Hæstiréttur íslands

Mál nr. 514/2009


Lykilorð

  • Kærumál
  • Farbann


Fimmtudaginn 10

 

Fimmtudaginn 10. september 2009.

Nr. 514/2009.

Ákæruvaldið

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)

gegn

X

(Sveinn Andri Sveinsson hrl.)

 

Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X yrði áfram bönnuð för úr landi á grundvelli 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 1. mgr. 100 gr. sömu laga.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Ólafur Börkur Þorvaldsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari. 

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 7. september 2009, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 8. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 7. september 2009, þar sem varnaraðila var áfram bönnuð för frá Íslandi, allt til og með þriðjudeginum 27. október 2009 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að farbanni verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Hinn kærði úrskurður er staðfestur með vísan til forsendna hans.

Dómsorð:

Varnaraðila, X, er bönnuð för frá Íslandi þar til dómur gengur í máli hennar, þó ekki lengur en til þriðjudagsins 27. október 2009, klukkan 16.

 

Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 7. september 2009.

Ríkissaksóknari hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði áfram bönnuð för frá Íslandi, allt þar til dómur fellur í máli hennar þó ekki lengur en til þriðjudagsins 27. október 2009, kl. 16.00.

Í greinargerð ríkissaksóknara segir að með ákæru ríkissaksóknara dagsettri 10. ágúst sl. hafi verið höfðað mál á hendur X fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa á árinu 2009 staðið að innflutningi á samtals rúmum 400 g af kókaíni sem aðrir voru fengir til að flytja til landsins.  Þá er ákærðu gefið að sök brot gegn valdstjórninni með því að hafa bitið í bak lögreglumanns. Eru brotin heimfærð til 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og til 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 101/1976 og lög nr. 25/2007. Þann 27. ágúst sl. var mál nr. S-676/2009 þingfest af Arnfríði Einarsdóttur héraðsdómara og þar var framangreind ákæra ríkissaksóknara frá 10. ágúst sl. lögð fram. Við þingfestinguna neitaði ákærða að hafa framið fíkniefnabrotin en játaði brotið gegn valdstjórninni. Málið verður tekið fyrir í dag, en þá er fyrirhuguð skýrslutaka af vitnunum A og B

Tekið skal fram að ríkissaksóknara bárust hinn 31. júlí sl. rannsóknargögn lögreglustjórans á  höfuðborgarsvæðinu vegna ofangreindra brota ákærðu, sem og ætlaðar brota hennar gegn 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með síðari breytingum. Er ákærða m.a. grunuð um  milligöngu á vændi en nokkrar konur hafa borið að þær hafi starfað við vændi á vegum ákærðu og að hún hafi fengið hluta þóknunar þeirra. Að mati ríkissaksóknara þarfnast sá þáttur málsins frekari rannsóknar og hefur hann því verið endursendur lögreglu. Við þingfestingu máls nr. S-676/2009 óskaði ákærða þess að það mál sem til rannsóknar er á hendur henni verði sameinað máli hennar fyrir dómi og málin tvö rekin sem eitt mál. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er þess vænst að sá hluti rannsóknarinnar verði sendur embætti ríkissaksóknara til meðferðar í lok næstu viku.

Ákærða sætti gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins frá 30. apríl til 12. maí sl. og hefur sætt farbanni frá þeim tíma. Vísað er til úrskurðar Héraðsdóms Reykjaness nr. R-376/2009 og dóma Hæstaréttar í málum nr. 242/2009, 388/2009 og 460/2009 þar sem fallist var á að þörf væri á að tryggja nærveru varnaraðila hér á landi í þágu málsins með farbanni.

Lagarök:

Gefin hefur verið út ákæra á hendur X fyrir fíkniefnalagabrot og brot gegn valdstjórninni. Þá er í gangi rannsókn vegna ætlaðra brota hennar gegn 206. gr. almennra hegningarlaga. Ákærða er íslenskur ríkisborgari en hefur takmörkuð tengsl við landið. Fjölskylda hennar býr erlendis og sætir kærasti hennar nú gæsluvarðhaldi í Amsterdam. Nauðsynlegt er að tryggja nærveru ákærðu hér á landi til að hún geti ekki komið sér undan saksókn og til að ljúka megi meðferð málanna beggja.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og b. liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er þess beiðst að ofangreind krafa nái fram að ganga.

Ákærða er m.a. sökuð um ætluð brot gegn 2. sbr. 5. g 6. gr. laga um ávana og fíkniefni  með því að hafa staðið að innflutningi á rúmlega 400 g af kókaíni auk brots gegn 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ásamt síðari breytingum, en bæði brotin get varðað fangelsisrefsingu. Auk þessa er ákærða grunuð um brot gegn 206. gr. alm. hegningarlaga sem enn er til rannsóknar.

Vísað er til framangreinds, framlagðra gagna og b. liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Samkvæmt ákæru er ákærða sökuð um brot sem allt að 6 ára fangelsisrefsing er lögð við. Ákærða hefur takmörkuð tengsl við landið og er fallist á að nauðsynlegt sé að tryggja nærveru hennar meðan máli hennar er ekki lokið, enda skilyrðum b. liðar 1. mgr. 95. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008 fullnægt til þess að henni verði bönnuð för úr landinu. Verður því fallist á kröfu ríkissaksóknara eins og hún er fram sett.

Úrskurð þennan kveður upp Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari.

Úrskurðarorð:

Ákærðu, X er áfram bönnuð för frá Íslandi, allt til og með þriðjudeginum 27. október 2009 kl. 16:00.