Hæstiréttur íslands

Mál nr. 716/2015


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


                               

Miðvikudaginn 21. október 2015.

Nr. 716/2015.

Ákæruvaldið

(Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari)

gegn

X

(Björgvin Jónsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Helgi I. Jónsson og Karl Axelsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. október 2015, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. október 2015, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til mánudagsins 9. nóvember 2015 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. október 2015.

                Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], með lögheimili að [...], [...], verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til mánudagsins 16. nóvember nk., kl. 16:00.

Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að rannsóknargögn málsins hafi borist ríkissaksóknara þann 30. september sl., frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn málsins hafi beinst að ætluðum brotum X og [...] þar sem þeim sé gefin að sök frelsissvipting, rán og líkamsárás með því að hafa laugardaginn 15. ágúst 2015, fyrst að [...] í Reykjavík, þvingað A með ógnunum til að fara með þeim að [...] í Reykjavík, þar sem X hafi ráðist á hana með því að slá hana í andlitið og hrinda henni utan í vegg og niður tröppurnar á stigagangi sameignar húsnæðisins. Þaðan hafi þeir X og [...] farið með A aftur að [...] í Reykjavík þar sem X sé gefið að sök að hafa ráðist að B og A með því að skera B með hníf í vinstri fótinn og vinstri kinn, slegið hann með krepptum hefna í andlitið, sparkað í höfuð hans, slegið hann nokkrum höggum með hamri í höfuðið og með því að hafa slegið hamri í hendi A, hellt bjór yfir hana, skipað henni að sleikja blóð af fingri hans og svo stungið fingrinum upp í munninn á henni. Meðan á framangreindu hafi staðið hafi A og B verið meinuð útganga af heimilinu og þau verið svipt frelsi sínu í um klukkustund. Þegar X og [...] hafi yfirgefið heimilið hafi þeir haft í hótunum við A og B um að ef þau kærðu brotin til lögreglu yrði þeim gert mein m.a. að A yrði nauðgað. Einnig hafi þeir haft á brott með sér farsíma A og B, fartölvu A, flakkara og föt. Af líkamsmeiðingum þessum hafi B hlotið skurð vinstra megin í andliti og skurð á hægri fæti og bólgu og mar vinstra megin á höfði og A skurð vinstra megin í andliti og mar á vinstri hendi.

Brotaþolinn B hafi skýrt frá því að hann hafi vaknað við að kærði hafi verið að skera hann með hníf í hægri fótinn. Kærði hafi svo skorið hann með hnífnum í vinstri kinnina, skorið A í kinnina, skipst á að slá sig og A með hamri og svo hótað að taka A með sér og hafi hótað fjölskyldu þeirra A öllu illu. Þá hafi kærði slegið þau bæði í andlitið með krepptum hefna, slegið hann í hendur og sparkað í líkama þeirra beggja. Í kjölfarið hafi kærði í félagi við [...] tekið fartölvu A og báða Samsung snjallsímana þeirra.

Brotaþolinn A hafi skýrt frá því að X og [...] hafi komið heim til hennar um tvöleytið þann 15. ágúst sl. og verið að leita að [...] vegna Lyrica taflna sem þeir hafi talið hann hafa stolið frá sér. Kvað hún þá hafa beðið sig að koma með sér en hún hafi ekki viljað það og þeir hafi þá neytt hana til að koma mér sér. Hafi þeir tekið harkalega í hana og leitt hana út í bíl og farið svo heim til [...]. Þaðan hafi þau farið heim til X þar sem [...] hafi sagt að B, unnusti A, hafi stolið lyfjunum. X hafi orðið mjög pirraður, sagt A að hún væri samsek þar sem hún væri kærasta B, slegið hana í andlitið, grýtt henni utan í vegg og hrint henni niður tröppurnar í stigaganginum. Hafi þau svo farið öll út í bíl og farið aftur að heimili hennar. Hafi hún opnað útidyrahurðina með lykli. Þegar inn hafi verið komið hafi X gengið beint að B sem hafi verið sofandi í íbúðinni og skorið hann með hníf í vinstri fótinn. Í kjölfarið hafi X kýlt B í andlitið og öskrað á hann að skila lyfjunum og á meðan hafi [...] leitað að lyfjunum í herberginu. X hafi svo skorið hana í andlitið með hnífnum. Á meðan B hafi verið að leita að lyfjum í herberginu hafi X slegið hann í andlitið, sparkað einu sinni í höfuðið á honum, slegið hann nokkrum höggum með hamri í höfuðið og einu sinni í vinstri höndina. Þá hafi X hellt bjór yfir A, skipað henni að sleikja blóð af puttunum hans og svo stungið puttunum á sér upp í munninn hennar. X hafi svo skorið B með hnífnum í vinstri kinnina. Eftir það hafi barsmíðunum verið lokið og þeir X og [...] tekið farsíma A og B, fartölvuna hennar, flakkara og eitthvað af fötum. X hafi áður en hann fór haft í lífláts og líkamsmeiðingarhótunum við þau ef þau myndu tilkynna atvikið til lögreglu.

Kærði X hafi skýrt frá því í skýrslutöku hjá lögreglu að B og A hafi komið í heimsókn til hans. Eftir að þau hafi farið hafi lyfjapokinn hans verið horfinn og síminn hans [...]. Hafi X því haft samband við A og fengið að koma til þeirra og spyrja hvar lyfin væru. A hafi sagt að [...] hafi tekið þau, þannig að þau hafi farið til hans. Þar hafi komið í ljós að B hafi tekið lyfin og þá hafi þau farið aftur heim til B. Hafi B verið sofandi þegar þau komu og X vakið hann með því að kýla hann einu sinni og skorið hann í löppina. Hafi B ekki sagst vita hvar lyfin væru og því hafi X skorið þau A og B í kinnina. Kvaðst X hafa notað silfurlitaðan [...] hníf. Kvað X að eitthvað af lyfjunum hafi verið þarna en ekki allt. Hafi X svo tekið peysur sem B hafi verið með í láni hjá honum og [...] tekið símann sinn. X neiti að hafa verið með hamar umrætt sinn og neiti því að A hafi verið svipt frelsi sínu. Hún hafi komið sjálfviljug með þeim [...]. Kvað X þetta ekki hafa verið rán, hann hafi bara tekið það sem hann átti þarna. Þegar borið var undir hann að tölva B hafi fundist á heimili hans sagði hann [...] og B hafa gleymt tölvunni heima hjá sér. Þá hafi kærði neitað að hafa hótað brotaþolum frekari líkamsmeiðingum.

Kærði [...] hafi skýrt frá því í skýrslutöku hjá lögreglu að hann og X hafi farið heim til B og A og hafi B verið sofandi. A hafi komið sjálfviljug með þeim til [...], en þar hafi X orðið brjálaður og slegið hana ítrekað. Hafi þau síðan farið aftur heim til B og A en þar hafi X kýlt B í andlitið, tekið upp [...] hníf og skorið B og A í kinnina. [...] kvað X einnig hafa verið með hamar og sveiflað honum út um allt og reynt að beita hamrinum á A. [...] kvað X hafa tekið fartölvu og flakkara og hafi [...] tekið símann því B hafi stolið honum af sér.

Við leit í íbúð X að [...] í Reykjavík hafi fundist fartölva A og gsm sími sem tekinn hafi verið daginn áður í árásinni í [...]. Einnig hafi fundist blóðugar buxur efstar í óhreina taui inni í fataskáp, blóðugur bolur á baðherbergisgólfi og einnig aðrar buxur með blóðkámi inni í stofu. Einnig hafi [...] hnífur með blóðkámi verið í vasa X og dúkahnífur með blóðkámi í stofu. Í gluggakistu í svefnherbergi hafi verið klaufhamar. Meðal gagna málsins séu upptökur úr eftirlitsmyndavélakerfi fjölbýlishússins að [...] í Reykjavík, þar sem þeir X og [...] þekkist. Sjáist á upptökum að þegar þeir X og [...] komi í seinna skiptið þann 15. ágúst sl. þá hafi þeir verið inni í húsinu í tæpan klukkutíma.

Kærði eigi nokkurn sakaferil að baki sem nái aftur til 2005. Kærði hafi þann 12. júní sl. verið dæmdur í fangelsi í 9 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Í því máli hafi kærði verið sakfelldur fyrir að hafa veist að manni með hníf og skorið hann á hægri framhandlegg og hægri kinn auk þess sem maðurinn hafi hlotið skurði á báðum höndum er hann hafi reynt að verjast árás kærða með því að taka utan um hnífsblaðið. Þá hafi kærði hlotið sekt með viðurlagaákvörðun þann 18. júní 2014, meðal annars fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga.

                Samkvæmt rannsóknargögnum málsins liggi kærði nú undir sterkum grun um að hafa með skipulögðum hætti, í félagi við annan mann, farið vopnaður hníf og hamri að [...] í Reykjavík og framið þar brot sem varðað geti við 2. mgr. 218. gr.,  226. gr., 233. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Framangreind brot geti varðað allt að 16 ára fangelsi. Ákæruvaldið telji kærða augljóslega hættulegan umhverfi sínu og sé það mat ákæruvaldsins að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Myndi það jafnframt særa réttarvitund almennings gengi kærði laus. Með hliðsjón af sakarferli kærða og þeim brotum sem hann sé nú grunaður um sé að mati ákæruvaldsins ljóst að kærði muni hljóta óskilorðsbundna fangelsisrefsingu verði hann sakfelldur fyrir dómi.

Málið sé nú til ákærumeðferðar hjá ríkissaksóknara. Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 17. ágúst sl., sbr. úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. R-[...]/2015, [...]/2015 og [...]/2015, fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. a-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2088 um meðferð sakamála, en frá 24. ágúst á grundvelli almannahagsmuna, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga. Hæstiréttur Íslands hafi staðfest gæsluvarðhald hans á grundvelli almannahagsmuna, sbr. dóm réttarins 26. ágúst sl. í máli nr. 561/2015.

Um lagaheimild fyrir kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald vísast til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Með vísan til framangreinds og framlagðra gagna sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Kærði ávarpaði dóminn og lýsti því að hann sæi eftir því sem hann hefði gert og teldi það rangt en kvað að það mætti að mestu rekja til fíkniefnaneyslu hans. Kvaðst hann nú ætla að snúa við blaðinu og stefna að betra lífi og hætta neyslu fíkniefna. Kvaðst hann hafa setið um lengi í gæsluvarðhaldi en vilji aðeins komast út í þann stutta tíma sem líði þar til hann hljóti dóm.

Verjandi kærða vísaði m.a. til kröfum sínum til stuðnings að rannsókn væri nú lokið og læknisvottorð sem ekki hafi legið fyrir þegar dómur Hæstaréttar 24. ágúst sl. var kveðinn upp sýni að áverkar hafi verið minniháttar. Þá sýni rannsóknargögn að framburður brotaþola um frelsissviptingu sé ekki réttur og hafi verið um slíkt að ræða hafi sú frelsissvipting staðið yfir mun skemmri tíma en ákæruvaldið vilji vera láta.

Niðurstaða:

                Í kjölfar tilvísunar verjanda til 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 breytti ákæruvaldið kröfu sinni og fer nú fram á gæsluvarðhald til 9. nóvember nk. Með dómi Hæstaréttar 24. ágúst sl. í máli nr. 561/2015, var fallist á að skilyrði væru til þess að kærði sætti gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 vegna þeirra brota sem hann er grunaður um að hafa framið. Málið er nú til ákærumeðferðar hjá ríkissaksóknara. Með vísun til framangreinds, sem og þess sem fram kemur í greinargerð ríkissaksóknara, er fallist á að kærði sé undir sterkum grun um að hafa framið brot gegn 2. mgr. 218. gr., 226. gr., 233. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot gegn 233. gr. geta varðað allt að tveggja ára fangelsi, en brot gegn 226. gr. allt að fjórum árum. Þá geta brot gegn 2. mgr. 218. gr. og 252. gr. laga nr. 19/1940 varðað allt að 16 ára fangelsi. Brotin eru þess eðlis að ætla má að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna og er ekki unnt að fallast á með verjanda kærða að rannsóknargögn bendi til þess að ekki séu fyrir hendi þær aðstæður sem lagðar voru til grundvallar í framangreindum Hæstaréttardómi. Með vísun til þessa telst fullnægt skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til að verða við kröfu ríkissaksóknara og þykir ekki ástæða til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er.

                Halldór Björnsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kærði, X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi, allt til mánudagsins 9. nóvember nk., kl. 16:00.