Hæstiréttur íslands
Mál nr. 466/2009
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
|
Mánudaginn 17. ágúst 2009. |
|
Nr. 466/2009. |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu(Stefán Eiríksson lögreglustjóri) gegn X (Oddgeir Einarsson hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. ágúst 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 14. ágúst 2009, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 21. ágúst 2009 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á því stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur föstudaginn 14. ágúst, árið 2009.
Ár 2009, föstudaginn 14. ágúst er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjatorg af Sigrúnu Guðmundsdóttur héraðsdómara, kveðinn upp svofelldur úrskurður.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði kærðu X, kt. [...], [...], Kópavogi, til að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 21. ágúst nk. kl. 16 og að tilhögun gæsluvarðhalds verði í formi einangrunar.
Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að í gær um kl. 12:35 hafi kærða verið handtekinn, ásamt sambýlismanni sínum, A, við verslunina Æ að [...] í Reykjavík. Í fórum kærðu hafi fundist skartgripir sem stolnir hafi verið í innbroti í íbúðarhúsnæði að Y í Reykjavík þann 8. ágúst sl.
Í framhaldi framkvæmdi lögreglan húsleit á heimili kærðu að [...] í Kópavogi, þar sem hald hafi verð lagt á mikið magn skartgripa, myndavéla og annarra muna sem lögreglan telur víst að séu þýfi. (sjá nánar meðfylgjandi húsleitarskýrslu og myndir).
Á meðal þeirra muna sem fundist hafi á heimili kærðu hafi verið þýfi sem rekja megi til innbrots í íbúðarhúsnæði að Z í Reykjavík, sjá mál nr. 007-2009-48965, sem framið var 12. ágúst sl.
Í yfirheyrslu hjá lögreglu í gær kvaðst kærða hafa fengið skartgripi þá sem hún var með við handtökuna hjá meðkærða Aog kveðst hún hafa ætlað að selja þá í versluninni Þ Hún kvaðst ekki hafa vitað að um þýfi væri að ræða. Þá vissi hún ekki hvar A fékk skartgripina.
Ekki hafi reynst unnt að yfirheyra hana vegna hinna haldlögðu muna sem fundust á heimili hennar
Rannsókn málsins sé á frumstigi. Lögregla vinni nú hörðum höndum að því að rekja hið meinta þýfi til innbrota sem framin hafi verið á höfuðborgarsvæðinu, en eins og kunnugt sé hafi lögreglu borist fjölmargar tilkynningar um innbrot inná heimili fólks á allra síðustu dögum og vikum. Þá liggi fyrir að lögreglan leitar ofangreinds B sem A kvaðst hafa fengið skartgripina hjá.
Umræddur B sé talin tengjast hópi manna sem séu virkir aðilar í innbrotum hér á höfuðborgarsvæðinu og lögregla hafi kortlagt, sjá nánar meðfylgjandi skýringarmynd.
Á meðan á yfirheyrslu lögreglu stóð í gær yfir kærðu og sambýlismanni hennar, meðkærða A, hafi aðili að nafni C verið sífellt að hringja í þau. C þessi býr á sama stað og D, sem hafi í gær verið úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um stórfelld þjófnaðarbrot og tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Þannig megi telja víst að kærða og meðkærði A tengjast þessum hópi manna sem talinn sé virkur í brotastarfsemi.
Rannsókn málsins sé á viðkvæmu stigi og því afar brýnt að kærða fái ekki tækifæri til að torvelda henni, s.s. með því að koma undan munum, hafa áhrif á aðra samseka eða vitni.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og a liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga
Þegar framanritað er virt er það mat dómsins að fram sé kominn rökstuddur grunur um að kærða kunna að verða uppvís að broti er varðar gæti fangelsisrefsingu, ef sannast. Þýfi hefur fundist á heimili kærðu og er rannsókn málsins á frumstigi. Þegar litið er til alls framanritaðs telur dómurinn að uppfyllt séu skilyrði a liðar 1. mgr. 95. gr. 88/2008 til að verða við kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um gæsluvarðhald og er hún tekin til greina eins og hún er sett fram.
Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærða, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 21. ágúst nk. kl. 16.00.
Kærði skal sæta einangrun á meðan á gæsluvarðhaldi stendur.