Hæstiréttur íslands

Mál nr. 288/2013


Lykilorð

  • Kærumál
  • Verjandi


                                              

Mánudaginn 29. apríl 2013.

Nr. 288/2013.

Ákæruvaldið

(Björn Þorvaldsson saksóknari)

gegn

X

(Gestur Jónsson hrl.)

Kærumál. Verjandi.

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu ákæruvaldsins um að ekki yrði fallist á ósk X um að tiltekinn lögmaður yrði skipaður verjandi hans. Ekkert þótti fram komið sem gat hindrað að lögmaðurinn yrði skipaður verjandi X og var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.

Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. apríl 2013, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. apríl 2013, þar sem Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður var skipaður verjandi varnaraðila. Kæruheimild er í d. lið 2. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 5. gr. laga nr. 52/2010. Sóknaraðili krefst þess að hafnað verði að skipa fyrrgreindan lögmann verjanda varnaraðila.

Varnaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar. Þá krefst hann kærumálskostnaðar.

Eins og mál þetta liggur fyrir verður fallist á með héraðsdómi að ekkert sé fram komið sem geti hindrað að áðurnefndur lögmaður verði skipaður verjandi varnaraðila í því. Samkvæmt þessu verður hinn kærði úrskurður staðfestur.

Kærumálskostnaður verður ekki dæmdur, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. apríl 2013.

Ákærði X hefur óskað eftir því að Gestur Jónsson hrl. verði skipaður verjandi hans og varð dómarinn við þeirri ósk. Sækjandinn mótmælti skipuninni með vísun til þess sem gerðist í máli nr. [...] en þar sagði verjandinn sig frá verjendastörfum skömmu fyrir aðalmeðferð. Þá vísar sækjandinn til 2. mgr. 34. gr. laga nr. 88/2008. Hann byggir á því að svipuð gögn séu í þessu máli og sömu aðstæður að mörgu leyti og því sé hætta á að verjandinn fari frá málinu og tefji þannig framgang þess.

Ákærði hefur ítrekað ósk sína um að Gestur Jónsson hrl. verði skipaður verjandi sinn og hefur verjandinn ítrekað þessi sjónarmið hans. Verjandinn hefur bent á að hann uppfylli öll lagaskilyrði til skipunar verjanda og hafi engin rök eða gögn verið færð fram til stuðnings kröfu sækjandans.

Gestur Jónsson hrl. uppfyllir skilyrði til að verða skipaður verjanda ákærðs manns í sakamáli. Það er meginregla sakamálaréttarfarsins að við skipun verjanda skuli fara eftir ósk sakbornings, sbr. 3. mgr. 33. gr. laga nr. 88/2008. Til að hafna kröfu sakbornings um skipun tiltekins lögmanns sem verjanda þurfa að vera ríkar ástæður, sbr. nefnda lagagrein svo og 2. mgr. 34. gr. sömu laga. Í þessu máli er ekkert fram komið sem bendir til annars en að lögmaðurinn muni rækja skyldur sínar af kostgæfni og samkvæmt lögum. Þótt lögmaðurinn hafi sagt sig frá verjendastörfum í öðru máli getur það ekki haft þýðingu í þessu máli. Samkvæmt þessu er kröfu sækjandans hafnað og Gestur Jónsson hrl. skipaður verjandi ákærða X.

Arngrímur Ísberg héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.

ÚRSKURÐARORÐ

Kröfu sækjandans er hafnað og er Gestur Jónsson hrl. skipaður verjandi ákærða X.