Hæstiréttur íslands

Mál nr. 39/2011


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008


Þriðjudaginn 18. janúar 2011.

Nr. 39/2011.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H.B. Snorrason saksóknari)

gegn

X

(Kristján Stefánsson hrl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. janúar 2011, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 17. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 14. janúar 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á meðan mál hennar er til meðferðar fyrir Hæstarétti, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 14. apríl 2011, klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hún kærumálskostnaðar.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.

Dómsorð:

 Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

                                                        

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 14. janúar 2011.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að dómþoli, X, kt. [...], [...], [...], verði með úrskurði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hennar er til meðferðar fyrir Hæstarétti Íslands, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 14. apríl 2011, kl. 16.00. 

Dómþoli mótmælir kröfunni og gerir aðallega þá kröfu að henni verði hafnað en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að með dómi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 605/2010 hafi dómfelldu verið gert að sæta gæsluvarðhaldi til 17. desember 2010, á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála. Þann sama dag hafi hún hlotið tveggja ára fangelsisdóm fyrir fjölmörg afbrot, sbr. dóm Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. S-566/2010 og í kjölfarið hafi henni með úrskurði héraðsdóms verið gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli 3. mgr. 97. gr. laga um meðferð sakamál til dagsins í dag kl. 16.00.

Dómur Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. S-566/2010 sé ekki fullnustuhæfur þar sem dómfellda hafi nú ákveðið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar Íslands, sbr. yfirlýsingu hennar þar að lútandi er hafi borist ríkissaksóknara hinn 13. þessa mánaðar.

Með framangreindum dómi hafi dómfellda verið sakfelld fyrir á fjórða tug auðgunarbrota, auk umferðarlagabrota og nytjastuldar. Um hafi verið að ræða tvær brotahrinur, annars vegar á tímabilinu 28. apríl 2008 til 20. ágúst 2008 og hins vegar frá 3. september 2009 til 21. október 2010, er hún hafi síðast verið handtekin. Í millitíðinni hafi dómþoli afplánað 12 mánaða refsidóm sem hún hafi hlotið 20. mars 2007, einkum fyrir auðgunarbrot.

Það sé mat lögreglustjóra að dómfellda mun halda áfram brotum verði hún látin laus. Nauðsynlegt sé því að henni verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hennar í Hæstarétti Íslands.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c-liðar 1. mgr. 95. gr. og 3. mgr. 97. gr.  laga 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Fyrir liggur að dómfellda hefur nú ákveðið að áfrýja áðurgreindum dómi til Hæstaréttar Íslands. Með vísan til þess sem að framan er rakið er fallist á að líkur séu til þess að ákærða muni halda áfram brotastarfsemi á meðan mál hennar er til meðferðar hjá Hæstarétti. Samkvæmt þessu er fallist á að uppfyllt séu skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 3. mgr. 97. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála til að taka til greina kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.

Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð:

Dómfellda, X, kt. [...], sæti áfram gæsluvarðhaldi, á meðan mál hennar er til meðferðar fyrir Hæstarétti Íslands, þó eigi lengur en til fimmtudagsins 14. apríl 2011, kl. 16.00.