Hæstiréttur íslands
Mál nr. 283/2010
Lykilorð
- Dómsuppkvaðning
- Ómerking héraðsdóms
- Heimvísun
|
|
Fimmtudaginn 23. september 2010. |
|
Nr. 283/2010. |
Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari) gegn X(Jóhannes Albert Sævarsson hrl.) |
Dómsuppkvaðning. Ómerking héraðsdóms. Heimvísun.
Þar sem meira en fjórar vikur höfðu liðið frá munnlegum málflutningi til dómsuppsögu í héraði, og ekki hafði verið bókað að dómari og aðilar teldu ekki þörf á endurflutningi málsins, var hinn áfrýjaði dómur ómerktur og lagt fyrir héraðsdómara að taka það til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Páll Hreinsson.
Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 5. maí 2010 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun sem send var ríkissaksóknara án þess að héraðsdómur hafi verið birtur ákærða. Ákæruvaldið hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.
Ákærði krefst þess að refsing verði milduð.
Ákveðið var að fjalla sérstaklega um formhlið málsins fyrir Hæstarétti, en sækjandi og verjandi ákærða töldu óþarft að munnlegur málflutningur færi fram um það efni, sbr. 1. mgr. 205. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Málið var tekið til dóms í héraði við lok aðalmeðferðar 19. janúar 2010. Hinn áfrýjaði dómur var upp kveðinn 19. febrúar sama ár. Þá voru liðnar meira en fjórar vikur frá því að málið var dómtekið. Samkvæmt 1. mgr. 184. gr. laga nr. 88/2008 bar að flytja málið á ný, nema dómari og aðilar teldu það óþarft. Í endurriti vegna þinghalds, sem háð var til uppkvaðningar dóms, er bókað að fulltrúi ákæruvaldsins sé mættur og að verjandi ákærða hafi jafnframt sótt þing. Hvorki er bókað að málið hafi verið flutt að nýju né að dómari og aðilar teldu það óþarft. Samkvæmt framansögðu, og með hliðsjón af dómum Hæstaréttar 21. júní 2010 í máli nr. 225/2010 og 16. september 2010 í máli nr. 203/2010, verður hinn áfrýjaði dómur ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.
Rétt er að ákvörðun sakarkostnaðar í héraði bíði þess að efnisdómur gangi þar á ný en áfrýjunarkostnaður málsins greiðist úr ríkissjóði en hann felst í málsvarnarlaunum verjanda ákærða fyrir Hæstarétti. Verða þau ákveðin að meðtöldum virðisaukaskatti eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Hinn áfrýjaði dómur er ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.
Málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, X, fyrir Hæstarétti, Jóhannesar Alberts Sævarssonar hæstaréttarlögmanns, 94.150 krónur greiðast úr ríkissjóði.