfsaldri við fjöldauppsagnir, en samkvæmt 2. mgr. 44. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 verður málsaðili, sem ber fyrir sig venju, að leiða tilvist hennar og efni í ljós.
Lög um hópuppsagnir gilda samkvæmt 1. mgr. 1. gr. laganna um hópuppsagnir atvinnurekanda á starfsmönnum af ástæðum sem ekki tengjast hverjum einstökum þeirra þegar fjöldi starfsmanna, sem sagt er upp, er sá sem lagagreinin mælir fyrir um á 30 daga tímabili. Þótt stefnandi haldi því fram að uppsögn hans geti ekki flokkast undir hópuppsögn verður ekki séð að það hafi áhrif á úrslit málsins, enda verður uppsögn ekki ólögmæt vegna þess eins að af hálfu stefnda var farið eftir lögum um hópuppsagnir í umræddu tilviki. Í lögunum eru fyrirmæli um skyldu atvinnurekanda til að veita upplýsingar, hafa samráð og tilkynna um fyrirhugaðar hópuppsagnir. Í málatilbúnaði aðila málsins er þó ekki lagt annað til grundvallar en að farið hafi verið að fyrirmælum laganna við uppsögn stefnanda að því frátöldu að haldið er fram af hálfu stefnanda að stéttarfélag hans eða Vinnumálastofnun hafi ekki verið upplýst með skýrum hætti um að ekki yrði fylgt hefðbundnum reglum um starfsaldur við hópuppsögnina. Tilkynnt var um uppsögnina samkvæmt upplýsingablaði til trúnaðarmanns starfsmanna 16. júní 2008 og kemur fram á blaðinu að afrit yrði sent til svæðisvinnumiðlunar. Þar kemur einnig fram að viðmiðanir við val á starfsmönnum, sem segja átti upp, séu frammistaða og starfsaldur. Við meðferð málsins kom fram að ekki hefði verið sérstaklega rætt á samráðsfundum stefnda með formanni og varaformanni stéttarfélags stefnanda hverjar forsendur væru fyrir þeim tilteknu uppsögnum sem voru raktar til þess að frammistöðu starfsmannanna, sem þær áttu við um, þótti ábótavant. Af því sem fram hefur komið í málinu verður þó ekki talið annað í ljós leitt en að stefndi hafi farið að fyrirmælum laga um upplýsingaskyldu og samráð varðandi uppsögn stefnanda.
Í grein 03-1 í kjarasamningnum er kveðið á um uppsagnarfrest, sem er að loknum reynslutíma þrír mánuðir miðað við mánaðamót, og skulu uppsagnir vera skriflegar. Stefnanda var sagt upp starfinu í samræmi við þetta. Ekki var óskað vinnuframlags hans á uppsagnarfresti en hann fékk laun allan þann tíma, eins og áður er komið fram. Er ekki fallist á að ólögmætt hafi verið að leysa stefnanda undan starfsskyldum á uppsagnarfresti. Ágreiningslaust er í málinu að stefnandi var neikvæður í garð stefnda og stjórnenda þar en af hálfu stefnda er byggt á því að traust og trúnaður hafi ekki lengur verið til staðar og þar með ekki grundvöllur fyrir frekara samstarfi. Ástæður þessarar neikvæðni voru þær að stefnandi var ósáttur við val stefnda á hópstjórum og að hann var ekki valinn í stöðu hópstjóra þegar hann sótti um þá stöðu, eins og fram hefur komið. Þótt stefnandi hafi verið settur á vinnuskrá fyrir júlí 2008 en síðan leystur undan starfsskyldum frá og með 1. þess mánaðar hefur ekki verið sýnt fram á af hans hálfu að slíkt hafi verið ólögmætt af hálfu stefnda eða að reglur hafi verið brotnar í því sambandi.
Með vísan til alls þessa verður að telja að stefnandi hafi ekki fært fullnægjandi rök fyrir því að uppsögn hans eða önnur háttsemi stefnda í tengslum við hana hafi verið ólögmæt. Þar með eru ekki skilyrði fyrir því að til bótaskyldu stefnda hafi stofnast gagnvart stefnanda. Ber þegar af þeirri ástæðu að sýkna stefnda af öllum kröfum stefnanda í málinu.
Rétt þykir með vísan til 3. mgr. 130. gr. laga um meðferð einkamála að málskostnaður falli niður.
Dóminn kvað upp Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari.
D ó m s o r ð:
Stefndi, Icelandair ehf., er sýknaður af kröfum stefnanda, Kristjáns Jóhanns Steinssonar, í máli þessu.
Málskostnaður fellur niður.