Hæstiréttur íslands

Mál nr. 267/2007


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 15

 

Þriðjudaginn 15. maí 2007.

Nr. 267/2007.

Ákæruvaldið

(enginn)

gegn

X

(Hilmar Ingimundarson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. maí 2007, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. maí 2007, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 13. júní 2007 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. maí 2007.

             Lögreglustjórinn  á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjaness að X, kt. [kt.], [heimilisfang],  verði með úrskurði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í málum hans, þó eigi lengur en til 15. júní nk. kl. 16:00.           

Krafan er reist á ákvæðum c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Fyrir dóminum mótmælti ákærði kröfu lögreglustjórans um áframhaldandi gæsluvarðhald.

Í kröfu lögreglustjórans kemur fram að þann 12. janúar sl. hafi ákærði verið úrskurðaður til að sæta gæsluvarðhaldi til 23. febrúar á grundvelli c.-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19, 1991, sbr. úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur, sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar Íslands nr. 34/2007. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. R-134/2007 hafi  ákærða verið gert að sæta áfram gæsluvarðahaldi, sömuleiðis með vísan til c.-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19, 1991, til 4. apríl, sbr. og dóm Hæstaréttar nr. 112/2007.  Með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness 4. apríl í máli nr. R-67/2007 hafi gæsluvarðhaldið verið framlengt til 23. apríl sl. Þá var gæsluvarðhaldið framlengt í máli nr. R-84/2007 til dagsins í dag kl. 16:00.

Með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 31. janúar 2007, hafi verið höfðað opinbert mál á hendur ákærða, þar sem honum sé gefið að sök brot gegn 1. mgr. 259. gr., 244. gr., 244. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga, auk fíkniefnalagabrots. Með tveimur ákærum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 22. febrúar og 22. mars sl., séu ákærða gefin að sök fjölmörg auðgunar- og fjármunabrot, auk fíkniefna- og umferðarlagabrota.  Þá hafi ríkissaksóknari gefið út ákæru á hendur ákærða 29. mars sl. fyrir brot gegn valdstjórninni.  Aðalmeðferð í málum þessum hófst föstudaginn 27. apríl nk og verður fram haldið í dag.

Við rannsókn mála ákærða hafi komið í ljós að ákærði sé í mikilli óreglu og án atvinnu.  Brotaferill hans hafi verið samfelldur, en hann hafi hlotið 9 mánaða fangelsisdóm fyrir rán 6. júní 2006 og hafi hann lokið afplánun dómsins 29. nóvember sl.  Þann 23. febrúar hafi honum með dómi Héraðsdóms Reykjaness verið gert að sæta fangelsi í 15 mánaði fyrir fjölda hegningarlaga- og umferðarlagabrota.  Sá dómur sé ekki fullnustuhæfur, þar sem ákærði hafi áfrýjað honum til Hæstaréttar Íslands.

Með vísan til brotaferils ákærða sé það mat lögreglustjóra að hann muni halda áfram afbrotum verði hann látinn laus.  Fyrir liggi mat Hæstaréttar um nauðsyn þess að ákærði sæti áfram gæsluvarðhaldi og hafi ekkert fram komið sem gei breytt því mati.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c.-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness 23. apríl sl. kemur fram að í ljósi tíðra brota ákærða megi fallast á að veruleg hætta sé á því að hann haldi áfram brotastarfsemi ef hann fer frjáls ferða sinna og því sé nauðsynlegt að ákærði sæti gæsluvarðhaldi meðan mál hans eru til lykta leidd. Féllst dómurinn því á að skilyrði væru til að ákærði sætti gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 þar til málum hans yrði lokið fyrir dómi. Er ekkert það fram komið að leiði til breytts mats á því að skilyrði nefndrar lagagreinar teljist uppfyllt. Aðalmeðferð í máli ákærða var fram haldið í dag en ekki náðist að ljúka henni. Hefur verið ákveðið nýtt þinghald 23. maí nk. til framhalds aðalmeðferðarinnar og mun dómur verða kveðinn upp í framhaldi af því. Verður því fallist á kröfu lögreglustjórans um áframhaldandi gæsluvarðhald en rétt þykir að marka gæsluvarðhaldinu tíma til miðvikudagsins 13. júní nk. eins og nánar greinir í úrskurðarorði.

Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

 

Úrskurðarorð:

      Ákærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi uns dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 13. júní nk. kl. 16:00.