Hæstiréttur íslands
Mál nr. 241/2017
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Helgi I. Jónsson og Benedikt Bogason og Þorgeir Ingi Njálsson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 12. apríl 2017, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 12. apríl 2017, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 8. maí 2017 klukkan 16. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Hæstiréttur hefur tvívegis slegið því föstu að fullnægt sé skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 til þess að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi, sbr. dóma réttarins 22. febrúar 2017 í máli nr. 128/2017 og 22. mars sama ár í máli nr. 186/2017. Er ekkert fram komið í málinu sem fær breytt þeirri niðurstöðu. Verður hinn kærði úrskurður því staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Suðurlands 12. apríl 2017.
Héraðssaksóknari hefur krafist þess að X, kt. [...], [...], Reykjavík, verði gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 8. maí 2017, kl. 16.00.
Kærði mótmælir kröfunni og krefst þess að henni verði hafnað, en krefst þess til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Í kröfu saksóknara kemur fram að mál þetta hafi borist héraðssaksóknara frá Lögreglustjóranum á Suðurlandi þann 21. mars sl. en kærði sé sterklega grunaður um þrjú kynferðisbrot gagnvart þremur brotaþolum sem framin hafi verið á [...] aðfaranótt/að morgni mánudagsins 13. febrúar sl. Sé kærða gefið að sök að hafa með skömmu millibili brotið gegn þremur konum, en allar þrjár hafi verið gestir á [...] umrædda nótt og verið sofandi hver í sínu hótelherbergi þegar hin ætluðu brot hafi verið framin. Tvö hinna ætluðu brota kunni að varða við 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga og hið þriðja við 199. gr. laganna. Sem kunnugt sé geti brot gegn 194. gr. almennra hegningarlaga varðað allt að 16 ára fangelsi og því ljóst að um alvarleg brot sé að ræða. Kærði hafi neitað sök.
Þrátt fyrir neitun kærða sé að mati ákæruvaldsins fram kominn sterkur grunur um að kærði hafi gerst sekur um öll þrjú brotin og byggi ákæruvaldið þann grun sinn á því m.a. að kærði hafi verið handtekinn á vettvangi síðasta brotsins, framburði brotaþola og framburði vitna. Auk þess hafi kærði sjálfur í framburði hjá lögreglu kannast við að hafa farið inn í þrjú herbergi á [...] umrædda nótt/morgun og lýst því að hann hafi haft kynferðismök við tvær konur. Framburður kærða hafi hins vegar verið á þann veg að kynferðismökin hafi verið með samþykki brotaþolanna og að hann hafi látið af háttsemi sinni um leið og hann hafi orðið þess áskynja að þær hafi ekki viljað þetta. Að mati ákæruvaldsins sé framburður kærða ótrúverðugur með hliðsjón af framburði brotaþola, vitna og viðbrögðum brotaþola í kjölfar hinna meintu brota. Að mati ákæruvaldsins eigi hið sama við hvað varði framburð kærða um að hann hafi verið að leita að tóbaki sínu uppi í rúmi þriðja brotaþolans og þess vegna hafi hann verið með hendurnar undir sæng brotaþolans.
Hafi mat lögreglu og ákæruvalds um sterkan grun fyrir brotum kærða fengið stoð í úrskurðum Héraðsdóms Suðurlands nr. 9/2017 og 13/2017 frá 17. febrúar og 17. mars sl. ásamt dómum Hæstaréttar nr. 128/2017 og 186/2017 en síðastnefndi dómurinn hafi verið kveðinn upp þann 22. mars sl. Þá hafi rannsókn málsins að mestu leyti verið lokið en þó beðið niðurstöðu úr greiningu á DNA sýnum sem tekin hafi verið á upphafsstigum rannsóknar sem megi vænta niðurstaðna úr innan skamms. Að mati ákæruvaldsins hafi ekkert fram komið undir rannsókn málsins sem gefi tilefni til þess að breyta þessu mati Hæstaréttar.
Krafa ákæruvaldsins um áframhaldandi gæsluvarðhald sé gerð til 8. maí nk. en þá séu liðnar 12 vikur frá því kærði hafi upphaflega verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, sbr. 4. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála, og muni héraðssaksóknari taka ákvörðun um saksókn áður en að því tímamarki kemur.
Að mati héraðssaksóknara séu skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála uppfyllt með vísan til alvarleika brotsins sem kærði sé sterklega grunaður um en það geti varðað allt að 16 ára fangelsi. Að mati héraðssaksóknara sé gæsluvarðhald einnig nauðsynlegt með vísan til eðlis brotsins og að almannahagsmunir krefjist þess að kærði fari ekki frjáls ferða sinna á meðan mál hans er til meðferðar fyrir dómstólum en slíkt myndi stríða gegn réttarvitund almennings. Með vísan til alls framangreinds, fyrri úrskurða Héraðsdóms Suðurlands og dóma Hæstaréttar sem vísað var til hér að framan og framlagðra gagna sé þess krafist að krafan nái fram að ganga. Um heimild til að úrskurða ákærða í gæsluvarðhald sé vísað til 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Forsendur og niðurstaða
Samkvæmt því sem að framan greinir og að virtum rannsóknargögnum verður fallist á það með héraðssaksóknara að kærði sé undir sterkum rökstuddum grun um brot gegn 2. mgr. 194. gr. og 199. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en við brotum sem hann er grunaður um liggur fangelsisrefsing, ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum samkvæmt nefndu ákvæði 194. gr. laganna. Er um að ræða tvö aðskilin ætluð brot gegn 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga, framin með stuttu millibili.
Verður fallist á það með héraðssaksóknara að eins og atvikum er háttað í málinu sbr. það sem að framan segir, séu uppfyllt skilyrði til þess að kærði sæti gæsluvarðhaldi og að ætla megi að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og 1. mgr. 95. gr. laganna.
Ber því að fallast á kröfu héraðssaksóknara um að kærði sæti gæsluvarðhaldi eins og nánar greinir í úrskurðarorði, en lengd gæsluvarðhaldsins er innan marka 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og kemur fram í kröfu saksóknara um gæsluvarðhald, að ákvörðun um saksókn verði tekin innan þess tíma.
Sigurður G. Gíslason héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal áfram sæta gæsluvarðhaldi allt til mánudagsins 8. maí 2017, kl. 16.00.