Hæstiréttur íslands
Mál nr. 558/2006
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Fimmtudaginn 26. október 2006. |
|
Nr. 558/2006. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón Steinar Gunnlaugsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 24. október 2006, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 25. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. október 2006, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 3. nóvember 2006 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 24. október 2006.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur lagt fram kröfu þess efnis að X, [kt. og heimilisfang], sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 3. nóvember 2006, kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglunnar segir að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans í Reykjavík rannsaki meint fíkniefnalagabrot kærða sem varði innflutning á fíkniefnum til landsins þann 12. og 13. október sl. Þann 12. október sl. hafi A, [kt.], og B, [kt.], verið handteknir eftir komuna til landsins frá Kaupmannahöfn. Þeir hafi verið handteknir í bifreiðinni [...] á Bústaðavegi við Reykjanesbraut. Í bifreiðinni hafi fundist skópar sem innihélt fíkniefni. Þeir hafi báðir játað aðild sína að framangreindum innflutningi fíkniefna. Sé nánar vísað til framburðarskýrslna. Þann 13. október hafi svo C, [kt.], verið handtekinn eftir komu til landsins frá Kaupmannahöfn. Í fórum hans hafi fundist fíkniefni. Hann hafi játað sök en hann hafi m.a. greint frá því að hann hafi flutt þau til landsins fyrir ónafngreinda aðila til að losna við fíkniefnaskuldir. Sé nánar vísað til framburðarskýrslna. Símagögn bendi til þess að kærði hafi staðið að innflutningi þessara fíkniefna, sbr. fyrirliggjandi greinargerðir í rannsóknargögnum.
Kærði þyki vera undir rökstuddum grun um aðild að fíkniefnabroti. Nauðsynlegt sé að upplýsa nánar um meinta aðild kærða að brotinu og tengsl við aðra meinta vitorðsmenn sem tengist málinu, hérlendis sem erlendis, óþekktir á þessu stigi, sem kunni að tengjast fjármögnun, kaupum á fíkniefnunum og ætlaðri móttöku og dreifingu efnanna hér á landi. Nauðsynlegt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi en ljóst sé að gangi kærði laus geti hann sett sig í samband við meinta vitorðsmenn sem gangi lausir eða þeir geti sett sig í samband við hann eða kærði geti komið undan gögnum með sönnunargildi sem ekki hafi verið lagt hald á. Þyki þannig brýnt að vernda rannsóknarhagmuni á þessu stigi málsins með því að varna því að kærði gangi laus.
Sakarefnið sé talið geta varðað við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974 og 1. gr. laga nr. 32/2001.Um heimild til gæsluvarðhalds sé vísað til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Samkvæmt því sem að framan segir svo og rannsóknargögnum sem liggja fyrir dóminum liggur rökstuddur grunur á því að kærði eigi aðild að fíkniefnabroti sem getur varðað fangelsisrefsingu skv. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum. Rannsókn málsins er á frumstigi og telur dómarinn að skilyrði a- liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála séu uppfyllt og verður krafa lögreglustjórans í Reykjavík tekin til greina eins og hún er fram sett.
Allan Vagn Magnússon héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, [kt.], sæti gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 3. nóvember 2006, kl. 16:00.