Hæstiréttur íslands

Mál nr. 84/2002


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


Föstudaginn 15

 

Föstudaginn 15. febrúar 2002.

Nr. 84/2002.

Lögreglustjórinn í Reykjavík

(Egill Stephensen saksóknari)

gegn

X

(Jón Egilsson hdl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og  Ingibjörg Benediktsdóttir.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með ódagsettri kæru, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 14. febrúar 2002. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. sama mánaðar, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 25. febrúar 2002 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

 

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 11. febrúar 2002.

Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 25. febrúar nk. klukkan 16.00.

                Í greinargerð lögreglustjórans í Reykjavík kemur fram að [...].

                Fyrirliggjandi rannsóknargögn bera með sér að málið er umfangsmikið.  Kærði neitar sakargiftum og kannast ekki við aðild að innflutningi fíkniefna.    Rannsóknargögn sem fyrir liggja, svo sem endurrit af símhlerunum og framburðar­skýrslur veita hins vegar grunsemdir um aðild hans að málinu þannig að telja verður að rökstuddur grunur sé fram kominn um að hann tengist meintu broti.  Með hliðsjón af því að rannsókn málsins er engan veginn lokið og hætta á því að kærði geti torveldað rannsókn málsins fari hann frjáls ferða sinna með því að hafa samband við aðra sem kunna að tengjast meintu broti og hann hefur tengsl við þykja skilyrði a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála vera fyrir hendi og ber að taka til greina kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um að kærði sæti gæsluvarðhaldi til mánudagsins 25. febrúar nk. klukkan 16.00, en með hliðsjón af umfangi málsins þykja ekki efni til að marka gæsluvarðhaldinu styttri tíma.

Úrskurðarorð:

          Kærði, X, sæti gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 25. febrúar nk. kl. 16.00.