Hæstiréttur íslands
Mál nr. 297/1999
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
- Gæsluvarðhaldsvist
|
|
Föstudaginn 30. júlí 1999. |
|
Nr. 297/1999. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík (Kolbrún Sævarsdóttir fulltrúi) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. a. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991. Gæsluvarðhaldsvist.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur, en gæsluvarðhaldstími styttur. Þá var einnig staðfestur úrskurður héraðsdóms um tilhögun á gæslu X.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Gunnlaugur Claessen og Hjörtur Torfason.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 28. júlí 1999, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 29. sama mánaðar. Kærðir eru tveir úrskurðir Héraðsdóms Reykjavíkur 28. júlí 1999, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 18. ágúst 1999 kl. 16, og staðfest var ákvörðun sóknaraðila um að varðhaldið yrði með þeim takmörkunum, sem heimilaðar eru í b., c. og d. lið 108. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Málin voru sameinuð með ákvörðun réttarins 30. júlí 1999. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991. Varnaraðili krefst þess að hinir kærðu úrskurðir verði felldir úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími og gæslan verði án takmarkana.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hinna kærðu úrskurða.
Með vísan til forsendna úrskurðar héraðsdóms verður á það fallist að skilyrðum a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 sé fullnægt til þess að varnaraðili sæti áfram gæsluvarðhaldi. Ekki eru þó efni til þess að ákvarða því lengri tíma en til föstudagsins 6. ágúst nk. kl. 16.
Úrskurður héraðsdóms um tilhögun á gæslu varnaraðila verður staðfestur.
Dómsorð:
Varnaraðili, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til 6. ágúst nk. kl. 16.
Úrskurður héraðsdóms um tilhögun á gæslu varnaraðila er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. júlí 1999.
Ár 1999, miðvikudaginn 28. júlí, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Páli Þorsteinssyni héraðsdómara, kveðinn upp úrskurður þessi.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 18. ágúst nk., kl. 16.00.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að [...]
Rökstuddur grunur sé um að kærði hafi framið brot er varðar getur fangelsisrefsingu samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Rannsókn málsins sé enn í gangi. Í síðastliðinni viku hafi verið send út réttarbeiðni til hollenskra yfirvalda þar sem m.a. hafi verið farið fram á að þau yfirheyrðu ofangreindan [...] o.fl. Telji lögregla nauðsynlegt að kærði sæti gæslu áfram þannig að koma megi í veg fyrir að hann hafi samband við [...] áður en hann verði yfirheyrður af hollensku lögreglunni og torveldi þannig rannsókn málsins. Sérstaklega beri að geta þess að [...] sé enn í einangrun í gæsluvarðhaldi því sem hún sæti í þágu málsins á þeirri forsendu að enn sé eftir að yfirheyra [...]. Það fyrirkomulag gæslunnar hafi verið staðfest í Hæstarétti þann 23. þ.m.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/ 1991 um meðferð opinberra mála, er þess beiðst að framangreind krafa nái fram að ganga.
Þegar framanritað er virt er það mat dómsins að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærði kunni að verða uppvís að broti er varðað gæti hann fangelsisrefsingu samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ef sannaðist. Ljóst er af gögnum málsins að rannsóknin er enn á frumstigi. Þegar litið er til alls framanritaðs telur dómurinn að uppfyllt séu skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 til að verða við kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um framhald gæsluvarðhalds yfir kærða. Verður krafan því tekin til greina eins og hún er fram sett.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi til miðvikudagsins 18. ágúst nk., kl. 16.00.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 28. júlí 1999.
Með vísan til þess sem fram er komið verður að telja ljóst að kærði gæti haft samband við aðila sem hugsanlega eru tengdir þessu máli ef að fallist yrði á kröfu kærða. Verður því að fallast á ákvörðun lögreglunnar í Reykjavík um fyrirhugað fyrirkomulag á gæsluvarðhaldi kærða.
Úrskurðarorð:
Fallist er á ákvörðun lögreglunnar í Reykjavík um fyrirkomulag á gæsluvarðhaldi varðandi kærða.