Hæstiréttur íslands
Mál nr. 477/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Mánudaginn 15. júlí 2013 |
|
|
Nr. 477/2013. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stæði.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Þorgeir Örlygsson, Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. júlí 2013, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. júlí 2013, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi til „föstudagsins 26. júlí kl. 16:00“ og einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að gæsluvarðhaldi verði hafnað, en til vara að því verði markaður skemmri tími og að honum verði ekki gert að sæta einangrun.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur á þann hátt sem í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Varnaraðili, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 26. júlí 2013 klukkan 16 og einangrun meðan á því stendur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 12. júlí 2013.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að kærða, X, kt. [...], verði áfram gert að sæta gæsluvarðhaldi, allt föstudagsins 26. júlí kl. 16:00. Þá er gerð krafa um að kærði sæti einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að krafan um gæsluvarðhald varði fjögur lögreglumál. Þau séu:
Mál lögreglu nr. 007-2013-35064, innbrot og þjófnaður að [...] [...]. Föstudaginn 5. júlí sl. hafi lögregla verið kölluð til að íbúðarhúsinu að [...] á [...], en þar hafði verið spenntur upp gluggi og stolið þaðan m.a. myndavél og linsum, að verðmæti 650.000,- skartgripum, mótorhjólafatnaði, mótorhjóli ásamt lyklum, ísl. þjóðbúning og hnífum samtals að verðmæti kr. 1.350.000. Samkvæmt upplýsingum vitnis sem lögregla hafi talað við hafði aðili bankað að [...] að morgni 5. júlí og sagst vera að leita af bifreið vinar síns. Vitnið lýsti aðilanum nokkuð skilmerkilega.
Mál lögreglu nr. 007-2013-34939, þjófnaður þann 4. júlí á veski að [...] í Reykjavík, sem innihélt meðal annars greiðslukort á nafni A og skartgripi (2 hringar) en þar hafði verið farið heimildarlaust inn í anddyri og veskinu verið stolið.
Mál lögreglu nr. 007-2013-34395, innbrot og þjófnaður þann 1. júlí sl. að [...], [...], þar sem spenntur hafi verið upp gluggi og peningum stolið um kr. 240.000,-.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi þann 6. júlí fengið tilkynningu (mál nr. 007-2013-3523) um bifreiðina [...] þar sem aðili væri akandi um með rafstuðsbyssu og var bifreiðin stöðvuð við [...] í Reykjavík. Kærði hafi verið einn í bifreiðinni og hafi hann verið með rafstuðsbyssuna hægra megin við sig í ökumannssætinu. Kærði hafi einnig verið grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, en Toxcuptest gaf það til kynna. Í bifreiðinni hafi fundist munir sem tengst hafi innbrotinu að [...] og [...], m.a. bíllyklar og greiðslukort sem þar hafi verið stolið. Einnig hafi fundist loftskammbyssa í aftursæti og ónýtur peningaskápur með byssukúlu, jafnframt peningamaskína úr hraðbanka, auk íþróttatösku með kúbeini og slaghamri. Á kærða hafi einnig fundist 100.000,- þúsund í reiðufé. Kærði hafi í kjölfarið verið handtekinn í gærkvöldi kl. 22.00.
Tekin hafi verið skýrsla af kærða þann 7. júlí og neiti hann sök og hafi gefið misvísandi skýringar á vörslum þessara muna sem hafi fundist í bifreiðinni.
Kærði hafi þann 7. júlí sl. verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála. Var sá úrskurður síðan staðfestur með dómi Hæstaréttar þann 9. júlí í máli nr. 461/2013.
Þann 10. júlí sl. hafi lögregla fengið upplýsingar um dvalarstað kærða að [...] í [...]. Hafi í kjölfarið verið aflað dómsúrskurðar og leit framkvæmd í húsnæðinu sama dag. Hafi fundist þar og hafi verið lagt hald á talsvert magn þýfis sem megi rekja til ofangreindra mála auk meira magn ætlaðs þýfis sem lögregla vinni nú við að rekja til óupplýstra innbrota- og þjófnaða. Þá hafi einnig fundist í íbúðinni uppgjörstöskur með kvittunum frá B, en þann 6. júní sl. barst lögreglu tilkynning um þjófnað á skrifstofu [...], þar sem stolið hafði verið 2,5 milljónum króna sem hafi verið í merktum uppgjörstöskum (M. 007-2013-29375).
Að mati lögreglu sé nauðsynlegt að taka frekari skýrslur af kærða og eftir atvikum vitnum en kærði hafi enn ekki gefið haldbærar skýringar á tilvist þess mikla magns þýfis sem fannst í bifreið og á heimili kærða. Kærði neiti sök er varði ætluð innbrot og kannast ekki við að hafa verið þar á ferð eða tengjast málinu að öðru leyti. Þyki því brýnt með hliðsjón af gögnum málsins og rökstuddum grunsemdum lögreglu að vernda rannsóknarhagsmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus en veruleg hætta er talin á að hann torveldi rannsókn málsins með því að hafa áhrif, eftir atvikum á aðra samseka og eftir atvikum vitni ef hann fær að fara frjáls ferða sinna. Þá sé lögregla enn að reyna að tengja haldlagða muni við óupplýst afbrot á höfuðborgarsvæðinu.
Til rannsóknar í máli þessu sé ætlað brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 og eða eftir atvikum 254. gr. sömu laga, einnig brot á vopnlögum og umferðalögum. Brotist hafi verið inn á heimili að [...], [...] og [...] og verðmætum stolið auk þess sem kærði er nú grunaður um innbrot í B þar sem 2,5 milljónum króna var stolið. Kærði sé undir rökstuddum grun um aðild að málinu samkvæmt rannsókn lögreglu. Það sé því brýnt og nauðsynlegt með vísan til alls framanritaðs og gagna málsins að öðru leyti að kærði verði með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88, 2008 gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 26. júlí kl. 16.00 og til að sæta einangrun samkvæmt b. lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga.
Niðurstaða
Eins og að framan er rakið fundust í fórum kærða munir sem lögregla segir vera úr a.m.k. þremur innbrotum sem að framan er nánar lýst. Þá er því einnig lýst að gerð hafi verið húsleit á dvalarstað kærða eftir að hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Fundust þar munir sem lögregla telur gefa rökstudda vísbendingu um að kærði sé viðriðin fleiri auðgunarbrot. Fallist er á það með lögreglu að kærði hafi ekki gefið trúverðugar skýringar á því af hverju hann hafi haft þessa muni í vörslum sínum. Með vísan til þessa sem og nánari lýsingar á atvikum í greinargerð lögreglustjóra sem rakin er hér að framan þykir sýnt að kærði er undir rökstuddum grun um að hafa framið afbrot sem varðað getur fangelsisrefsingu. Rannsókn lögreglu er ekki lokið. Fallist er á það með lögreglustjóra, gegn andmælum verjanda kærða, að rannsóknarhagsmunir standi til þess að kærða verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þann tíma sem krafist er, sbr. a-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Miðað við umfang rannsóknar er ekki tilefni til að verða við kröfu verjanda kærða um að marka gæsluvarðahaldinu skemmri tíma en krafist er. Þá er og fallist á að rannsóknarhagsmunir standi til þess að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarhaldi, sbr. b-lið 1. mgr. 99. gr. sömu laga. Verða kröfur lögreglustjóra því teknar til greina eins og þær eru fram settar.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], skal áfram sæta gæsluvarðhaldi, allt föstudagsins 26. júlí kl. 16:00. Kærði skal sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.