Hæstiréttur íslands

Mál nr. 60/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Föstudaginn 5. febrúar 2010.

Nr. 60/2010.

Ákæruvaldið

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)

gegn

X

(Hilmar Ingimundarson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. B. liður 1. mgr. 95 gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og 15. gr. laga nr. 13/1984, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. febrúar 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. febrúar 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á meðan framsalsmál hans er til meðferðar, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 16. febrúar 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara honum verði gert að sæta farbanni þann tíma sem í úrskurðinum greinir.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Nú er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur mál þar sem varnaraðili hefur krafist þess að ákvörðun dómsmálaráðherra 11. desember 2009 um að verða við beiðni brasilískra yfirvalda um framsal varnaraðila verði felld úr gildi.

Varnaraðili hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 11. september 2009 á grundvelli 15. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, sbr. b. lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, nú síðast samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 19. janúar 2010.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                                  

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 2. febrúar 2010.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að varnaraðila, X, fæddum [...], verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á meðan fram­salsmál hans er til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum, þó eigi lengur en til þriðju­dagsins 16. febrúar nk. kl. 16:00.

Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að upphaf máls þessa megi rekja til þess að varnaraðili, sem sé brasilískur ríkisborgari, hafi verið handtekinn á Keflavíkurflugvelli þann 9. ágúst sl., er hann framvísaði vegabréfi bróður síns. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness frá 12. ágúst sl. í máli nr. 673/2009 hafi varnaraðila verið gert að sæta 30 daga fangelsi fyrir skjalamisnotkun. Með bréfi brasilíska sendiráðsins í Osló, dags. 7. september sl., hafi dómsmálaráðuneytinu borist beiðni brasilískra dómsmálayfirvalda um framsal varnaraðila, dags. 3. september sl., ásamt fylgigögnum. Hafi framsalsbeiðnin borist ríkissaksóknara með bréfi dómsmála­ráðuneytisins, dags. 9. september sl.

Framsalsbeiðnin sé til fullnustu tveggja refsidóma, en í gögnum sem fylgt hafi henni komi fram að varnaraðili hafi með dómi héraðsdómstóls í Pouso Alegre, Minas Gerais, frá 24. september 1998, verið dæmdur í 30 ára fangelsi og þrettán mánaða varðhald fyrir rán, mannrán og mótþróa við handtöku. Áfrýjunardómstóll í Minas Gerais hafi endurskoðað refsiákvörðun dómsins og mildað refsinguna í 24 ára fangelsi og 13 mánaða varðhald þann 11. nóvember 2002.  Með dómi héraðsdómstóls í Sao Paulo, frá 21. desember 1983, hafi varnaraðili verið dæmdur í fimm ára fangelsi, eins árs varðhald og til greiðslu sektar fyrir vopnað rán.  Áfrýjunardómstóll í Sao Paulo hafi mildaði refsinguna í tveggja ára fangelsi, auk sektargreiðslu, þann 5. september 1984. Samkvæmt gögnum málsins hafi varnaraðili hafið afplánun í Sao Paulo þann 22. júní 1996 og hafi hann átt að ljúka henni þann 21. júlí 2021.  Þann 23. desember 2008 hafi varnaraðili fengið heimferðarleyfi yfir jólin en ekki snúið aftur til afplánunar þann 3. janúar 2009.  Hinn 14. janúar 2009 hafi verið gefin út handtökuskipun á hendur varnaraðila auk þess sem Interpol hafi gefið út alþjóðlega eftirlýsingu og beiðni um handtöku og gæslu varnaraðila (Red Notice). 

Fram kemur einnig að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi kynnt varnaraðila framsals­beiðnina þann 14. september sl.  Hafi varnaraðili kannast við að beiðnin ætti við hann en hann hafi hafnað framsali.  Að fengnum nánari upplýsingum frá brasilískum yfirvöldum vegna framsalsbeiðninnar hafi ríkissaksóknari sent dómsmála­ráðuneytinu umsögn með bréfi, dags. 12. október sl., þess efnis að skilyrði framsals samkvæmt lögum nr. 13/1984 teldust uppfyllt.  Ráðuneytinu hefi einnig borist ýmis gögn vegna varnaraðila, m.a. varðandi persónulegar aðstæður hans, síðast þann 9. nóvember sl.

Varnaraðili hafi sótt um hæli og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hérlendis og þann 23. október sl. hafi Útlendingastofnun synjað þeirri beiðni hans. Varnaraðili hafi kært ákvörðun Útlendingastofnunar. Hafi varnaraðili kært ákvörðunina til dómsmálaráðuneytisins og komið jafnframt þeirri afstöðu á framfæri við ráðuneytið með bréfi, dags. 9. nóvember sl., að honum þætti ekki tímabært að ráðuneytið tæki ákvörðun í framsalsmáli hans fyrr en endanleg niðurstaða lægi fyrir í hælismáli hans Hafi ráðuneytið því ákveðið að fresta töku ákvörðunar í framsalsmálinu þar til niðurstaða ráðuneytisins í kærumáli hans lægi fyrir, sbr. bréf ráðuneytisins til réttargæslumanns varnaraðila, dags. 12. nóvember sl. Hinn 10. desember sl. hafi dómsmálaráðuneytið staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar og hinn 11. s.m. hafi ráðuneytið ákveðið að verða við beiðni brasilískra yfirvalda um framsal varnaraðila. Samdægurs hafi hann krafist úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur um hvort skilyrði framsals teldust fyrir hendi, sbr. 14. gr. laga nr. 13/1984. Dómurinn hafi kveðið upp úrskurð hinn 26. janúar sl. þar sem ákvörðun ráðuneytisins frá 11. desember sl. hafi verið staðfest, sbr. mál nr. R-615/2009. Varnaraðili hafi kært úrskurðinn til Hæstaréttar Íslands sem, með dómi frá því í gær í máli nr. 53/2010, hafi fellt hann úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til löglegrar meðferðar og úrskurðar á ný, þar sem ekki hafi verið tekin afstaða til allra málsástæðna varnaraðila fyrir héraðsdómi.

Varnaraðili hafi setið í gæsluvarðahaldi vegna framsalsmálsins frá því að afplánun refsidóms hans hér á landi hafi lokið, þ.e. frá 11. september sl., á grundvelli 15. gr. laga nr. 13/1984, sbr. b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, sjá síðast úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-1/2010 frá 5. janúar sl. Hæstiréttur hafi fjórum sinnum staðfest úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald varnaraðila.

Varnaraðili hafi engin tengsl við landið og megi því ætla að hann muni reyna að komast úr landi á meðan framsalsmál hans sé til meðferðar hérlendis. Til að tryggja nærveru varnaraðila á meðan framsalsmál hans sé til meðferðar fyrir íslenskum stjórnvöldum þyki nauðsynlegt að hann sæti gæsluvarðhaldi þar til framsalsmálið sé til lykta leitt.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og framangreindra lagaákvæða sé þess beiðst að krafan nái fram að ganga.

Af gögnum málsins er ljóst að varnaraðili hefur engin tengsl við Ísland og má því ætla að hann reyni að komast úr landi á meðan framsalsmál hans hefur ekki verið leitt til lykta. Til að tryggja nærveru hans er því nauðsynlegt að hann sæti gæsluvarðhaldi á meðan framsalsmálið er til meðferðar hér á landi. Þar sem uppfyllt þykja skilyrði 15. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum, sem og með vísan til b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 er krafa ríkissaksóknara tekin til greina, eins og hún er fram sett.

Ekki er litið á bréf varnaraðila á dskj. nr. 2, sem kröfu skv. 5. mgr., 99. gr. laga nr. 88/2008, enda er hún ekki á íslensku og uppfyllir ekki skilyrði 103. gr. laganna.

Kristjana Jónsdóttir kveður upp úrskurðinn.

ÚRSKURÐARORÐ

                Varnaraðili, X, fæddur [...], skal sæta áfram­haldandi gæsluvarðhaldi á meðan fram­salsmál hans er til meðferðar, þó eigi lengur en til þriðju­dagsins 16. febrúar nk. kl. 16:00.