Hæstiréttur íslands
Mál nr. 344/2011
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Miðvikudaginn 1. júní 2011. |
|
Nr. 344/2011. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H.B. Snorrason saksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Jón Steinar Gunnlaugsson og Viðar Már Matthíasson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 27. maí 2011, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 31. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 27. maí 2011, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 23. júní 2011 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Varnaraðili er sakaður um að hafa í félagi við annan mann að kvöldi þriðjudagsins 10. maí 2011 um klukkan 21 svipt A frelsi sínu og haldið honum nauðugum í ávinningsskyni á þeim stöðum, sem getur í hinum kærða úrskurði, þar til hann slapp frá þeim um hádegi daginn eftir. Eru þeir einnig sakaðir um að hafa misþyrmt A og svívirt á ýmsan hátt meðan á frelsissviptingunni stóð. Fallist er á með héraðsdómi að sterkur grunur leiki á að varnaraðili hafi viðhaft háttsemi þá, sem að framan greinir, og getur varðað 10 ára fangelsi. Háttsemi þessi er mjög alvarlegs eðlis og verður fallist á að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Er þannig fullnægt skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og verður hinn kærði úrskurður staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 27. maí 2011.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...] verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 23. júní 2011, kl. 16.00.
Kærði hafnaði kröfunni.
Í greinargerð lögreglustjóra kemur fram að lögreglan hafi nú til rannsóknar ofbeldis-, hótunar- og frelsissviptingarbrot kærða, þar sem honum sé gefið að sök að hafa í félagi við meðkærða Y að kvöldi þriðjudagsins 11. maí og aðfaranótt 12. maí svipt A frelsi sínu, haldið honum nauðugum á heimili Y að [...] í Hafnarfirði, í geymsluhúsnæði að [...] í Reykjavík og í bifreið sinni, misþyrmt honum og svívirt með margvíslegum hætti. Séu brotin talin varða við 218. gr., 226. gr. og 231. gr. almennra hegningarlaga.
Málavextir séu þeir helstir að 11. maí sl. hafi brotaþoli, A, leitað til lögreglu og skýrt frá því að kærði, ásamt Y, hafi haldið sér í gíslingu og misþyrmt sér á heimili Y að [...] í Hafnarfirði og í bifreið X. Hafi kærðu, Y og X, verið handteknir grunaðir um að hafa svipt A frelsi sínu, hótað honum og misþyrmt. Hafi kærðu í kjölfarið verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. til 20. maí kl. 16, sbr. dóma Hæstaréttar Íslands nr. 293/2011 og 294/2011. Hafi varðhaldið verið framlengt til dagsins í dag, sbr. úrskurð Héraðsdóms Reykjaness og dóm Hæstaréttar nr. 322/2011. Brotaþoli, A, hafi skýrt frá því að kærði X hafi sótt sig um kl. 21:00 að kvöldi þriðjudagsins 10. maí sl. í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði og honum ekið að heimili Y, þar sem hann hafi mátt þola margvíslegar árásir, hann hafi verið laminn margítrekað í höfuð og líkama, með ýmsum áhöldum, hann hafi verið hýddur með þykkri rafmagnssnúru, honum hótað að skornar yrðu í sundur sinar á fótleggjum og tennur dregnar úr honum, sbr. nánar meðfylgjandi lögregluskýrslu. Barsmíðarnar hafi staðið yfir allt frá því hann hafi komið í húsnæðið til kl. 00:30 um nóttina. Hafi hann svo verið fluttur um nóttina, með einhverskonar hettu yfir höfðinu, frá húsnæðinu í geymsluhúsnæði, sem hann kvaðst ekki vita hvar hafi verið. Þar hafi honum verið haldið til morguns er X hafi sótt hann og ekið með hann aftur að heimili Y. Á leiðinni hafi kærði X tekið “hettuna” af honum og hent út um glugga bifreiðarinnar. Þeir hafi þá verið staddir rétt við Sprengisand við Reykjanesbraut. Lögreglan hafi fundið húfu við Sprengisand sem talin sé að hafi verið sett yfir höfuð A, en beðið sé niðurstaðna tæknideildar á húfunni. Er þeir hafi komið á heimili Y þá hafi hann verið vistaður þar inni á baðherbergi. Kærðu hafi haft uppi miklar ásakanir á hendur honum og kveðið hann skulda sér 10 milljónir króna. Um kl. 10:00 hafi þeir, X og A, farið aftur út í því augnamiði að svíkja út fasteign og bifreiðar með því að nota kennitölu A, hann hafi hins vegar sloppið út úr bifreið X um kl. 12:00, þar sem þeir voru staddir í Borgartúni í Reykjavík.
A kvaðst hafa verið í umrætt sinn m.a. klæddur í brúnar Carhart buxur og nærbuxur gráar og marglitar. Buxurnar hafi rifnað í átökunum og hann jafnframt misst saur í buxurnar. Kærði Y hafi þá sótt aðrar buxur handa honum og hent Carhart buxunum og nærbuxunum inn í þvottahús. Í umræddu þvottahúsi hafi lögregla fundið rifnar Carhart buxur og karlmannsnærbuxur gráar og marglitar. Aðspurður hvers vegna kærðu hafi ráðist á hann kvað hann þá hafa talað um að hann hefði svikið þá og skemmt mannorð X með illu umtali. A kvaðst hafa trúað hótunum Y um barsmíðar, en Y hafi haldið á vopnum til að leggja áherslu á orð sín. A kvaðst hafa verið laminn meira og minna í skömmtum, milli þess sem hann hafi þrifið íbúð Y, m.a. blóð eftir sjálfan sig. Hann hafi sagt að sér hafi liðið mjög illa á meðan frelsissviptingunni og barsmíðunum hafi staðið, enda hafi hann séð fyrir sér að verða drepinn og þeirri tilfinningu gæti hann ekki lýst.
A hafi hlotið talsverða áverka eftir barsmíðar kærðu, m.a. nefbrot, fjölda yfirborðsáverka og tognanir, auk þess sem hann hafi haft sjóntruflanir og ógleði, sbr. nánar meðfylgjandi áverkavottorð og ljósmyndir. Við leit í íbúð kærða Y hafi mátt sjá blóðslettur á vegg, á gangi og í svefnherbergi, sem lögregla ætli að sé úr brotaþola A. Þá hafi lögregla fundið í íbúðinni samskonar sverð, hníf og leðurbelti sem A hafði lýst að notað hafi verið gagnvart sér. Þá hafi blóð fundist í bifreið kærða X, sem lögregla ætli að sé komið frá A. Tekin hafi verið blóðsýni úr íbúðinni og bifreiðinni sem bíði niðurstaðna tæknirannsóknar. Í síma Y hafi fundist drög að smáskilaboðum til A þar sem fram komi grófar hótanir um líkamlegt ofbeldi greiði hann ekki tiltekna skuld. Lögregla hafi fundið húsnæðið sem brotaþoli A hafi verið vistaður í og komi lýsing hans á því heim og saman við húsnæðið. Þá hafi lögregla fundið þar tóbakskodda (munntóbak) sem brotaþoli kvaðst hafa skilið eftir. Hafi koddinn verið tekinn til rannsóknar m.t.t. DNA-rannsóknar. Þá hafi lögregla framkvæmt könnun á staðsetningum á símum kærðu og brotaþola á umræddu tímabili, m.t.t. framburðar brotaþola, og komi staðsetningarnar vel heim og saman við frásögn hans. Þá liggi fyrir í málinu framburðir nágranna kærða Y að [...] um að mikil læti og barsmíðar hafi borist frá íbúð kærða umrætt kvöld.
Kærði X hafi alfarið neitað sök í málinu. Fyrir liggi fyrir greinargóður og skýr framburður brotaþola. Þau sönnunargögn og athuganir sem lögregla hafi aflað í máli þessu styðji ótvírætt frásögn brotaþola. Framburður kærða X sé á hinn bóginn ótrúverðugur og algjörlega á skjön við það sem fram hafi komið við rannsókn málsins. Þá gæti mikils ósamræmis í framburði hans og framburði meðkærða Y. Ljóst megi því vera að kærði X sé nú, þrátt fyrir neitun hans, undir sterkum grun um að hafa, í félagi við Y, svipt A frelsi sínu og misþyrmt og þannig brotið gegn 1. mgr. 218. gr., 2. mgr. 226. gr. og 231. gr. almennra hegningarlaga.
Samkvæmt upplýsingum og gögnum sem lögregla hafi undir höndum séu kærðu meðlimir í mótorhjólagengi sem kenni sig við [...] og sé kærði Y fyrirsvarsmaður samtakanna. Það sé grunur lögreglu að ofangreind brot séu unnin í nafni samtakanna. Í kjölfar máls þessa hafi lögreglu borist upplýsingar um að kærðu, Y og X, hafi kúgað fé út úr nafngreindum manni. Þann 18. maí sl. hafi lögregla haft samband við umræddan mann. Hafi hann staðfest að hafa greitt kærðu umtalsverða fjárupphæð, sbr. nánar upplýsingaskýrslu lögreglu, í því skyni að koma syni sínum undan þeim. Hafi lögregla ítrekað farið fram á að viðkomandi gæfi formlega vitnaskýrslu vegna málsins. Af ótta við kærðu hafi hann hvorki vilja kæra tilvikið til lögreglu né að lögregla aðhafist í málinu. Lögregla muni taka málið til frekari skoðunar og rannsóknar.
Það sé mat lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að lagaskilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 séu uppfyllt. Enda sé kærði nú undir sterkum rökstuddum grun um að hafa framið brot sem varðað getur allt að ævilöngu fangelsi og sé í eðli sínu svo svívirðilegt að almannhagsmunir krefjist þess að hann sæti áfram gæsluvarðhaldi. Myndi það valda mikilli hneykslun og særa réttarvitund almennings gangi kærði frjáls ferða sinna.
Að svipta annan mann frelsi sínu með þeim hætti sem kærði hafi nú orðið uppvís að sé eitt af alvarlegustu afbrotum sem lýst sé í almennum hegningarlögum. Að frátöldum landráðs- og stjórnskipunarbrotum X. og XI. kafla laganna séu einungis tvö önnur ákvæði sem bjóði ævilanga fangelsisrefsingu, þ.e. manndráp samkvæmt 211. gr. og frelsissvipting samkvæmt 193. gr. laganna.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.
Með vísan til þess sem að framan er rakið og gagna málsins er fallist á það með lögreglustjóra að kærði sé undir sterkum grun um að hafa framið afbrot sem að lögum getur varðað allt að 10 ára fangelsi. Enn fremur er fallist á það að brot það sem kærði er grunaður um að hafa framið sé þess eðlis að varðhald teljist nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Samkvæmt þessu eru uppfyllt skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og verður því fallist á kröfu lögreglustjóra um gæsluvarðhald eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp þennan úrskurð.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 23. júní 2011 kl. 16:00.