Hæstiréttur íslands

Mál nr. 649/2010


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Þriðjudaginn 23. nóvember 2010.

Nr. 649/2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Brynjólfur Eyvindsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 19. nóvember 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 22. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. nóvember 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hennar þó eigi lengur en til föstudagsins 17. desember 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi hennar verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

 Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                             

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 19. nóvember 2010.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að ákærða, X, kt. [...], [...], [...], verði með úrskurði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í málum hennar, þó eigi lengur en til föstudagsins 17. desember 2010, kl. 16.00. 

Ákærða mótmælir kröfunni og gerir aðallega þá kröfu að henni verði hafnað en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að með dómi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 605/2010 hafi ákærðu verið gert að sæta gæsluvarðhaldi til kl. 16.00 í dag á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála. Mál ákærðu sæti nú meðferð fyrir héraðsdómi Reykjaness. Samkvæmt tveimur ákærum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefnum 19. júlí og 3. nóvember sl., hafi ákærðu verið gefið að sök á fjórða tug auðgunarbrota, auk umferðarlagabrota, nytstuldar og líkamsárásar. Um sé að ræða tvær brotahrinur, annars vegar á tímabilinu 28. apríl 2008 til 20. ágúst 2008 og hins vegar frá 3. september 2009 til 21. október 2010. Í millitíðinni hafi ákærða afplánað 12 mánaða refsidóm sem hún hafi hlotið 20. mars 2007, einkum fyrir auðgunarbrot. Með vísan til samfellds brotaferils ákærðu er það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að kærða muni halda áfram brotastarfsemi fari hún frjáls ferða sinna.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c.-liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Með vísan til þess sem að framan er rakið og gagna málsins er fallist á að líkur séu til þess að ákærða muni halda áfram brotastarfsemi meðan máli hennar er ólokið. Fyrir liggur að mál á hendur ákærðu vegna fjölda brota var þingfest hér fyrir dómi fyrr í dag. Samkvæmt þessu er fallist á að uppfyllt séu skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála til að taka til greina kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Ákærða, X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hennar, þó eigi lengur en til föstudagsins 17. desember nk. kl. 16.00.