Hæstiréttur íslands
Mál nr. 276/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
- Sératkvæði
|
Fimmtudaginn 6. maí 2010. |
|
|
Nr. 276/2010. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir fulltrúi) gegn X (Garðar K. Vilhjálmsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Sératkvæði.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. maí 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 4. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. apríl 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt þar til dómur gengur í máli hans, þó eigi lengur en til föstudagsins 28. maí 2010 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að beitt verði vægari úrræðum en gæsluvarðhaldi. Að því frágengnu krefst hann þess að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Þótt á skorti að í kröfu sóknaraðila um gæsluvarðhald og greinargerð hans fyrir Hæstarétti sé gerð grein fyrir þeirri háttsemi varnaraðila, sem leiði til þess að sterkur grunur leiki á að hann hafi gerst sekur um brot á 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, má fallast á að gögn málsins renni nægilega stoðum undir að skilyrði gæsluvarðhalds samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu fyrir hendi. Með þessum athugasemdum verður hinn kærði úrskurður staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Sératkvæði
Jóns Steinars Gunnlaugssonar
Ekki er unnt að fallast á með sóknaraðila að fram sé kominn sterkur grunur um að varnaraðili hafi framið brot sem varðað getur við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsirammi annarra brota sem hann er grunaður um að hafa framið er innan þeirra marka sem við er miðað í 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Af þessum ástæðum eru ekki uppfyllt lagaskilyrði fyrir því að verða megi við kröfu sóknaraðila og tel ég því að fella beri hinn kærða úrskurð úr gildi.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 30. apríl 2010.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur krafist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness með vísan til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að X, kt. og heimilisfang [...], verði með úrskurði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til föstudagsins 28. maí 2010 kl. 16.00.
Kærði mótmælir kröfunni.
Krafan er reist á því að kærði sé undir rökstuddum grun um brot á 2. mgr. 218. gr., 226. gr., 244. gr., 248. gr., 251. gr. og 254. gr. almennra hegningarlaga og lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.
Í kröfu lögreglustjórans kemur m.a. fram að þann 9. apríl 2010 hafi lögreglan stöðvað bifreiðina [...] en í henni voru kærði, A og B. Þessir aðilar hafi verið grunaðir um þjófnað á verkfæratösku fyrir framan leikskólann Heiðarsel í Reykjanesbæ. Á vettvangi hafi B viðurkennt að hafa tekið verkfæratöskuna ófrjálsri hendi og hafi hann verið handtekinn, færður á lögreglustöð og tekin af honum framburðarskýrsla. Hafi B skýrt svo frá að kærði hefði svipt hann frelsi sínu aðfaranótt 9. apríl 2010. Hafi hann verið sofandi heima hjá unnustu sinni er kærði hefði komið ásamt fleirum og numið hann á brott. Ítrekað hafi verið ráðist á hann og hann neyddur til að taka umrædda verkfæratösku. Í framhaldi af framburði B hafi kærði verið handtekinn og skömmu síðar vitorðsmaður hans, A. Í fórum A hafi fundist myndavél sem hafði að geyma myndir af árásinni á B á heimili kærða. Lögreglan hafi gert húsleit að heimili kærða í þeim tilgangi að leggja hald á muni sem hugsanlega hefðu verið notaðir við að veita B áverka. Við þá rannsókn hafi lögreglan fundið ýmsa muni sem væru notaðir til neyslu fíkniefna. Þá hafi lögreglan einnig gert húsleit hjá föður kærða og í fyrirtæki á vegum kærða. Við leit á þessum stöðum hafi lögreglan fundið og lagt hald á fjölda muna sem væru talin þýfi úr innbrotum á Suðurnesjum en undanfarið hafi mikil innbrotahrina gengið yfir umdæmið.
Lögreglan telur kærða vera undir rökstuddum grun um aðild að sérstaklega hættulegri líkamsárás, frelsissviptingu, þjófnuðum og fjárkúgun. Þá hafi kærði sagt hjá lögreglu að hann hyggist drepa B. Telur lögreglan að með tilliti til hagsmuna almennings sé nauðsynlegt að kærði sæti áfram gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er til meðferðar. Sérstaklega bendir lögreglustjóri á sakaskrá kærða en þar komi fram að hann hafi tvisvar sinnum verið dæmdur fyrir mjög alvarleg ofbeldisbrot.
Að öllu framangreindu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður fallist á það með lögreglustjóra að fyrir hendi sé rökstuddur grunur um að kærði hafi framið afbrot sem þung fangelsisrefsing er lögð við, allt að 16 ára fangelsi samkvæmt 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Verður talið að meint brot séu þess eðlis að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Krafa lögreglustjórans verður því tekin til greina eins og hún er fram sett og kærða gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til föstudagsins 28. maí 2010 kl. 16.00.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Kærði, X, skal sæta áfram gæsluvarðhaldi allt þar til dómur gengur í máli hans en þó eigi lengur en til föstudagsins 28. maí 2010, kl. 16.00.