Hæstiréttur íslands
Mál nr. 627/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 9. september 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. september 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 7. október 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi. Þá krefst hann þess að allur kostnaður vegna þessa þáttar málsins verði felldur á ríkissjóð, þar með talin málsvarnarlaun verjanda síns.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Kærumálskostnaður dæmist ekki, sbr. 3. mgr. 220. gr. laga nr. 88/2008
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. september 2016.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 7. október nk. kl. 16.00.
Í greinargerð sækjanda kemur fram að um klukkan 21 að kvöldi föstudagsins 5. ágúst sl. hafi lögreglan verið kölluð að Leifasjoppu við Iðufell í Reykjavík þar sem tilkynnt hafi verið um tvo aðila sem hefðu skotið úr haglabyssu á [...] bifreið. Vitni hafi borið um að þau hafi séð átök milli karlmanna og heyrt tvo skothvelli.
Lögreglan hafi rætt við ökumann og farþega [...] bifreiðarinnar, þau A og B. Sögðu þau að umrætt sinn hafi þau komið að Leifasjoppu en þar hafi menn verið í átökum sem B hafi blandast í. Bhafi síðan ætlað að koma sér undan og þá gengið í átt að bifreiðinni þegar A hafi orðið þess vör að annar kærðu hafi haldið á haglabyssu sem hann hafi beint að B. Hafi maðurinn í framhaldi skotið úr byssunni en ekki hæft B. Þau hafi síðan ekið bakvið Leifasjoppu þar sem kærðu og fleiri hafi komið. Hafi annar kærðu þá tekið upp byssu og beint henni að bílnum og skotið einu skoti í framhurðina, hægra megin, þar sem A hafi setið, en við það hafi bílrúðan brotnað og A hafi fengið glerbrotin yfir sig. Sagðist hún hafa séð þann sem skaut miða á bílinn áður en hann skaut. Lýstu A og B því að hafa í framhaldi ekið heim til sín. Samkvæmt A og B hafi það ekki verið sami maður sem hafi skotið á eftir B í fyrra skiptið og sá sem hafi skotið í hurðina á bílum. Fyrst hafi maður sem hafi verið þrekinn, sköllóttur og hávaxinn skotið en síðar hinn sem hafi verið meðalmaður á hæð, með dökkt hár og stuttklipptur.
Meðal rannsóknargagna sé upptaka úr eftirlitsmyndavél úr andyri fjölbýlishúsins við [...] í Reykjavík. Þar megi sjá kærðu ásamt C handleika afsagaða haglabyssu fyrir árásina. Einnig megi sjá Cmeð kylfu sem lögregla hafi haldlagt við handtöku á kærðu. Lögreglan hafi yfirheyrt C sem hafi kannast við sjálfan sig og kærðu á upptökunni. Sagði C að kærðu hefðu umrætt sinn komið heim til hans og hafi X verið með afsagaða haglabyssu meðferðis. Hafi þeir fengið hjá honum tösku til að geyma byssuna í en sjálfur hafi hann haft hafnaboltakylfu meðferðis. Í framhaldi hafi þeir farið að Leifasjoppu þar sem hann lýsir að kærði Y hafi fyrst skotið í átt að [...] bifreiðinni en síðar aftan við sjoppuna hafi kærði X skotið á bifreiðina.
Fjöldi vitna lýsi því að hafa orðið vitni að því þegar kærðu hafi skotið úr byssunni og samræmist lýsing vitnanna útliti og klæðarburði kærðu sem sjá megi á upptökum úr eftirlitsmyndavélum úr Leifasjoppu þar sem kærðu sjáist koma inn í fyrir skotárásina.
Þá hafi vitni sem býr í húsnæði við Leifasjoppu lýst því að hafa eftir skothvellina séð karlmann sem samsvari lýsingu kærða X, með íþróttatösku meðferðis, hlaupa inn í húsnæðið við [...] þar sem móðir kærðu búi. Lögregla hafi síðar fengið tilkynningu frá öðrum aðila um að svört íþróttataska með byssu í hefði fundist í rennu fyrir rusl í blokkinni við [...]. Sjá hafi mátt blóðkám á byssunni.
Kærði X hafi verið handtekinn aðfaranótt 6. ágúst sl. fyrir utan Hraunbæ í Reykjavík ásamt öðrum aðila. Kærði hafi játað í skýrslutöku þann 6. ágúst að hafa verið á vettvangi og skotið einu skoti úr byssunni en kvaðst hafa gert það eftir að hafa tekið vopnið af öðrum aðila sem hann og meðkærði hafi verið í átökum við. Í skýrslutöku þann 11. ágúst sl. sagði X aftur á móti að hann og Y hafi farið að Leifasjoppu til að hitta þar fyrir menn sem höfðu fyrr um kvöldið haft í hótunum við þá. Þeir hafi verið vopnaðir kylfum og kærði hafi komið haglabyssu fyrir skammt frá sem hann hafi notað. Til átaka hafi komið og sagði X að Y hafi skotið einu skoti upp í loftið en hann sjálfur hafi síðar skotið einu skoti og hafi högl úr því farið í [...] bifreiðina. Kannaðist X við að hafa eftir árásina komið byssunni fyrir í ruslageymslu á heimili móður hans. X hafi aftur verið yfirheyrður þann 6. september sl. og undir hann borin ný gögn en hann hafði litlu við fyrri framburð sinn að bæta.
Kærði Y hafi verið handtekinn þann 8. ágúst sl. Í skýrslutöku hjá lögreglu sama dag sagði hann að X hefði skotið einu skoti úr byssunni eftir að hann hafði afvopnað mann sem þeir voru í átökum við. Hafi sá aðili áður verið búinn að skjóta úr byssunni. Y neiti hinsvegar fyrir að hafa sjálfur skotið úr byssunni. Y hafi haldið sig við sama framburð þegar hann hafi verið yfirheyrður 11. ágúst sl. Y hafi aftur verið yfirheyrður þann 6. september sl. og undir hann borin ný gögn en hann hafði litlu við fyrri framburð að bæta.
X hafi þann 6. ágúst sl. verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. Þann 12. ágúst sl. hafi kærði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur nr. 252/2016 sem staðfestur hafi verið með dómi Hæstaréttar nr. 582/2016.
Rannsókn málsins sé komin langt á veg en beðið sé matsgerðar sérfræðings á hættueiginleikum skotvopnsins sem notað hafi verið við árásina.
Af gögnum málsins megi ráða að til átaka hafi komið milli kærðu og hóps fólks. Fram komi hjá báðum kærðu að aðilar hafi talað sig saman um að hittast við Leifasjoppu. Þá hafi komið fram hjá kærða X að kærðu hefðu sammælst um að fara þangað vopnaðir. Meðal gagna málsins sé upptaka þar sem sjá megi kærðu ásamt félaga þeirra C fara frá heimili C vopnaðir afsagaðri haglabyssu og með kylfu skömmu áður en tilkynnt hafi verið um skotárásina. Kærðu og C lýsi að til átaka hafi komið milli kærðu og áðurnefndra aðila fyrir utan Leifasjoppu og C og X lýsi því að í framhaldi hafi báðir kærðu skotið af byssunni sem samræmist framburðum brotaþola málsins. Þá hafi umrædd byssa fundist í ruslageymslu á heimili móður kærðu og kannist X við að hafa komið henni fyrir þar.
Það sé mat lögreglu að með háttsemi sinni hafi kærðu í sameiningu stofnað lífi og heilsu fjölda fólks í augljósa hættu umrætt sinn. Bæði þeirra sem þeir hafi átt í útistöðum við og annarra, en fjöldi fólks hafi verið á ferli, m.a. börn og ungmenni. Þá hafi verið skotið af byssunni í miðri íbúðabyggð. Kærðu hafi notað vopn til verksins sem búið hafi verið að eiga við með þeim hætti að eiginleikar vopnsins hafi verið hættulegri en ella. Hafi kærðu mátt vera ljós sú augljósa hætta sem gæti skapast af háttsemi þeirra.
Kærðu liggi samkvæmt framansögðu undir sterkum grun um brot gegn 211. gr., sbr. 20. gr., og eða 2. mgr. 218. gr. og 4. mgr. 220. gr almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem geti varðað allt að 16 ára fangelsi. Af öllu framangreindu sé ljóst að kærðu séu hættulegir umhverfi sínu og sé það mat lögreglu að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Myndi það jafnframt særa réttarvitund almennings yrðu kærðu látnir lausir. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Fyrir liggur samkvæmt greinargerð lögreglu og rannsóknargagna málsins að hleypt var af skotum úr haglabyssu við svokallaða Leifasjoppu við Iðufell í Reykjavík að kvöldi föstudagsins 5. ágúst sl., þar sem fólk var saman komið. Kærði hefur viðurkennt að hafa hleypt af skoti umrætt sinn sem óumdeilt er að hafnaði í bifreið þar sem fjöldi fólks var saman komið. Rannsókn málsins er á lokastigi og má vænta að ákæra verði gefin út innan tíðar. Samkvæmt því er kærði undir sterkum grun um að hafa framið afbrot sem að lögum getur varðað 10 ára fangelsi og brotið sé þess eðlis að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna.
Að framangreindu virtu er krafan tekin til greina eins og hún er fram sett og nánar greinir í úrskurðarorði.
Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kærði, X, kt. [...], skal áfram sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 7. október nk. kl. 16.00.