Hæstiréttur íslands
Mál nr. 276/2006
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Þriðjudaginn 23. maí 2006. |
|
Nr. 276/2006. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Hjördís Hákonardóttir og Jón Steinar Gunnlaugsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. maí 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. maí 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 2. júní 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 19. maí 2006.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur lagt fram kröfu þess efnis að X, [kt. og heimilisfang], sæti áfram gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en til föstudagsins 2. júní 2006, kl. 16.00.
Í greinargerð lögreglunnar segir að ávana- og fíkniefnadeild rannsaki meint stórfellt fíkniefnabrot. Lagt hafi verið hald á 15.227,90 g af amfetamíni og 10.283,05 g af hassi sem falin hafi verið í bifreiðinni A sem flutt hafi verið til landsins frá Rotterdam í Hollandi. Fíkniefnin hafi fundist við leit tollgæslu þann 3. f.m. Bifreiðin hafi verið flutt inn á nafni meints vitorðsmanns, B. Lögregla hafi haft eftirlit með bifreiðinni frá því fíkniefnin fundust og hafi hljóðupptökubúnaði og gerviefnum verið komið fyrir í bifreiðinni og símar grunaðra hlustaðir. Bifreiðin hafi verið tollafgreidd og sótt nokkrum dögum síðar og verið flutt á bifreiðastæði við heimili nefnds B. C, D og kærði hafi sótt bifreiðina á umrætt bifreiðastæði að kvöldi 13. f.m. Hafi þeir flutt bifreiðina í verkstæðishúsnæði við E en þeir verið handteknir skömmu síðar. Aðkoma á vettvangi og hljóðritað samtal við bifreiðina í húsnæðinu bendi eindregið til þess að kærði og samferðamenn hans hafi verið að móttaka efnin með því að fjarlægja þau úr bifreiðinni.
Kærði neiti allri aðild að málinu. Kærði segist hafa verið staddur á vettvangi í E í því skyni að aðstoða C þar sem bifreiðin hafi verið biluð. Sé nánar vísað til framburðarskýrslna kærða frá 14., 19. og 28. f.m. og 10. þ.m. Framburður kærða sé ekki í samræmi við hljóðrituð gögn í húsnæðinu skömmu fyrir handtöku né heldur í samræmi við framburð C frá 21. f.m. og 2. þ.m. eða framburð D frá 3. þ.m. Við yfirheyrslu þann 10. þ.m. hafi kærði neitað að svara tilteknum spurningum eða borið fyrir sig minnisleysi um einstök atriði.
Kærði þyki vera undir rökstuddum grun um aðild að stórfelldu fíkniefnabroti. Framburður kærða þyki ekki vera í samræmi við rannsóknargögn málsins né framburði annarra. Kærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 14. f.m. á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands frá 19. f.m., í máli nr. 207/2006 og úrskurð héraðsdóms frá 5. þ.m. í máli nr. R-250/2006. Rannsókninni miði áfram en nauðsynlegt sé að upplýsa nánar um einstaka verknaðarþætti hinna grunuðu, tengsl þeirra innbyrðis og tengsl við aðra vitorðsmenn sem tengist málinu en ekki sé vitað um á þessu stigi hverjir séu en kunni að tengjast fjármögnun og kaupum á fíkniefnunum, ætlaðri móttöku og dreifingu þeirra hér á landi auk þess sem upplýsa þurfi nánar um seljendur og/eða sendendur efnanna erlendis. Unnið sé að gagnaöflun og gagnaúrvinnslu fjármála- og fjarskiptaupplýsinga í þessu skyni. Mikilvægar fjármálaupplýsingar hafi þegar fengist en tafir hafi orðið á afgreiðslu gagna frá tilteknum fjármálastofnunum og sé þessari vinnu ekki lokið, sbr. nánar tvær upplýsingaskýrslur F, rannsóknarlögreglumanns, dags. 17. þ.m. Framundan séu frekari yfirheyrslur af vitnum og sakborningum, þ.m.t. kærða. Nauðsynlegt sé að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í samband við meinta vitorðsmenn sem gangi lausir eða þeir geti sett sig í samband við hann eða kærði geti komið undan gögnum með sönnunargildi sem ekki hafi verið lagt hald á. Þyki þannig brýnt að vernda áfram rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus.
Sakarefnið er talið geta varðað við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Samkvæmt því sem að framan segir svo og rannsóknargögnum sem liggja fyrir dóminum liggur rökstuddur grunur á því að kærði eigi aðild að stórfelldu fíkniefnabroti sem getur varðað fangelsisrefsingu skv. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19,1940 með áorðnum breytingum. Rannsókn er enn ekki lokið og telur dómarinn að skilyrði a- liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19,1991 um meðferð opinberra mála séu uppfyllt og verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík tekin til greina eins og hún er fram sett.
Allan Vagn Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, [kt. og heimilisfang], sæti áfram gæsluvarðhaldi, þó eigi lengur en til föstudagsins 2. júní 2006, kl. 16.00.