Hæstiréttur íslands
Mál nr. 595/2016
Lykilorð
- Kærumál
- Farbann
Reifun
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Greta Baldursdóttir og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 23. ágúst 2016, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum degi síðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. ágúst 2016, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram farbanni þar til dómur fellur í máli hans, en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 20. september 2016 klukkan 16. Kæruheimild er í b. lið 2. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, en til vara að farbanninu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 23. ágúst 2016.
Héraðssaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, fæddur [...], verði gert að sæta áfram farbanni þar til dómur fellur í máli hans, en þó eigi lengur en til þriðjudagsins 20. september 2016, kl. 16.00.
Af hálfu ákærða er kröfunni mótmælt og þess krafist að henni verði hafnað en til vara að farbanni verði markaður skemmri tími.
Í greinargerð héraðssaksóknara segir að þann 22. september sl. hafi meðákærði Y komið hingað til lands ásamt erlendri konu á bifreiðinni [...] með ferjunni Norrænu. Hafi lögreglan haft eftirlit með bifreiðinni þar sem henni var ekið til Reykjavíkur og þaðan til Keflavíkur á tímabilinu 22. – 25. september. Föstudaginn 25. september hafi Y farið með flugi frá Íslandi, en skilið bifreiðina eftir á bifreiðastæði við Keflavíkurflugvöll. Y hafi komið aftur til landsins 28. september og sótt bifreiðina. Ákærði hafi einnig komið með flugi til landsins þennan sama dag og hafi þeir ekið á sitt hvorri bifreiðinni sem leið lá inn í [...] að gistiheimili [...] í [...]. Þar hafi hann hitt meðákærða Y og hafi þeir báðir verið handteknir af lögreglu stuttu eftir komu þeirra í húsnæðið. Bifreiðin sem meðákærði Y ók hafi verið haldlögð og við leit í henni hafi fundist rúmlega 19,5 kg af amfetamíni og rúmlega 2,5 kg af kókaíni sem var búið að fela í bifreiðinni. Alls hafi fjórir aðilar verið handteknir vegna málsins og hafi þeir allir sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar þess. Það er mat ákæruvaldsins að ferð ákærða til landsins hafi haft þann eina tilgang að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni og afhenda þau.
Með ákæru héraðssaksóknara, dagsettri 5. september 2016, var ákærða gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa á árinu 2015 staðið saman ásamt meðákærðu að innflutningi á 19.448,96 g af amfetamíni og 2.597,44 g af kókaíni frá Hollandi til Íslands, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni, eins og nánar greinir í ákæruskjali.
Ákærði þykir vera undir sterkum grun um aðild að broti sem geti varðað allt að 12 ára fangelsi. Að mati lögreglu er meint aðild ákærða mikil en hún er talin tengjast skipulagningu og flutningi fíkniefnanna hingað til lands. Um mjög mikið magn hættulegra fíkniefna sé að ræða. Metur lögregla það svo að skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sé fullnægt í því máli sem hér um ræðir en staða ákærða þykir sambærileg stöðu sakborninga í öðrum svipuðum málum, sbr. dóma Hæstaréttar í málum nr. 736/2015, 152/2013, 149/2013, 269/2010, 164/2010 og 91/2010, þar sem sakborningum hafi verið gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna þegar legið hefur fyrir sterkur grunur um beina aðild að innflutningi að miklu magni fíkniefna í ágóðaskyni.
Ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknar málsins frá 29. september, nú síðast með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. [...], en sá úrskurður hafi verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Þar sem ákærði sætti gæsluvarðhaldi í 12 vikur án þess að mál hafi verið höfðað á hendur honum hafi lögregla talið, í samræmi við 4. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, að ekki væri unnt að úrskurða hann áfram í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Í samræmi við það hafi verið farið fram á og ákærði í kjölfarið verið úrskurðaður í farbann og hafi sá úrskurður verið staðfestur með dómi Hæstaréttar. Síðan hafi Hæstiréttur í sex skipti staðfest úrskurði um áframhaldandi farbann yfir ákærða, sbr. dóma í málum nr. 49/2016, 128/2016, 217/2016, 415/2016, 480/2016 og 540/2016. Sé því farið fram á að ákærði verði úrskurðaður í áframhaldandi farbann á grundvelli 100. gr. laga nr. 88/2008 en á því er byggt að skilyrði 2. mgr. 95. gr. séu uppfyllt. Jafnframt teljist fyrir hendi skilyrði til að úrskurða ákærða í farbann á grundvelli b- liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Ákærði sé erlendur ríkisborgari og hafi engin sérstök tengsl við landið. Sæti hann ekki farbanni megi ætla að hann reyni að komast úr landi til að komast undan málsókn eða fullnustu refsingar. Að mati héraðssaksóknara sé brýnt að tryggja nærveru ákærða á meðan mál hans er til meðferðar fyrir yfirvöldum hér á landi og því nauðsynlegt að honum verði gert að sæta farbanni þar til mál hans er til lykta leitt. Ýmislegt hafi komið upp undir rekstri málsins fyrir dómi, t.d. hafi verið dómkvaddur matsmaður til að meta sakhæfi eins hinna ákærðu og þá hafi komið fram kröfur verjanda um frekari gagnaöflun og afhendingu muna og gagna sem hafi gert það að verkum að málsmeðferð fyrir héraðsdómi hafi dregist, en málsmeðferð hófst 10. ágúst sl. og var fram haldið 11. ágúst sl., 18. ágúst sl. og í dag 23. ágúst 2016.
Ákæruvaldið telur með hliðsjón af því sem rannsókn hefur leitt í ljós að ákærði sé undir sterkum grun um að hafa framið brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ásamt síðari breytingum, og varði allt að 12 ára fangelsi. Um heimild til að úrskurða kærða í farbann er vísað til b-liðar 1. mgr. 95. gr. og 2. mgr. 95. gr. sbr. 100. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Með vísan til alls framangreinds og framlagðra gagna málsins er þess beiðst að krafa héraðssaksóknara um farbann nái fram að ganga.
Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 540/2016 var ákærða gert að sæta farbanni til dagsins í dag á grundvelli 1. mgr. 100. gr. laga nr. 88/2008, sbr. 2. mgr. 95. gr. sömu laga. Er ekkert fram komið í málinu sem leiðir til þess að ekki séu lengur fyrir hendi skilyrði til að ákærða verði gert að sæta farbanni, en aðalmeðferð í máli hans hófst 10. ágúst sl. og er gert ráð fyrir því að málið verði tekið til dóms í dag eða á morgun. Með vísan til framangreinds er fallist á kröfu héraðssaksóknara um áframhaldandi farbann, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Ákærði, X, skal sæta farbanni þar til dómur fellur í máli hans, þó eigi lengur en til þriðjudagsins 20. september 2016, kl. 16:00.