Hæstiréttur íslands

Mál nr. 294/2003


Lykilorð

  • Dómsuppkvaðning
  • Ómerking
  • Heimvísun


Fimmtudaginn 29

 

Fimmtudaginn 29. apríl 2004.

Nr. 294/2003.

Hlöðver Árni Guðmundsson og

Þuríður Georgsdóttir

(Garðar Briem hrl.)

gegn

Þorsteinu S. Ólafsdóttur

(Helgi Birgisson hrl.)

og gagnsök

 

Dómsuppsaga. Ómerking. Heimvísun.

Héraðsdómur var ómerktur og málinu vísað heim í hérað til munnlegs málflutnings og dómsuppsögu að nýju, þar sem ekki hafði verið fylgt fyrirmælum síðari málsliðar 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991.

 

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.

Aðaláfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 25. júlí 2003. Veitt var leyfi til áfrýjunar héraðsdóms. Þau krefjast þess að gagnáfrýjandi verði dæmd til að greiða þeim 303.048 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. júlí 2002 til greiðsludags. Þá krefjast þau málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.

Gagnáfrýjandi áfrýjaði héraðsdómi fyrir sitt leyti 22. október 2003. Hún krefst sýknu af kröfu aðaláfrýjenda og málskostnaðar í héraði og fyrir Hæstarétti.

Málið var tekið til dóms í héraði við lok aðalmeðferðar 24. mars 2003. Hinn áfrýjaði dómur var kveðinn upp 25. apríl sama árs, en ekki var þá sótt þing af hálfu málsaðila. Var þá liðinn frestur samkvæmt 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála til að kveða upp dóm í málinu án þess að það yrði munnlega flutt á ný eða að aðilar þess og héraðsdómari væru samdóma um að það væri óþarft. Vegna þessa verður ekki hjá því komist að ómerkja sjálfkrafa hinn áfrýjaða dóm og vísa málinu heim í hérað til munnlegs málflutnings og dómsuppsögu að nýju.

Rétt er að aðilar beri hver sinn kostnað af þessum þætti málsins fyrir Hæstarétti.

D ó m s o r ð:

Hinn áfrýjaði dómur er ómerktur og málinu vísað heim í hérað til munnlegs flutnings og uppsögu dóms að nýju.

Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.