Hæstiréttur íslands
Mál nr. 435/2008
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Föstudaginn 8. ágúst 2008 |
|
Nr. 435/2008. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Stefán Eiríksson, lögreglustjóri) gegn X (Kristján Stefánsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Markús Sigurbjörnsson og Páll Hreinssyni.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 6. ágúst 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 7. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. ágúst 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 11. ágúst 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Í greinargerð sóknaraðila til Hæstaréttar kemur fram að varnaraðili sé grunaður um að hafa tekið þátt í þeirri árás, sem frá er greint í hinum kærða úrskurði, og hafi þáttur hans ekki verið nægilega upplýstur þrátt fyrir að annar maður hafi nú játað að hafa beitt hnífi við hana. Að þessu athuguðu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 6. ágúst 2008
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], til heimilis að [...], Reykjavík, verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 13. ágúst næstkomandi kl. 16.
Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að aðfaranótt föstudagsins 1. ágúst sl. hafi lögreglu borist tilkynning um líkamsárás á Hverfisgötu í Reykjavík, en talið hafi verið, að hníf hefði verið beitt við árásina. Þegar lögregla hafi komið á vettvang, hafi þar verið maður með áverka undir herðablaði og á handlegg, og sagði hann eitthvert fólk hafa ráðist á sig. Hafi töluvert blóð verið á vettvangi og lá blóðslóð frá ætluðum árásarstað að þeim stað, sem brotaþoli málsins fannst. Árásarþoli hafi verið fluttur á slysadeild, þar sem gert hafi verið að sárum hans, en hann hafi reynst vera með stungusár milli 9. og 10. rifbeins vinstra megin, sár á brjóstvegg og loftbrjóst, auk sárs á vinstri handlegg. Vitni á vettvangi taldi sig hafa séð þrjá menn ganga í skrokk á brotaþola við A, m.a. barið og sparkað í hann, og gaf hann lýsingu á nokkrum árásarmannanna.
Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavélum við A, sem lögregla hafi undir höndum, megi sjá hvar hópur þriggja manna og einnar stúlku gangi norður Ingólfsstrætið og beygir um hornið vestur Hverfisgötu. Skömmu síðar sést á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél, sem snýr að Hverfisgötu, hvar einn úr ofangreindum hópi er í átökum og virðist sem hann haldi á áhaldi, sem grunur leikur á að sé hnífur.
Í gær, hinn 5. ágúst, hafi verið leitað að frekari myndskeiðum hjá Stjórnarráðinu til að kanna, hvort frekari myndir væri að finna af ætluðum gerendum, og við fyrstu skoðun, þá virðist sem greina megi a.m.k. tvo menn á hlaupum upp Hverfisgötuna, eltandi þann þriðja, og virðist sem fatnaður annars tvímenningana koma heim og saman við fatnað manns úr ofangreindum hópi úr myndskeiði eftirlitsmyndakerfis A. Þessar upptökur hafi þó enn ekki borist í hendur lögreglu. Þá hafi verið leitað eftir upplýsingum um eftirlitsmyndakerfi veitingastaðarins B, á horni C og D, þar sem grunur lék á, að ofangreindur hópur hafi verið að koma þaðan eða gengið þar framhjá. Hafi þá verið rætt við starfsmann staðarins, sem síðar gat nafngreint alla þá, sem sáust á útprentun af mynd úr eftirlitsmyndakerfi A, enda var um að ræða starfsmenn og fyrrverandi starfsmenn staðarins að ræða. Í kjölfarið voru þrír úr þessum hópi handteknir, en kærði nú rétt í þessu.
Tekin hafi verið stutt skýrsla af brotaþola málsins, þar sem hann lá á sjúkrahúsi, en þar greinir hann frá því, að hann hafi lent í átökum við hóp af Íslendingum, sem hann gruni, að hafi verið þrír. Hann muni þó ekki nákvæmlega eftir málavöxtum og sagðist ekki vita, hvernig hann var skorinn. Ljóst þyki að taka verði greinargóða skýrslu af brotaþola málsins.
Skýrsla hafi nú verið tekin af kærða rétt í þessu. Vísað sé nánar til hennar, hvað framburð kærða varðar.
Brot það, sem til rannsóknar eru, þykir sérstaklega alvarlegt og eru talið geta varðað við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brotið er talið sérstaklega alvarlegt, þegar litið er til þess, að beitt hafi verið hættulegu vopni í árásinni. Að mati lögreglu þykja því verknaðaraðferð og afleiðingar árásarinnar gera það að verkum að brotið geti átt undir 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, en ekki liggur fyrir að svo stöddu, hverjar endanlegar afleiðingar árásarinnar voru.
Rannsókn málsins standi nú yfir og sé á viðkvæmu stigi. Krefjast rannsóknarhagsmunir þess, að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi. Ljóst þyki að bera verði framburði hinna handteknu undir aðra. Þá er eftir að taka ítarlegri skýrslu af brotaþola málsins og yfirfara frekari sönnunargögn og bera undir hin handteknu. Þykir lögreglu ástæða til að ætla, að, gangi kærði laus, geti hann torvelt rannsókn málsins, til að mynda með því að hafa áhrif á vitni eða aðra sakborninga málsins. Því þyki brýnt, að lögregla fái svigrúm til að sinna rannsókninni.
Með vísan til framangreindra atriða og framlagðra ganga sé talið, að skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 séu uppfyllt, og þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Af rannsóknargögnum verður ályktað að kærði hafi verið á vettvangi þegar umrætt brot var framið. Rannsókn er á frumstigi og atvik um margt óljós. Þó kemur fram á myndum úr eftirlitsmyndavélum að a.m.k. tveir úr þeim hópi sem kærði var í, eltu þriðja mann sem hljóp upp Hverfisgötu. Einnig sést einn úr ofangreindum hópi í átökum. Þá ber vitni að það hafi séð þrjá menn ganga í skrokk á brotaþola. Með hliðsjón af þessu er kominn fram rökstuddur grunur um að kærði hafi átt þátt í líkamsárás 1. ágúst sl. og þykja skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 uppfyllt. Verður því fallist á kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að kærði sæti gæsluvarðhaldi þó ekki lengur en til mánudagsins 11. ágúst nk. kl. 16.
Allan V. Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Ú R S KU R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi til mánudagsins 11. ágúst nk. kl. 16.