Hæstiréttur íslands
Mál nr. 240/2010
Lykilorð
- Kærumál
- Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008
|
Föstudaginn 16. apríl 2010. |
|
|
Nr. 240/2010. |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Óli Ásgeir Hermannsson fulltrúi) gegn X (Bjarni Hauksson hrl.) |
Kærumál. Gæsluvarðhald. A. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.
Dómur Hæstaréttar.
Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Hákonardóttir og Viðar Már Matthíasson settur hæstaréttardómari.
Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 14. apríl 2010, sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum 15. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. apríl 2010, þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 23. apríl 2010 klukkan 16 og sæta einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldinu verði markaður skemmri tími.
Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
Með vísan til forsendna hins kærða úrskurður verður hann staðfestur.
Dómsorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 11. apríl 2010.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur í dag krafist þess að Héraðsdómur Reykjaness úrskurði að X, kt. [...], verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 23. apríl 2010, kl. 16.00.
Í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum segir að kærði hafi verið stöðvaður í tollhliði við reglubundið eftirlit aðfaranótt 11. apríl 2010 ásamt samferðarkonu sinni er hann hafi komið til landsins með flugi frá Alicante, Spáni, vegna gruns um að hann hefði fíkniefni meðferðis. Við eftirlit tollgæslu hefðu fundist í ferðatöskum, sem kærði og samferðarkona hans komu með til landsins, um 1.765 g af kókaíni. Kærði hafi neitað að hafa vitað um fíkniefnin í töskunum. Telji lögregla rökstuddan grun til að ætla að kærði kunni að vera viðriðinn hinn ætlaða innflutning.
Rannsókn máls þessa sé á frumstigi og telji lögreglan að mál þetta tengist frekari innflutningi á fíkniefnum frá Spáni og fleiri rannsóknum sem nú séu í fullum gangi. Þá telji lögreglan ljóst að fleiri aðilar tengist hinum ætlaða innflutningi. Þá telji lögreglan mjög líklegt að sú leið sem notuð hafi verið við innflutning fíkniefnanna hingað til lands hafi verið notuð áður og hafi staðið til að nota hana oftar. Meðal þess sem rannsaka þurfi sé aðdragandi ferða kærða og samferðarkonu utan og hingað til landsins og tengsl þeirra við hugsanlega aðra vitorðsmenn á Íslandi og/eða erlendis, auk annarra atriða. Það magn fíkniefna sem lögreglan hafi þegar haldlagt þyki benda til þess að efnin hafi verið ætluð til sölu og dreifingar og háttsemi kærða kunni að varða við ákvæði 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 auk ákvæði laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Lögreglan telji að ætla megi að kærði kunni að torvelda rannsókn málsins og hafa áhrif á samseka gangi hann laus.
Þess sé krafist að kærða verði gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi skv. b-lið 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008. Þá sé þess jafnframt krafist að kærða verði gert að sæta takmörkunum sbr. a- til f-liða 1. mgr. sömu greinar.
Með vísan til alls framangreinds, rannsóknarhagsmuna, a-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88, 2008 um meðferð sakamála, 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni telji lögreglustjóri brýna rannsóknarhagsmuni standa til þess að kærða verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 23. apríl 2010 kl. 16.00.
Samkvæmt rannsóknargögnum málsins er kærði undir rökstuddum grun um að aðild að innflutningi á 1.765 g af kókaíni. Rannsókn málsins er umfangsmikil og á frumstigi. Haldi kærði óskertu frelsi sínu gæti hann torveldað rannsókn málsins með því að koma sönnunargögnum undan eða hafa áhrif á samseka og vitni. Með vísan til a-liðar 1. mgr. 95. gr. og b-liðar 1. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, er því fallist á kröfur lögreglustjóra, eins og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurð þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.
Úrskurðarorð:
Kærði, X, skal sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 23. apríl 2010, kl. 16.00.
Kærða er gert að vera í einangrun meðan á gæslu stendur.