Hæstiréttur íslands
Mál nr. 214/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason og Karl Axelsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 1. apríl 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 3. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 1. apríl 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 28. apríl 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 1. apríl 2017.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 28. apríl 2017, kl. 16.00.
Af hálfu kærða hefur kröfu lögreglustjórans verið mótmælt og þess krafist að henni verði hafnað en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Í greinargerð aðstoðarsaksóknara kemur fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi í gær 31. mars kl. 17.05 fengið tilkynningu um að aðili hefði verið rændur á við Skautahöllina í Laugardal við Múlaveg í Reykjavík. Þegar lögreglan hafi komið á vettvang hafi þeir hitt fyrir árásarþola inn í Skautahöllinni. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafði kærði neytt árásarþola með hníf/stunguvopni til að millifæra af reikningi sínum í gegnum síma yfir á reikning kærða. Samkvæmt lýsingu brotaþola hafði honum verið ógnað með hníf/stunguvopn og verið borið að hálsi brotaþola og hann verið krafinn um fjármuni. Kvaðst brotaþoli hafa í fyrstu hafa neitað því að aflæsa símanum og fara í heimabankann, en þá hafi kærði tekið upp hnífinn/stunguvopnið og stungið brotaþola í handarbak vinstri handar. Kvað brotaþoli kærða einnig haft uppi hótanir um að stinga og skera brotaþola, jafnframt hótað að nauðga honum ef hann segði frá atvikinu Brotaþoli kveðst hafa orðið af 1.050.000,- kr í tveimur færslum, annars vegar 1.000.000.- kr. og 50.000.- kr. Hafi kærði þá beitt hníf/stunguvopni að hálsi árásarþola. Þá hafði kærði einnig rænt svörtum bakpoka með fartölvu og sem og síma brotaþola. Brotaþoli hafi getað gefið lýsingu á kærða og hafi m.a. getað lýst tattúi á annarri hendinni.
Aðili sem hafi verið við vinnu á Þróttarsvæðinu í Laugardalnum kvaðst hafa séð aðila vera að reyna að brjótast inn í bifreiðina sína fyrr um daginn. Kvaðst vitnið hafa náð að stöðva kærða. Hafi kærði þá farið í burtu en hótað að stinga vitnið. Kærði hafi svo ekið í burtu á bifreiðinni [...]. Vitnið hafi getað lýst aðila en sú lýsing hafi getað átt við lýsingu brotaþola í ránsmálinu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi vitnið talið að kærði hefði verið með sólgleraugu og hafi talið hann sig geta þekkt kærða á myndum.
Lögregla hafi fljótlega komist að kennitölu eiganda reikningsins sem millifært hafi verið á sem og reikningsnúmer, en um hafi verið að ræða reikningsnúmer skráð á kærða.
Kærði hafi verið handtekinn, í gærkvöldi um klukkan 22.30 í Kópavogi á bifreiðinni [...], en við leit í bifreiðinni og kærða hafi fundist sími brotaþola, bakpoki og fartölva. Einnig hafi fundist sólglerauga á kærða, sem hafi geta átt við lýsingu brotaþola.
Kærði neiti að tjá sig og gefi ekki skýringar á ferðum sínum eða þeim munum sem hafi fundist í fórum hans, sem og greiðslunni, sem hafi borist inn á reikning kærða.
Rannsókn málsins sé vel á veg komin, en kærði liggi undir sterkum grun um að hafa rænt aðila með grófum hætti og látið millifæra á reikning sinn kr. 1.050.000,- og rænt, síma bakpoka og fartölvu.
Brot það sem kærði sé sterklega grunaður um sé sérstaklega alvarlegt og sé talið geta varðað við 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940, en slíkt brot geti varðað fangelsi allt að 16 árum ef sök sannast. Það sé mat lögreglu að nauðsyn sé til að kærði sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna þar sem hann sé undir sterkum grun um að hafa með ofbeldi rænt aðila og stungið í höndina með hníf/stunguvopni. Einnig sé það mat lögreglu að óeðlilegt sé að kærði gangi laus þar sem hann hafi framið gróft ránsbrot og að réttarvitund almennings krefjist þess að sakborningur sæti gæsluvarðhaldi allt til að ákæra verði gefin út og dómur fellur vegna eðli brotsins.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi kærði hlotið 9 mánaða fangelsisdóm fyrir rán í maí 2014 , sbr. [...] og síðast 2 mánaða fangelsisdóm í maí 2016 fyrir vörslur fíkniefna og umferðarlagabrot, sbr. [...]. Fjögur önnur mál bíði afgreiðslu hjá lögreglu, mál númer [...], rannsókn á líkamsárás frá 26. mars sl., [...], umferðarlagabrot frá 22. mars sl., ekið sviptur ökurétti, mál [...], 18. mars tilraun til fjársvika í Elko Skeifunnni og svo eldra mál lögreglunnar á Vesturlandi í Borgarnesi frá 12. júlí 2016, [...] þar sem kærði ásamt fleiri aðilum er kærður fyrir rán, eftir atvikum fjárkúgun, frelsissviptingu og hótanir, en það mál verður sent héraðssaksóknara fljótlega.
Að mati ákæruvaldsins sé því uppfyllt skilyrði ákvæðis 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88, 2008, þar sem um sterkan grun sé að ræða. Einnig sé það mat ákæruvaldsins að almannahagsmunir krefjist þess að maður undir sterkum grun um að hafa gerst sekur um jafn alvarlegt ránsbrot og, sem varðar allt að 16 ára fangelsi, sæti gæsluvarðhaldi allt þar til máli hans er lokið hjá lögreglu, ákæruvaldi og fyrir dómi.
Niðurstaða:
Ljóst er af framlögðum gögnum að kærði er undir sterkum grun um að hafa gerst sekur um brot gegn 233. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot gegn 233. gr. varða sektum eða fangelsi allt að 2 árum en brot gegn 252. gr. varða fangelsi allt að 10 árum en allt að 16 árum hafi mjög mikil hætta verið samfara ráninu. Í greinargerð lögreglustjóra sem fær stoð í gögnum málsins er því lýst að kærði hafi otað hnífi að brotaþola og stungið hann í handarbakið. Þá liggur fyrir að kærði hefur hlotið dóm fyrir rán í maí 2014.
Þegar litið er til framangreinds verður að fallast á með lögreglustjóranum að ætlað brot kærða sé gróft og að nauðsynlegt sé, með tilliti til almannahagsmuna, að tryggja að kærði gangi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar. Að mati dómsins eru uppfyllt öll skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til þess að gera kærða að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli þess ákvæðis. Þá þykja ekki efni til að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma en krafist er.
Að öllu framangreindu virtu verður krafa lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu tekin til greina eins og hún er fram sett nánar greinir í úrskurðarorði.
Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 28. apríl 2017, kl. 16.00.