Hæstiréttur íslands
Mál nr. 48/2013
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
|
|
Fimmtudaginn 24. janúar 2013. |
|
Nr. 48/2013. |
Ákæruvaldið (Stefanía Guðrún Sæmundsdóttir settur saksóknari) gegn X (Fanney Hrund Hilmarsdóttir hdl.) |
Kærumál. Farbann.
X var á grundvelli b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga gert að sæta farbanni þar til dómur gengi í máli hans í Hæstarétti en þó eigi lengur en til tiltekins dags.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir, Benedikt Bogason og Helgi I. Jónsson.
Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. janúar 2013 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 23. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Vesturlands 16. janúar 2013, þar sem varnaraðila var bönnuð för frá Íslandi, „á meðan áfrýjunarfresti í máli hans stendur og eftir atvikum komi til áfrýjunar þess á meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti“ þó eigi lengur en til miðvikudagsins 13. mars 2013 klukkan 16. Kæruheimild er í b. lið 2. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá er krafist „málsvarnarlauna“.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Varnaraðili var með dómi Héraðsdóms Vesturlands 14. janúar 2013 sakfelldur fyrir kynferðisbrot og dæmdur til tveggja ára fangelsisrefsingar. Eftir að hinn kærði úrskurður var kveðinn upp gaf ríkissaksóknari 18. janúar 2013 út áfrýjunarstefnu í samræmi við yfirlýsingu varnaraðila um áfrýjun. Með þessum athugasemdum en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur á þann hátt sem í dómsorði greinir.
Kærumálskostnaður dæmist ekki, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008.
Dómsorð:
Varnaraðila, X, er bönnuð för frá Íslandi þar til dómur gengur í máli hans í Hæstarétti, en þó eigi lengur en til miðvikudagsins 13. mars 2013 klukkan 16.
Úrskurður Héraðsdóms Vesturlands 16. janúar 2013.
Ríkissaksóknari hefur gert þá kröfu að X, kt. [...], ríkisfangslausum manni frá Palestínu, verði gert að sæta farbanni á meðan áfrýjunarfresti í máli hans stendur og eftir atvikum mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 13. mars 2013 kl. 16:00.
Verjandi mótmælir kröfunni og kveðst ekki telja lagaskilyrði b-liðar 1. mgr. 95. gr. uppfyllt í málinu. Þá krefst hann málskostnaðar í þessum þætti málsins.
Í greinargerð segir að Ríkissaksóknari hafi gefið út ákæru á hendur ákærða fyrir kynferðisbrot framin á árinu 2011 á [...] gagnvart tveimur unglingsstúlkum, annarri fæddri [...], þá 14 ára að aldri, og hinni fæddri [...], þá 13 ára að aldri, sem ákærða var treyst fyrir til kennslu og uppeldis sem stuðningsfulltrúi við grunnskólann [..] á [...] og sem leiðbeinandi í [...]. Í ákæru eru brot ákærða talin varða við 1. og 2. mgr. 201. gr. og 1. og 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Sakfellingardómur í máli ákæruvaldsins gegn ákærða hafi verið kveðinn upp hinn 23. mars sl. Hann hafi verið ómerktur með dómi Hæstaréttar sem kveðinn hafi verið upp 8. nóvember 2012. Eftir að aðalmeðferð málsins hinn 21. desember 2012 var kveðinn upp sakfellingardómur í máli ákæruvaldsins gegn ákærða hinn 14. janúar sl.
Ákærði hafi sætt farbanni samfellt frá 10. nóvember 2011. sbr. úrskurði Héraðsdóms Vesturlands í málum nr. R-30/2011, 36/2011, 1/2012, 3/2012, 5/2012, 9/2012 og R-19/2012, 25/2012 og 40/2012, úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. 282/2012 og dóm Hæstaréttar nr. 683/2012. Ákærði sé frá sjálfstjórnarsvæði Palestínu en sé án ríkisfangs. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun hafi dvalarleyfi hans runnið út 30. nóvember 2011. Ákærði hafi takmörkuð tengsl við Ísland og ríkissaksóknari telji að raunhæf hætta sé á því að hann muni fara af landi brott og koma sér undan málsókn eða eftir atvikum fullnustu refsingar. Sé áframhaldansi farbann því talið nauðsynlegt svo unnt sé að ljúka meðferð málsins fyrir héraðsdómi.
Með dómi Héraðsdóms Vesturlands 14. janúar sl. var ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur ungum stúlkum og dæmdur til tveggja ára fangelsisrefsingar. Áfrýjunarfrestur er ekki liðinn. Ákærði er án ríkisfangs og hefur takmörkuð tengsl við Ísland. Er fallist á það með ríkissaksóknara að þau skilyrði sem greinir í b-lið 95. gr. laga nr. 88/2008 séu fyrir hendi. Með vísan til þess ákvæðis og 1. mgr., sbr. 2. mg. 100. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, er fallist á að efni séu til að verða við kröfu um farbann. Verður krafa ríkissaksóknara tekin til greina eins og greinir í úrskurðarorði.
Allan V. Magnússon, héraðsdómari, kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð.
Kærða, [...], kt. [...], ríkisfangslausum manni frá Palestínu, er bönnuð för frá Íslandi, á meðan áfrýjunarfresti í máli hans stendur og eftir atvikum komi til áfrýjunar þess á meðan mál hans er til meðferðar fyrir Hæstarétti, þó eigi lengur en til miðvikudagsins 13. mars 2013 kl. 16:00.
Málskostnaður verjanda hans í þessum þætti málsins að fjárhæð 30.000 krónur að viðbættum ferðakostnaði að fjárhæð 19.625 krónur, greiðist úr ríkissjóði.