Hæstiréttur íslands

Mál nr. 69/2005


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Þriðjudaginn 22

 

Þriðjudaginn 22. febrúar 2005.

Nr. 69/2005.

Ákæruvaldið

(Bogi Nilsson ríkissaksóknari)

gegn

X

(Hilmar Ingimundarson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir, Árni Kolbeinsson og Garðar Gíslason.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 16. febrúar 2005, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 21. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 16. febrúar 2005, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 25. febrúar 2005 kl. 16.00. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 16. febrúar 2005.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að X verði á grundvelli  2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, en þó ekki lengur en til miðvikudagsins 2. mars nk. kl. 16.00.

Í greinargerð ríkissaksóknara kemur fram að þann 30. nóvember s.l. hafi ríkissaksaksóknari gefið út ákæru á hendur ákærða fyrir tilraun til manndráps, en til vara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa, aðfaranótt þriðjudagsins 27. júlí  2004, við [...], Reykjavík, fyrirvaralaust lagt til A, með óþekktu eggvopni, þar sem A hafi setið við opinn glugga í  ökumannssæti leigubifreiðar sinnar og beðið greiðslu á ökugjaldi frá ákærða sem hafi staðið fyrir utan bifreiðina. Hafi A hlotið 18 sentimetra langan skurð vinstra megin á hálsi.  Brotið sé heimfært undir 211. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en til vara við 2. mgr. 218. gr. sömu laga, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981. Aðalmeðferð sé lokið í málinu (nr. S-2805/2004) og bíði það nú dóms.

             Ákærði hafi ekki tjáð sig um árásina í yfirheyrslum hjá lögreglu eða fyrir dómi og borið því við að hann sé haldinn minnisleysi um atvik þessa nótt sökum mikillar áfengisneyslu. Að mati ákæruvaldsins liggi hins vegar fyrir framburðir vitna sem bendi til þess að ákærði hafi ráðist á A í umrætt sinn.  Ekkert í málinu bendi til þess að ákærði eigi sér sérstakar málsbætur, þar sem um sé að ræða fyrirvaralausa árás á einstakling sem ákærði hafi ekkert átt sökótt við, með sérstaklega hættulegu vopni, og megi mikla mildi telja að ekki hlaust mannsbani af.

             Ákærði hafi setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli úrskurðar frá 27. júlí 2004 fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna en frá 9. ágúst 2004 á grundvelli almannahagsmuna.

             Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna, 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, og dóma Hæstaréttar í málum ákærða nr. 331/2004, 430/2004 og 487/2004, sé þess krafist að framangreind krafa nái fram að ganga.. Hagsmunir almennings krefjist  þess að maður sem framið hafi eins alvarlegt brot og hér um ræði verði í gæsluvarðhaldi uns mál hans hafi verið afgreitt fyrir dómstólum.

   Brot þetta getur varðað allt að 16 ára fangelsi ef sök sannast, sbr. 211. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., eða 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.  Fallist er á að almannahagsmunir krefjist þess að ákærði sæti áfram gæslu­varðhaldi.  Aðalmeðferð í máli ákærða er lokið en dómur hefur ekki verið kveðinn upp.

   Með vísan til þessa og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 eru uppfyllt skilyrði til að ákærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi.  Ber því að fallast á kröfu lögreglu­stjórans í Reykjavík um gæsluvarðhald ákærða svo sem greinir í úrskurðarorði.

Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.

Úrskurðarorð:

Ákærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans, en þó ekki lengur en til föstudagsins 25. febrúar nk. kl. 16.00.