Hæstiréttur íslands
Mál nr. 390/2002
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991
|
|
Mánudaginn 26. ágúst 2002. |
|
Nr. 390/2002. |
Lögreglustjórinn í Reykjavík |
|
|
(Egill Stephensen saksóknari) |
|
|
gegn |
|
|
X |
|
|
(Kristín Edwald hdl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. C. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Guðrún Erlendsdóttir, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Hafstein.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 22. ágúst 2002, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. ágúst 2002, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til kl. 16.00 þriðjudaginn 10. september nk. Kæruheimild er í 1. mgr. 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 22. ágúst 2002.
Lögreglan í Reykjavík hefur krafist þess að X, óstaðsettum í hús í Reykjavík, verði á grundvelli c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans í héraði en þó ekki lengur en til miðvikudagsins 25. september nk. kl. 16.00 vegna brota sem talin eru varða við 1. mgr. 155. gr., 247. gr., 248. gr. og 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 73. gr. tékkalaga nr. 94/1933 og 44. og 45 gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Í kröfu lögreglustjóra kemur fram að ákærði sitji nú í gæsluvarðhaldi til klukkan 16.00 á morgun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 samkvæmt dómi Hæstaréttar Íslands uppkveðnum 12. júlí sl.
Þann 10. maí sl. hafi lögreglustjórinn í Reykjavík höfðað mál á hendur X fyrir dóminum vegna ætlaðra brota hans sem lögð hafi verið til grundvallar í kröfugerð lögreglustjórans fyrir gæsluvarðhaldinu 14. apríl sl. Málið hafi verið þingfest 27. maí sl. en aðalmeðferð hafist 20. þ.m. og fyrirhugað að ljúka henni 3. september nk..
Í ákæru sé höfðað mál á hendur X fyrir 13 brot framin á tímabilinu frá nóvember 2001 fram í apríl 2002 og sé honum meðal annars gefið að sök að hafa með auðgunarbrotum og skjalafalsi náð og reynt að ná til sín verðmætum að andvirði um 2.350.000 krónur.
Að öðru leyti vísar lögreglustjórinn í Reykjavík til kröfugerðar sinnar fyrir dóminum 14. apríl, 27. maí og 10. júlí sl. og forsendna nefnds dóms Hæstaréttar.
Ákærða var veitt reynslulausn af tæplega sex ára eftirstöðvum 17 ára fangelsisdóms í júní 2001. Þingfest hefur verið opinbert mál á hendur ákærða þar sem honum voru gefin að sök 13 brot, framin á tímabilinu nóvember 2001 og fram í apríl 2002. Meðal þessara brota eru skjalafals og allmörg auðgunarbrot. Aðalmeðferð hófst 20. ágúst sl. en lauk ekki vegna fjarveru nokkurra vitna sem nauðsynlegt þótti að kæmu fyrir dóminn. Framhaldsaðalmeðferð fer fram 3. september nk. Ákærði hefur játað aðild að flestum þessara brota. Fram er komið að ákærði hefur lengi átt við alvarlegan fíkniefnavanda að stríða og að brotin voru framin til að fjármagna fíkniefnakaup. Meðferðarúrræði standi honum til boða þann 23. ágúst en óvíst verði um meðferðarpláss síðar.
Ákærði hefur játað aðild að fjölda hegningarlagabrota sem framin voru skömmu eftir að honum var veitt reynslulausn á tæplega sex ára eftirstöðvum 17 ára fangelsisdóms. Hann hefur viðurkennt að hafa átt við alvarlegan áfengis- og fíkniefnavanda að stríða þrátt fyrir að hann segist ekki hafa neytt slíkra efna nú um fjögurra mánaða skeið.
Með vísan til framanritaðs og rannsóknargagna málsins má ætla að ákærði muni halda áfram brotum meðan málum hans er ekki lokið. Er því fallist á að skilyrðum um gæsluvarðhald ákærða samkvæmt c-lið 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 sé fullnægt. Eins og fram hefur komið hefur ákærði að mestu játað brot þau er hann hefur nú verið ákærður fyrir. Þykir því rétt að krafa lögreglustjórans sé tekin greina að því breyttu að ákærði skal sæta gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó ekki lengur en til þriðjudagsins 10. september nk. kl. 16.00.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari kvað upp úrskurðinn.
Úrskurðarorð:
Ákærði, X, sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til dómur gengur í máli hans en þó ekki lengur en til þriðjudagsins 10. september nk. kl. 16.00.