Hæstiréttur íslands
Mál nr. 244/2012
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Föstudaginn 13. apríl 2012. |
|
Nr. 244/2012. |
Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson hdl.) |
Kærumál.
Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um
að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr.
88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur
Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Þorgeir Örlygsson og Helgi I. Jónsson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 11. apríl 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. apríl 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 9. maí 2012 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. apríl 2012.
Ríkissaksóknari hefur í
dag krafist þess að ákærða, X, kennitala [...], til heimilis að [...] í
Reykjavík, verði með úrskurði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, allt til
miðvikudagsins 9. maí 2012, kl. 16:00.
Í greinargerð
ríkissaksóknara segir að með bréfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags.
7. febrúar 2012, hafi ríkissaksóknara borist gögn í máli 007-2011-74727. Með
ákæru, dags. 14. mars 2012, hafi ríkissaksóknari höfðað sakamál á hendur A,
kennitala[...], X, kennitala [...] B, kt. [...], C, kt. [...], D, kt. [...] og E, kt. [...] sem hér greinir:
I.
Gegn ákærðu A, X, B, D og
E fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, rán, nauðgun og þátttöku í
skipulagðri brotastarfsemi, aðfaranótt fimmtudagsins 22. desember 2011. Að
undirlagi ákærða X og ákærðu A, sem lögðu á ráðin og skipulögðu verknaðinn,
héldu ákærðu A, D, B og E að heimili F, kt. [...], að
[...] í [...] þar sem ákærði E lauk upp útidyrunum með lykli, skildi dyrnar
eftir ólæstar og greiddi þannig fyrir inngöngu meðákærðu A, B og D, sem skömmu
síðar ruddust í heimildarleysi inn á heimili F og veittust að G, kennitala [...],
sem var staddur í íbúðinni, þvinguðu hann með ofbeldi út úr íbúðinni og læstu
útidyrunum. Þá veittust þau með ofbeldi að F, slógu og spörkuðu ítrekað í höfuð
hennar og líkama, m.a. með leðurkylfu, skelltu henni í gólfið, drógu hana á
hárinu um íbúðina, reyttu og klipptu eða skáru hár hennar og rifu það upp með
rótum, skáru eða klipptu í hægri vísifingur hennar, slitu upp nögl á sama
fingri, hótuðu því að taka af henni alla fingur ef hún segði til þeirra og
neyddu upp í hana fíkniefnum. Þá lagði ákærða A hníf að hálsi F, auk þess sem
hún tók um háls F og þrengdi að öndunarvegi hennar. Ákærði B stakk fingrum upp
í endaþarm F og leggöng og klemmdi á milli ennfremur sem hann sagði við hana að
hún hefði ekki átt að „fokkast í þessari
fjölskyldu“. Ákærðu A, D og B höfðu á brott með sér farsíma þeirra F og G
auk lyklakippu F sem hafði m.a. að geyma hús-, bíl- og auðkennislykil. Ákærði E
skildi F eftir meðvitundarlitla, liggjandi í blóði sínu án bjargar og læsti
útidyrahurðinni er hann hafði sig á brott.
Brot ákærðu var liður í
starfsemi skipulagðra brotasamtaka en ákærðu öll eru meðlimir í eða hafa tengsl
við samtök sem lögregla hér á landi og erlendis hefur skilgreint sem alþjóðleg
glæpasamtök, en samtökin eru H auk stuðningssamtakanna I og J Verknaður ákærðu
var annars vegar hefndaraðgerð og hins vegar liður í því að endurheimta bifhjól
sem ákærða A taldi vera í sinni eigu en komst í vörslur F skömmu fyrir árásina
og til að endurheimta farsíma ákærðu A sem var einnig í vörslum F og hafði að
geyma tilteknar myndir af ákærðu A.
Við atlöguna hlaut F
heilahristing, mar, skrámur og yfirborðshrufl á
andliti, gagnaugum, hægri eyrnasnepli og höfði, glóðarauga og bólgu á vinstra
auga, skallabletti í hársverði, mar á hægra kjálkabarði, mar og roðaför hægra
megin á hálsi, dreifð eymsli í brjóstkassa og yfirborðsáverka á kvið,
yfirborðsáverka á baki, roðabletti og fjölmargar rispur á upphandleggjum, báðum
öxlum og ofanverðu baki, mar á vinstri kálfa, mar og eymsli á hægri sköflungi
og tognun í lendhrygg, brjósthrygg og hálshrygg, alldjúpan 2 sm skurð á hægri vísifingri og lausa nögl, roða og margar
húðrispur innanvert á lærum, bogadregna rispu rétt utan við endaþarmsop vinstra
megin, stóran marblett á vinstri rasskinn og annan minni þar fyrir neðan, mikil
eymsli í endaþarmi, leggöngum og spönginni þar á milli og áfallastreituröskun.
Brot ákærðu A, X, B, D og
E teljast varða við 175. gr. a., 1. mgr. 194. gr., 2. mgr. 218. gr. og 252.
gr., , almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk þess sem brot ákærða E telst
einnig varða við 1. mgr. 220. gr. sömu laga.
II.
Gegn ákærða C fyrir
þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi, sbr. I. ákærulið, með því að hafa, að
tilstuðlan ákærða X fyrir árásina sem þar er lýst, tekið við poka skömmu eftir
árásina sem hafði að geyma fatnað, þ.e. skíðagrímu og jakka, sem ákærði B
klæddist við árásina, auk ofangreindrar leðurkylfu, en ákærðu A, D og B afhentu
ákærða C pokann á dvalarstað hans að [...], [...]. Ákærði C geymdi innihald
pokans á heimili sínu þar til lögregla haldlagði munina þann 30. desember 2011.
Telst þetta varða við
175. gr. a. almennra hegningarlaga.
Málið, sem hafi fengið
númerið S-215/2012, hafi verið þingfest 30. mars sl. í Héraðsdómi Reykjaness og
ákærði X neitað sök og hafnað framkominni bótakröfu. Málinu hafi verið frestað
til framlagningar frekari gagna af hálfu ákæruvaldsins til dagsins í dag. Gert
sé ráð fyrir að málið verði tekið fyrir til framlagningar greinargerða af hálfu
ákærðu miðvikudaginn 18. apríl nk. Þá sé gert ráð fyrir að aðalmeðferð í málinu
fari fram 23. og 24. apríl nk.
Að mati ríkissaksóknara
liggi ákærði undir sterkum grun um að hafa í félagi við aðra ákærðu framið þau
brot sem tilgreind eru í ákæru, þá varði brot gegn 1. mgr. 194. gr., 2. mgr.
218. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 allt að 16 ára
fangelsi. Með hliðsjón af alvarleika sakarefnis og þess að ríkir almannahagsmunir
standi til þess að menn gangi ekki lausir þegar svo stendur á er þess krafist
að ákærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi meðan mál hans er til meðferðar
fyrir héraðsdómi, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Að öðru leyti er vísað
til fyrri úrskurða Héraðsdóms Reykjaness um gæsluvarðhald ákærða, nr.
R-43/2012, R-47/2012, R-90/2012 og R-132/2012 og dóma Hæstaréttar nr. 41/2012,
51/2012, 109/2012 og 167/2012.
Ákærði hefur sætt
gæsluvarðhaldi frá 13. janúar sl. Fyrst vegna rannsóknarhagsmuna en svo vegna
almannahagsmuna. Ákæra hefur verið gefin út á hendur honum og aðalmeðferð í
málinu hefur verið ákveðin 23. og 24. apríl nk. Er fallist á að enn séu
skilyrði fyrir því að hann sæti gæsluvarðhaldi samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga
nr. 88/2008, meðan mál hans er til meðferðar fyrir dómi. Er því fallist á kröfu
ríkissaksóknara, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
kveður upp þennan úrskurð.
Ú r s k u r ð a r o r ð:
Ákærði, X, sæti áfram
gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 9. maí 2012, kl. 16:00