Hæstiréttur íslands

Mál nr. 617/2008


Lykilorð

  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991


                                     

Mánudaginn 17. nóvember 2008.

Nr. 617/2008.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Jón H. B. Snorrason, saksóknari)

gegn

X

(Sveinn Andri Sveinsson hrl.)

 

Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson, Hjördís Hákonardóttir og Páll Hreinsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 13. nóvember 2008, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 13. nóvember 2008, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 27. nóvember 2008 kl. 16. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.            

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 13. nóvember 2008

Með beiðni lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri í dag, er þess krafist X, kt. [...], [heimilisf.], Reykjavík, verði með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 27. nóvember 2008, kl. 16:00.

Í greinargerð lögreglustjórans segir að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi að undanförnu haft til rannsóknar ætlaða stórfellda framleiðslu og dreifingu fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu. Talið sé að kærði standi að framleiðslu fíkniefna ásamt A og mögulega fleiri mönnum. Hafi kærði ásamt A verið með aðstöðu í iðnaðarhúsnæði á tveimur stöðum, að Y og Z í Hafnarfirði og sé talið að framleiðslan hafi farið fram þar. Hafi lögreglan fylgst með greindum stöðum og hafi kærði og A sést á báðum stöðum og fara þar inn.

Hinn 16. október sl. hafi lögreglan farið inn í framangreint iðnaðarhúsnæði að Z og að Y. Kærði hafi komið inn í húsnæðið að Z og þá verið handtekinn. Þar inni hafi verið mikið magn ætlaðra sterkra fíkniefna, auk þess sem uppsett hafi verið tæki sem sérfræðingum beri um að unnt sé að nota við framleiðslu sterkra fíkniefna. Tekin hafi verið sýni úr efnum á staðnum og fyrsta svörun verið methamfetamine, en efnin verði send til frekari greiningar. Sérfræðingar hafi verið fengnir á vettvang til að meta umfang framleiðslunnar og ætlaða almannahættu sem kunni að hafa verið samfara framleiðslunni. Samkvæmt upplýsingum þeirra kunni sprengihætta að fylgja efnaframleiðslu þeirri sem talið sé að hafi farið fram í húsnæðinu. Sérfræðingar frá Europol, sem farið hafi á vettvang, hafi talið að verksmiðjuna hafi mjög mikla framleiðslugetu og að fagmannlega hafi verið að verki staðið. Miðað við þau efni og þann tækjabúnað, hafi verið í húsnæðinu, hafi þeir talið að mögulegt hafi verið að framleiða þar amfetamín, methamfetamín og MDMA. Í húsnæðinu að Y hafi fundist rúmlega 700 g af amfetamíni og í húsnæðinu að Z hafi fundist rúmlega 18 kg af hassi í ferðatösku.

Í greinargerð segir að kærði hafi borið svo um í skýrslutöku hjá lögreglu að hann hafi tekið að sér að framleiða fenýlaseton fyrir ónafngreindan aðila og að honum hafi verið kunnugt um að viðkomandi hafi ætlað að nota efnið til framleiðslu á amfetamíni. Fenýlaseton sé á lista í fylgiskjali II við reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, en samkvæmt reglugerðinni sé um að ræða efni, sem nota megi við ólöglega ræktun, framleiðslu eða tilbúning ávana- og fíkniefna og annarra eftirlitsskyldra efna og skráð séu í listum I - II í alþjóðasamningi gegn ólöglegri verslun með ávana- og fíkniefni 1988, (United Nations Convention against Illicit Traffic in Narcotic Drugs and Psychotropic Substances 1988).

Lögregla kveður rannsókn sína miða að því að finna út hvernig staðið hafi verið að hinni ætluðu framleiðslu, umfangi framleiðslunnar, hvort efni hafi verið farin í dreifingu, fjármögnun, skipulagningu og hvort fleiri aðilar tengist ætlaðri framleiðslu og dreifingu. Er bent á að kærði hafi sjálfur borið um að hann hafi verið að vinna fenylseton fyrir annan aðila, sem hafi ætlað að nota það við amfetamínframleiðslu. Rannsóknin sé mjög umfangsmikil og talið sé að mikil vinna verði við úrvinnslu gagna sem aflað hafi verið og muni verða aflað við rannsóknina.

Í greinargerð lögreglu er jafnframt greint frá því að kærði hafi hlotið dóm m.a. fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Kærða hafi verið veitt reynslulausn þann 8. febrúar 2007 í 2 ár á 300 daga eftirstöðvum refsingar vegna dóms í máli Hæstaréttar nr. 510/2004.

Rökstuddur grunur sé um stórfellt fíkniefnabrot kærða. Nauðsynlegt sé að kærði sæti gæsluvarðhaldi vegna málsins svo honum sé fyrirmunað að setja sig í samband við ætlaða vitorðsmenn og/eða vitni og/eða að kærði geti komið undan gögnum sem sönnunargildi hafa í málinu og hafi ekki verið haldlögð. Þyki þannig nauðsynlegt að vernda rannsóknarhagsmuni málsins með því að kærði sæti gæsluvarðhaldi. Til rannsóknar sé ætlað brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til gæsluvarðhalds vísar lögreglustjórinn til a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Kærði hefur mótmælt framkominni gæsluvarðhaldskröfu og krefst þess að henni verði hafnað.

Að öllu framanrituðu virtu, sem og gögnum málsins að öðru leyti, verður að fallast á það með lögreglustjóra að fyrir hendi sé rökstuddur grunur um að kærði hafi átt aðild að framleiðslu og dreifingu fíkniefna sem fangelsisrefsing er lögð við. Rannsókn málsins er ekki lokið. Haldi kærði frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins með því að skjóta undan gögnum eða hafa áhrif á vætti hugsanlegra vitna eða vitorðsmanna. Eru uppfyllt skilyrði a-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála, til að kærða verði gert að sæta gæluvarðhaldi áfram og er krafan tekin til greina eins og hún er sett fram af lögreglu og nánar greinir í úrskurðarorði.

Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð

Kærði, X, kt. [...], sæti gæsluvarðhaldi allt til fimmtudagsins 27. nóvember 2008 kl. 16:00.