Hæstiréttur íslands
Mál nr. 483/2004
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Miðvikudaginn 8. desember 2004. |
|
Nr. 483/2004. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík(Egill Stephensen saksóknari) gegn X(Brynjar Níelsson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru, sem barst héraðsdómi 6. desember 2004 og Hæstarétti ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. desember 2004, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 14. janúar 2005 kl. 16.00. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Sóknaraðili krefst þess að úrskurður héraðsdómara verði staðfestur.
Fallist er á að fyrir hendi sé sterkur grunur um að varnaraðili hafi framið brot, sem að lögum geta varðað allt að 12 ára fangelsi, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með áorðnum breytingum. Brotið er þess eðlis að telja verður gæsluvarðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Er því fullnægt skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 til gæsluvarðhalds yfir varnaraðila. Samkvæmt því verður hinn kærði úrskurður staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. desember 2004.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur krafist þess að X, sæti áfram gæsluvarðhaldi meðan máli hans er ekki lokið, þó eigi lengur en til föstudagsins 14. janúar 2005, kl. 16:00.
Í greinargerð lögreglu kemur fram að ávana- og fíkniefnadeild lögreglustjórans í Reykjavík rannsaki ætluð brot gegn almennum hegningarlögum er varði stórfelldan innflutning sterkra fíkniefna til landsins. Málið hafi sætt rannsókn um nokkra mánaða skeið, símar sakborninga hafi verið hlustaðir og fylgst hafi verið með ferðum þeirra. Á rannsóknartímabilinu hafi verið lagt hald á mikið magn fíkniefna í mismunandi sendingum. Málið sé umfangsmikið og þáttur einstakra sakborninga sé talinn mismunandi umfangsmikill og í einhverjum tilvikum er hann talinn afmarkaður við einstaka sendingar.
[...]
Lögreglan hafi lagt hald á umrædd fíkniefni þann 21. júlí sl. en þau reyndust vera 7.694,98 g af amfetamíni. Framburður kærða sé í samræmi við annað sem fram sé komið í málinu og ekki séu efni til að ætla að kærði hafi gert meira úr sínum þætti en efni standa til. Kærði hafi verið handtekinn þann 17. september sl. og þann 18. s.m. hafi honum verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna, sbr. úrskurður nr. [...]. Þann 8. október sl. hafi gæsluvarðhaldið verið framlengt á sama grundvelli, sbr. úrskurður nr. [...]. Þann 22. október sl. hafi gæsluvarðhaldið verið framlengt til dagsins í dag á grundvelli almannahagsmuna, sbr. úrskurður nr. [...].
Rannsókn lögreglu sé langt komin en henni sé ekki lokið. Að lokinni rannsókn verði rannsóknargögn send ríkissaksóknara til ákærumeðferðar. Að mati lögreglu þyki kærða vera undir sterkum rökstuddum grun um að hafa framið brot sem geti varðað fangelsi allt að 12 árum, sbr. 173. gr. a. almennra hegningarlaga. Brot kærða þyki mjög alvarlegt en það lúti að innflutningi á miklu magni af amfetamíni. Þáttur kærða í brotunum sé mikill eins og framan greinir, [...]
Hagsmunir almennings krefjist þess að maður sem eigi slíkan þátt í jafn stórum og alvarlegum brotum og hér um ræði, þ.e. beinan þátt í stórfelldum innflutningi fíkniefna, gangi ekki laus meðal almennings heldur sæti gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í málinu. Þetta sé í samræmi við réttarvitund almennings og þykir eiga við um mál kærða þar sem um sé að ræða mjög mikið magn fíkniefna og megi þannig gera ráð fyrir að það myndi vekja athygli og andúð almennings ef hann yrði látinn laus.
Umrædd krafa um gæsluvarðhald sé gerð með hliðsjón af dómaframkvæmd síðustu ára, sbr. dómar Hæstaréttar í málum nr.: 423/2004, 269/2004, 452/1999, 471/1999, 417/2000, 352/1997, 158/2001, 294/1997, 283/1997 og 284/1997, þar sem sakborningum hafi margsinnis verið gert að sæta gæsluvarðhaldi uns dómur er uppkveðinn þegar legið hefur fyrir sterkur rökstuddur grunur um að þeir hafi staðið að innflutningi á miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni. Er ekki ástæða til að ætla að refsimat og réttarvitund almennings í slíkum málum hafi breyst svo mikið frá því téðir dómar voru uppkveðnir að skilyrðum 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 sé ekki fullnægt í því máli sem hér um ræðir. Verður þannig að telja áframhaldandi gæsluvarðhald nauðsynlegt vegna almannahagsmuna.
Kærði sé undir sterkum rökstuddum grun um að hafa framið brot sem kann að varða allt að 12 ára fangelsi skv. 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til 2. mgr. 103. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Kærði er grunaður um brot sem kann að varða allt að 12 ára fangelsisrefsingu skv. 173. gr. a l. nr. 19/1940. Kærði var handtekinn þann 17. september sl. og hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan. Á gæsluvarðhaldstímabilinu hefur hann játað að hafa komið á sambandi á milli manna í því skyni að stuðla að innflutningi fíkniefna til landsins og jafnframt annast milligöngu um kaup á fíkniefnum. Telja verður að rökstuddur grunur sé kominn fram um að kærði hafi framið það brot sem um ræðir. Um verulegt magn hættulegra fíkniefna er að ræða en lögregla lagði hald á tæp átta kíló af amfetamíni við rannsókn málsins. Telja verður að aðild hans að málinu sé slík að skilyrði séu fyrir áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. l. nr. 19/1991 og er ekki ástæða til að marka því skemmri tíma en krafist er. Er því fallist á framkomna kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Símon Sigvaldason héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi meðan máli hans er ekki lokið, þó eigi lengur en til föstudagsins 14. janúar 2005, kl. 16:00.